Leita í fréttum mbl.is

33% afstöðutaka

Jóns Þórs Ólafssonar efsta manns Pírata við atkvæðagreiðslur um mála á Alþingi koma mér á óvart. En Staksteinar Morgunblaðsins flytja frétt um þetta.

"Atkvæðaskrá Jóns Þórs Ólafssonar á árunum 2013-2015 má hins vegar finna á vef Alþingis og hún er svona:  Já: 331 sinnum. Nei: 95 sinnum. Greiðir ekki atkvæði: 1285 sinnum.  Fjarverandi: 219 sinnum.  Jón Þór treysti sér ekki til að taka afstöðu til mála í 67% tilvika.“

Jón þessi hefur ráð undir rifi hverju í umræðuþáttum og flytur sitt mál af ákefð og festu.

Eftir þessa frammistöðu á alþingi hætti Jón skyndilega þingmennsku og fór í malbikið aftur. Líklega hefur honum fundist það skemmtilegra og lái ég honum það í raun ekki eftir að hafa horft á marga þingfundi og hlustað á speki stjórnarandstöðunnar um fundarstjórn forseta.

Þessum manni á ég að treysta sem efsta manni Pírata í SV-kjördæmi. Mun hann fara á Alþingi eða fer hann frekar í malbikið með vorinu?

Eða mun hann mæta í 33 % tilvika?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Már Elíson

Halldór, - Þú hefur lagst í mikla vinnu við að reyna að sverta einn ákveðinn einstakling í þessu bloggi þínu núna. - Hefurðu þessa statík yfir fleiri menn (og konur) og þá úr t.d. úr herbúðum þínum ? - Eða er þetta venjulegt flokksbundið einelti ? - Svo má einnig velta því fyrir sér hvað þú fáir út úr þessu að taka niður einn einstakling. - Þú svarar því bara fyrir þig. En lítilmannlegt er það, það verður að segjast.

Már Elíson, 24.10.2016 kl. 10:08

2 identicon

Heill og sæll Halldór. Nú þegar nokkrir dagar eru til kosninga er því miður  ekkert púður í blogginu hjá þer. Nú ríður á að hafa skrifin kjarnyrt og kröftug. Það á ekki að eyða hugsanakrafti í einn ´pírata.  Það hlýtur að vera nóg í skúffunni þinni, t.d.hvernig núverandi mentamálaráðherra hefur hlaðið undir RÚV.  Í skjóli mentamálaráðherra hafa undirróðursöfl allt þetta kjörtímabil hreiðrað úm sig. Áróðurs meistarar RÚV gátu meira segja stjórnað því her var kosinn forseti. Með þöggun áróðursmeistara RÚV er ekkkert sagt um ástand mála, t.d varðandi hælisleitendur og flóttafólk í nágrannalöndum okkar sem við ættum að fá glöggar fréttir frá, heldur er dengt yfir okkur fréttum frá Írak og ´Sýrlandi

ATH. Rúv er með tvo aðalfréttatíma.  Sá fyrri KL12:20 stendur yfir í 10. mín. Seinni aðalfréttatími sem er kl.18:00stendur yfir í 10-12 mín.

Halldór kafaðu betur í skúffuna. 

Eðvarð Lárus Árnason (IP-tala skráð) 24.10.2016 kl. 14:06

3 Smámynd: Jón Valur Jensson

Halldór, þú stendur þig alveg prýðilega, og láttu ekki meðhaldsmenn vinstrivillinga rugla þig í ríminu.

Vitaskuld er það fréttnæmt, að sá, sem maður taldi langskástan pírata, hefur ekki staðið sig ekki betur í þingstörfum en þetta. Að svo lítið hafi farið fyrir afstöðutöku þessa flokks þeirra fram undir það síðasta, er þá trúlega engin tilviljun -- þurfa kannski að bæta valkvíða við verkefnin hjá yfirsálfræðingi flokksins.

Jón Valur Jensson, 24.10.2016 kl. 20:24

4 Smámynd: Jón Valur Jensson

... hefur ekki staðið sig betur ...

átti að standa þarna.

Jón Valur Jensson, 24.10.2016 kl. 20:25

6 Smámynd: Halldór Jónsson

Nei ég get ekki séð að ég sé með neitt einelti á Jón Þór.

Halldór Jónsson, 24.10.2016 kl. 21:17

7 Smámynd: Halldór Jónsson

Eddi vinur, maður er orðinn geldur

Halldór Jónsson, 24.10.2016 kl. 21:18

8 Smámynd: Halldór Jónsson

Jón minn Valur, takk fyrir stuðninginn eins og fyrr.

Halldór Jónsson, 24.10.2016 kl. 21:19

9 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk fyrir stuðninginn Jón vinur Valur

Halldór Jónsson, 24.10.2016 kl. 21:59

10 Smámynd: Már Elíson

Nú líkar mér við þig Halldór - Það er sem sagt hægt að velja úr. Þá er bara að velja það sem er ekki samflokka manni. Gott mál. - þetta leysir gátuna, og hafðu þökk fyrir.

Jón Valur einkavinur þarf ekki að svara þessu, takk.

Már Elíson, 24.10.2016 kl. 22:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 3417956

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband