Leita í fréttum mbl.is

Er farið eftir nýju lögunum?

um endursendingu hælisleitenda?

Er farið eftir því sem segir þar um að kæra synjunar fresti ekki endursendingu?

Hvað komu margir hælisleitendur í land í síðustu viku? Hversu margir voru sendir til baka?

Það má víst ekki spyrja hvernig gangi með eftirfylgni við lögin?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Þú hlýtur að vita að þessi lög taka ekki gildi fyrr en 1.01.2017,

fyrir utan 2 greinar, 114-115 sem tóku gildi strax.

114. gr.

Skylda útlendings til að tilkynna sig eða dveljast á tilteknum stað.

     Heimilt er að skylda útlending til að sinna reglulegri tilkynningarskyldu um veru sína hér á landi eða dveljast á ákveðnum stað í tilvikum þar sem:

    • ekki liggur fyrir hver útlendingurinn er, útlendingurinn neitar að gefa upp hver hann er eða ef rökstuddur grunur er um að hann gefi rangar upplýsingar um hver hann er,

    • útlendingur sýnir af sér hegðun sem gefur til kynna að hann ógni allsherjarreglu, öryggi ríkisins eða almannahagsmunum,

    • það þykir nauðsynlegt til þess að tryggja framkvæmd þegar tekin hefur verið ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið og þegar mál sem getur leitt til slíkrar ákvörðunar er til meðferðar,

    • útlendingurinn hefur hlotið dóm fyrir afbrot sem varðar meira en sex mánaða fangelsisvist eða rökstuddur grunur liggur fyrir um slíkt afbrot,

    • eini grundvöllur dvalar útlendings hér á landi er bann við endursendingu skv. 42. gr.,

    • ætla má að útlendingurinn ógni öryggi ríkisins eða hann af öðrum ástæðum en þeim sem nefndar eru í d-lið hefur ekki virt ákvörðun um að hann skuli hverfa úr landi eða hann getur ekki farið úr landi.


         Ákvarðanir um kröfu um að tilkynna sig eða dveljast á ákveðnum stað skulu teknar af lögreglustjóra.
         Útlendingurinn á rétt á að fá skorið úr því fyrir dómstólum hvort skilyrði fyrir ákvörðun skv. 1. mgr. séu til staðar og hvort grundvöllur sé fyrir að framfylgja ákvörðuninni. Lögreglan skal leiðbeina útlendingi sem hefur verið skyldaður til þess að tilkynna sig eða dveljast á ákveðnum stað um þennan rétt. Um slíka meðferð máls vísast til XV. kafla laga um meðferð sakamála.
         Fyrirmæli skv. c-lið 1. mgr. er því aðeins heimilt að gefa að ástæða sé til að ætla að útlendingur muni koma sér undan því að ákvörðun um brottvísun verði framfylgt, sbr. 3. mgr. 105. gr. Fyrirmælin gilda ekki lengur en í fjórar vikur nema útlendingurinn samþykki eða dómari ákveði það samkvæmt reglum um meðferð sakamála.
         Ráðherra er heimilt að setja í reglugerð nánari ákvæði um framkvæmd þessarar greinar.

    115. gr.

    Handtaka og gæsluvarðhald.

         Heimilt er að handtaka útlending og færa í gæsluvarðhald ef:

      • ekki liggur fyrir hver útlendingurinn er, útlendingurinn neitar að gefa upp hver hann er eða ef rökstuddur grunur er um að hann gefi rangar upplýsingar um hver hann er,

      • útlendingur sýnir af sér hegðun sem gefur til kynna að hann ógni allsherjarreglu, öryggi ríkisins eða almannahagsmunum,

      • útlendingurinn hefur ekki sinnt kröfu um tilkynningarskyldu eða skyldu til dvalar á ákveðnum stað skv. 114. gr. og mál hans er enn til meðferðar hjá stjórnvöldum,

      • endanleg ákvörðun hefur verið tekin um brottvísun, réttaráhrifum hefur ekki verið frestað og tilgangur handtöku er að flytja útlendinginn úr landi; skilyrði er að brottvísunin sé vegna brots og út frá aðstæðum útlendingsins megi telja líkur til að hann fremji frekari brot,

      • útlendingurinn er á íslenskum flugvelli og ætlunin er að senda hann úr landi,

      • útlendingurinn telst ógn við þjóðaröryggi að mati lögreglu, sbr. 2. mgr. 26. gr., og ætlunin er að senda hann úr landi,

      • nauðsynlegt þykir til að tryggja framkvæmd ákvörðunar um að útlendingur skuli yfirgefa landið og þegar mál sem getur leitt til slíkrar ákvörðunar er til meðferðar,

      • útlendingur gerir ekki það sem nauðsynlegt er til að afla sér ferðaskilríkja, sbr. 5. mgr. 104. gr., og tilgangurinn er að færa útlendinginn fyrir fulltrúa þess lands sem við á í því skyni að fá útgefin ferðaskilríki.


           Ekki skal beita þessu ákvæði ef tilkynningarskylda eða krafa um að dveljast á ákveðnum stað skv. 114. gr. er talin nægjanleg til að ná því markmiði sem að er stefnt.
           Þegar þvingunarúrræði skv. d-, e-, g- eða h-lið 1. mgr. er beitt skal gæsluvarðhald ekki ákveðið lengra en tvær vikur. Gæsluvarðhald samkvæmt þessum liðum má því aðeins framlengja að útlendingurinn fari ekki sjálfviljugur úr landi og líkur séu á að hann muni annars koma sér undan framkvæmd ákvörðunar, sbr. 3. mgr. 105. gr. Er þá heimilt að framlengja gæsluvarðhald í allt að tvær vikur en þó ekki oftar en tvisvar.
           Útlending er hvorki heimilt að handtaka né úrskurða í gæsluvarðhald ef það með hliðsjón af eðli máls og atvikum að öðru leyti mundi fela í sér ósanngjarna ráðstöfun eða fullnægjandi er að útlendingurinn sæti þess í stað öðrum vægari úrræðum þessa kafla.
           Umsækjanda um alþjóðlega vernd, sem er yngri en 18 ára en eldri en 15 ára, er þá aðeins heimilt að úrskurða í gæsluvarðhald þegar hann hefur sýnt af sér hegðun sem gefur til kynna að hann ógni allsherjarreglu, öryggi ríkisins eða almannahagsmunum. Úrræði þessu skal einungis beitt þegar önnur vægari úrræði samkvæmt lögum þessum eða sem mælt er fyrir um í barnaverndarlögum koma ekki til greina eða ná ekki því markmiði sem að er stefnt. Við beitingu þessa ákvæðis skal ávallt taka tillit til aldurs umsækjanda og þarfa hans hverju sinni.
           Lög um meðferð sakamála gilda um handtöku og gæsluvarðhald samkvæmt þessari grein, eftir því sem við á.

      Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 23.10.2016 kl. 21:02

      2 Smámynd: Halldór Jónsson

      Eg er ekki að tala um útlendingalögin heldur lög sem voru samþykkt í þinglok til bráðabirgða og gilda til áramóta

      Halldór Jónsson, 23.10.2016 kl. 22:59

      Bæta við athugasemd

      Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

      Höfundur

      Halldór Jónsson
      Halldór Jónsson

      verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

      -ekki góður í neinu af þessu-

      Heimsóknir

      Flettingar

      • Í dag (24.4.): 11
      • Sl. sólarhring: 12
      • Sl. viku: 59
      • Frá upphafi: 3418210

      Annað

      • Innlit í dag: 11
      • Innlit sl. viku: 59
      • Gestir í dag: 11
      • IP-tölur í dag: 11

      Uppfært á 3 mín. fresti.
      Skýringar

      Eldri færslur

      Innskráning

      Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

      Hafðu samband