Leita í fréttum mbl.is

Skilaboð frá Bjarna

til þín sem kjósanda eru þessi:

"Í dag göngum við að kjörborðinu til þess að hafa áhrif á það hvert leið okkar Íslendinga liggur næstu fjögur ár.

Við tókum við erfiðu búi vorið 2013 – atvinnulífið í járnum og efnahagslífið í lægð – en við náðum að snúa taflinu við. Okkur Íslendingum auðnaðist að vinna okkur út úr vandanum.

Í dag er fleira fólk í vinnu á Íslandi en nokkru sinni í sögunni. Atvinnuþátttakan hefur aldrei verið meiri, atvinnuleysi í lágmarki, verðbólgan innan markmiða og kaupmáttur launa er meiri en nokkru sinni.

Við náðum að binda enda á hallarekstur ríkisins og höfum greitt niður skuldir.

Á sama tíma höfum við lækkað skatta og örvað atvinnulífið.

Við skákuðum kröfuhöfunum og losuðum höftin og hagvöxtur er sá næstmesti í Vestur-Evrópu. Það er ekki slæmt á þremur og hálfu ári.

Við erum á réttri leið og ef við höldum áfram á þeirri braut eftir kosningar eru okkur allir vegir færir, og við blasir stöð ug og örugg framtíð þar sem lífskjör allra munu batna.

Það gerist ekki af sjálfu sér, við þurfum að sjá til þess í kjörklefanum í dag. Það gerum við aðeins með því að kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Án hans verður ekki mynduð frjálslynd, borgaraleg ríkisstjórn á Íslandi, með staðfestu við stjórn efnahagsmála.

Því það sem Ísland þarf á að halda er stöðugleiki í stjórnmálum og styrk efnahagsstjórn.

Á þeim grunni byggjum við heilbrigðiskerfi í fremstu röð, menntakerfi sem undirbýr unga fólkið fyrir lífið, nýsköpun sem fjölgar tækifærunum og hagsæld sem tryggir mannsæmandi kjör eldri borgara.

Kosningabaráttunni lýkur ekki fyrr en síðasta kjörstað verður lokað í kvöld.

Ég hvet alla Íslendinga til þess að standa vörð um efnahagsárangurinn og hafna þeim flokkum, sem vilja setja hann í uppnám og óvissu.

Valið stendur á milli þess að taka u-beygju eða halda saman áfram á réttri leið.

Veljum leiðina fram á við"

Er einhverju við þetta að bæta?

Þá skulum við reyna að sækja fram með Sjálfstæðisflokknum á næsta kjörtímabili.

Það eru skilaboðin frá Bjarna Benediktssyni.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heill og sæll Halldór.  Það tilkynnist hér með að valkvíða mínum lauk þegar ég gekk blaðbeittur út úr kjörklefanum og hugsaði um leið að nú hefði ég gert það sem gerði áður, þegar ég var mikið yngri. Ég kaus Sjálfstæðisflokkinn. Með þessu atkvæði mínu finnst mér að ég hafi lagt lóð á vogaskálina til þess landið okkar verði ekki ESB sinnum að bráð.  Sjálfstæðisflokkurinn þarf nú að leggja fram  afl sitt  og styrkja landamæri Íslands, en þar liggja burðarstólpar landsins undir.  Sjálfstæðisflokkurinn þarf að styrkja löggæslu landsins.  Mér er í minni frá þeim tíma er ég var lögreglumaður hvað fólki létti þegar alvarlegir atburðir höfðu gerst, er við lögreglumenn komum á vettvang. Ég tel að það séu erfiðar stundir hjá fólki sem þarf að bíða lengi eftir hjálp,  er alvarlegir atburðir höfðu gerst.  Við veitum flokknum leiðsögn saman Halldór.  Bkv.

Eðvarð Lárus Árnason (IP-tala skráð) 29.10.2016 kl. 14:51

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Bravó gamli vinur Eddi

Þú hefur komist að þeirri niðurstöðu að við náum betri árangri með að leggja saman kraftana.

Einn maður getur kannski ekki velt bjargi, en 100 menn saman leika sér að því.

Það er stjórnmálaflokkurinn sem þannig vinnur.

Sumir óþroskaðir halda að allt byggist á einstaka sólóspilurum eins og Birgittu eða Smára McCharty. En það er bara ekki þannig.

Við verðurm að takast á innan flokksins og halda okkar sjónarmiðum fram Ef við vinnum meirihluta á okkar band verður það stefna flokksins.

Það eru engir flokkseigendur sem öllu ráða, það er bara meirihlutinn sem getur komist að skynsamlegri niðurstöðu. Kannski meira að segja vitlausri niðurstöðu því allt orkar tvímælis þá gert er.

Ég er 100 % sammála þér sem þú segir um landamærin og löggæsluna. Það eru hinsvegar nóg af fíflum innan flokksins sem fara í hina áttina. Þetta er góða fólkið og allskyns sérvitringar. Við verðum að takast á við þetta fólk og kaffæra það.

Halldór Jónsson, 29.10.2016 kl. 18:08

3 Smámynd: Rafn Guðmundsson

æi - er bjarni b til nokkurs nýtur en kökuskreytinga (sem er auðvita flott starf).

Rafn Guðmundsson, 29.10.2016 kl. 23:41

4 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Bjarni með stórum staf hefur hæfileikana og Íslendingar treysta á hann.

Helga Kristjánsdóttir, 30.10.2016 kl. 04:01

5 Smámynd: Kristmann Magnússon

Þetta virðist ætla að verða stórsigur fyrir Bjarna enda á hann það verulega skilið

Kristmann Magnússon, 30.10.2016 kl. 04:07

6 Smámynd: Halldór Jónsson

það er gott að heyra þetta frá þér Mannsi gamle ven og fellow Cand-Is eins og pabbi hans Bjarna og svo hún dóttir mín Karen Elísabet sem er núna varaþingmaður hér í Kraganum.

Halldór Jónsson, 30.10.2016 kl. 15:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 3417956

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband