Leita í fréttum mbl.is

Barnaskapur

Íslendinga gagnvart Islam birtist daglega. Því er haldið að okkur að Islam og Islamismi sér tvennt ólíkt. Það er ekki svo að miklu leyti.

Jón Magnússon veltir þessu fyrir sér á bloggi sínu. Hann segir m.a.:

"Stjórnmálaleiðtogar í vestrænum ríkjum með Obama forseta og Merkel kanslara í forsvari hafa í kjölfar hryðjuverka sem framin eru af Íslamistum sagt:

"Þetta hefur ekkert með Íslam að gera"

 

 

"... Þeir sem halda öðru fram eru sagðir, Íslamófópar, öfgafólk, rasistar, nýrasistar o.s.frv...

 

Nú hefur erkisbiskupinn af Kantaraborg æðsti leiðtogi bresku biskupakirkjunnar stigið fram og tekið afstöðu gegn þessu Óbamíska rugli. Í ræðu sem hann hélt í Frakklandi þegar hann var sæmdur titli heiðursdoktors sagði hann m.a.:

"Ísil er ekki aðskilið frá Íslam"

Greinilega finnst erkibiskupnum nóg komið af afneitun stjórnmálaleiðtoga, fréttaelítunnar og kollega sinna.

Erkibiskupinn segir að yfirlýsingar um að hryðjuverk Ísil hafi ekkert að gera með með Íslam skaði viðleitni til að takast á við og berjast gegn öfgunum. Hann segir líka að trúarleiðtogar allra trúarbragða verði að kveða sér hljóðs og taka ábyrgð á hryðjuverkum öfgafólks sem segist aðhyllast trú þeirra og fólk verði að vita hvað um sé að ræða annars geti það aldrei barist gegn þessari hugmyndafræði hatursins með áhrifaríkum hætti.

 

Hryðjuverkaárásirnar í Evrópu sýndu að það væri brýn nauðsyn til að fólk aflaði sér þekkingar á trúarbrögðum og hryðjuverkin mætti ekki meðhöndla eingöngu sem öryggismál því þá yrði illmögulegt eða ómögulegt að sigra þessa óværu. Trúarleiðtogar allra trúarbragða yrðu að standa upp og taka ábyrgð á trúarsystkinum sínum hvar svo sem þau fremdu hryðjuverk.

 Erkibiskupinn sagði líka að það væri tími til kominn fyrir Evrópuríki að finna á ný kristilegar rætur menningar sinnar.."

Það er svo kaldhæðni örlaganna að á sama tíma og erkibiskupinn vekur máls á þessum staðreyndum skuli vestræna fréttaelítan fara hamförum gegn Michael Flynn hershöfðingja sem Donald Trump hefur skipað til að vera þjóðaröryggisráðgjafa og Stephen Bannon sem Trump hefur valið sem aðalstjórnmálaráðgjafa sína, vegna þess að þeir hafa varað við öfgaíslam á sömu forsendum og Welby erkibiskup í Kantaraborg gerði í ræðu sinni.

Það er mál til komið að fólk á Vesturlöndum átti sig á að það á í baráttu við pólitíska hugmyndafræði þar sem öfga-Íslam er, sem er ekki síður hættuleg heildarhyggja í fullri andstöðu við einstaklingshyggju,  en nokkru sinni kommúnisminn og fasisminn.

Welby, Flynn og Bannon átta sig á því sem betur fer. En hér á landi fljóta stjórnmálaleiðtogar og kirkjuleiðtogar sofandi að feigðarósi og engin þeirra tekur upp virka baráttu fyrir skynsemi í innflytjenda- og öryggismálum þjóðarinnar. Þannig getur það ekki gengið lengur ."

Það er mikil áhætta sem íslenskt samfélag tekur  þegar það flytur hingað inn í stórauknum mæli múhameðstrúarfólk. Þetta fólk rennur saman í söfnuði þar sem Íslendingar skilja ekki hvað prédikað er. Þetta fólk svarar engu um það hvort það muni virða íslensk lög og siði umfram sharía lög.

Það er skelfilegt til þess að vita að ekkert íslenskt stjórnmálaafl fæst til að ræða hættuna af Islam heldur yfirgnæfa háværir hópar fólks  sem allt þykist vita alla umræðu. Það hreytir ónefnum í alla sem eru á öndverðri skoðun án þess að nokkur rök fylgi. Og sem verra er, það virðist einrátt um framkæmd útlendingamála.

Þjóðernisstefna Íslendinga byggist því miður fremur á barnaskap en rökhugsun, hvað þá föðurlandsást.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Halldór - sem og aðrir gestir, þínir !

Halldór !

Gott: og vel.

Þakka þér fyrir - þessa vönduðu samantekt:: sem og ágætar tilvísanir til greinar Jóns Magnússonar, af hans síðu.

En, .......................... mér finnst ekki ganga, að þú skulir sýna þeim flokki, sem þú hefir fylgt áratugunum saman að málum órofa tryggð, sem fylgispekt:: stjórnmálaflokki, sem ásamt hinum 6, sem sæti eiga á nýkjörnu þingi, sem ENGU vilja breyta, til frekari hindrunar á áframhaldandi aðstreymi þessa rumpu- lýðs (Múhameðstrúarmanna), hingað til lands.

Eða: hví, eru konur:: eins og Unnur Brá Konráðsdóttir / Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ásamt slöttungi af ungum Heimdellingum og SUSurum, ekki rekin úr flokknum, t.d. ?

Allt saman lið: sem bugtar sig og beygir, fyrir slöttólfum eins og Salmanni Tamimi / Sverri Agnarssyni og Ahmed Taha Saddeeq, helztu erindrekum Saúdí- Araba og vina þeirra, hérlendis, sem löngu er ljóst / og kunnugt, á alla vegu.

Þarf ekki - að gæta nokkurrar samkvæmni, í efnistökum þínum, fornvinur góður ?

Með beztu Hvítliða / sem og Kúómingtang kveðjum (Chiangs Kai- shek), af Suðurlandi /    

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 27.11.2016 kl. 13:10

2 identicon

.... og, vart líður sú vikan, að ekki séu þrammaðar all- fjölmennar mótmælagöngur, í : Ungverjalandi - Póllandi - Slóvakíu og Tékklandi t.d., gegn aðstreymi Múhameðsku gerpanna, inn í Evrópu / sem víðar.

Meira að segja: Austurríkismenn og Svíar, eru farnir að rumska til frekari vitundar, gagnvart Mið- Austurlanda óskapnaðinum.

Fjöldi myndskeiða (á Youtube og víðar): af mótmælagöngum víðs vegar að, fer einungis vaxandi, í hlutfalli við átroðzlu innrásar liðsins, sunnan að - sem austan.

Tími til kominn - að Íslendingar fari einnig að vakna til betri vitundar um það, sem í vændum er hérlendis / að óbreyttu ! 

Austur í Búrma: eru Múhameðskir reknir umvifalaust, í ríkum mæli, yfir til Bngladesh / og suður í Afríku sýna Angólamenn t.d., þann dug og þrótt, AÐ BANNA iðkun kreddunar frá Mekku, þarlendis !

ÓHH

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 27.11.2016 kl. 16:19

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Óskar, þú ferð í flokk til að vinna þínnum skoðunum fylgi. Þú hefðir aldrei fengið öllu að ráða í Kuomintang.Þú hefðir þurft að ná eyrum Chang Kai Chek og fá hann til að hlusta á þig. Það er það sem við erum að gera í Sjálfstæðisflokknum  að reyna að fá sjónarmið okkar fram.

Það er bara ekki Áslaug Arna og Ummur Brá sem ráða í Sjálfstæðisflokknum þó þær hafi komist upp með ofbeldi og skoðankúgun tímabundið á síðasta Landsfundi. Það er geymt en ekki gleymt og þær munu verða minntar á það þótt síðar verði og menn munu vara sig á svona liði og töktum eins og þær sýndu þar.

Flóttamanna- hælisleitendamálin verða neydd inní dagskrána strax og ekkert gefið eftir vonandi ef ekki verða allir heilbrigðir útdauðir í flokknum.

Halldór Jónsson, 27.11.2016 kl. 17:05

4 identicon

Sæll á ný - Halldór !

Nei: satt er það / og fjarri fer því, að Chiang heitinn (1887 - 1975) hefði gefið mér lausan tauminn, umfram öðrum: þar, innanborðs, Verkfræðingur vísi.

Hins vegar - fagna ég því, að hafa vakið þig, til enn frekari umhugsunar um þá ógn, sem að Siðmenningunni steðjar Halldór minn, og hefir þú nú aldrei dottað á þinni varðstöðu vakt hingað til svo sem, fornvinur mæti.

En: hvetja vil ég ykkur Sjálfstæðismenn, sem ENNÞÁ eru trúir frumkvöðlunum, undir leiðsögn Jóns heitins Þorlákssonar collega þíns, frá 1929:: til þess að skúbba Unnar Brár og Örnu gengjunum, út úr flokks starfseminni.

Bjarni Benediktsson: ætti að fá fría ferð með þeim / maður: sem hefir ekkert sýnt nema gagnsleysi - sem OFURSKATTA töku af almenningi (a.m.k. 80 - 85%, í beinum og óbeinum), eins og Steingrímur J. og aðrir ámóta honum - hingað til !

Þá - færi að rofa almennilega til, í ykkar búðum, að nokkru !

Ekki síðri kveðjur - hinum fyrri / 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 27.11.2016 kl. 17:23

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Óskar minn Helgi fornvinur góði

Vertu nú aðeins sanngjarn. Bjarni er ekki alvondur. Hann er búinn að gera margt jákvætt ein sog í tollamálunum og vörugjöldunum sem þú hlýtur að viðurkenna sem bísnessmaður að voru til bóta. Jón Þorláksson var yfirburðamaður í öllu sem hann tók sér fyrir hendur og megi minning hans aldrei gleymast.

Hugsaðu þér Óskar Helgi , að sjálfstæðisstefnan sem hann og hans fólk settu fram er enn í gildi frá 1929 og hefur aldrei þurft að breyta einum staf í henni meðan íslenskir kommúnistar eru búnir að mála í það minnsta í þrígang yfir nafn og númer eins og breskir landhelgisbrjótar gerðu og hlaupa frá allri  sinni fyrri sannfæringu.

Sjálfstæðisflokkurinn er kjölfestan í íslenskum stjórnmálum. Ég vona að flokknum takist að rata rétta leið í stjórnarmyndun. Því miður er ég ekki kátur yfir þeim fréttum sem berast í kvöld. Ég treysti bara ekki lukkuriddurm eða ESB sinnum.

Halldór Jónsson, 27.11.2016 kl. 17:47

6 identicon

Sæll: sem jafnan - Halldór !

Því miður - þarf stærri mann í sniðum, en Bjarna Benediktsson til, að ná fram endurbótum / sem upphaflegum stefnumiðum flokksins, sem þeir Jón Þorláksson lögðu upp með, árið 1929.

Kannski: er verðugur arftaki Jóns Þorlákssonar ekki fæddur enn, þó þetta langt sé liðið á II. áratug, 21. aldar.

Þér: að segja, Halldór.

Og - ekki hvað sízt, í ljósi þeirrar staðreyndar, að fæst þessa yngra fólks, sem nú vélar um völd og áhrif hafa fengið að kynnast því Veraldarvolki sem við náðum þó Halldór / þú þó sýnu meir en ég, sökum aldursmunar okkar beggja: eðli lega.

Það er lágmarkið: að ungliðarnir þekki eykta mörkin / sem og mun Þorsks og Keilu - eða Lambhrúts og Nautkálfs.

Um þau atriði - ættum við þó að geta verið sammála, Verk fræðingur góður: líkast til.

Um Kommúnista skrattana: sem aðra þeim ámóta, þurfum við sem betur fer ekki í þessu samhengi, nein einustu orð að hafa, svo sem. 

Með beztu kveðjum - sem öðrum, og áður /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 27.11.2016 kl. 21:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 61
  • Frá upphafi: 3418164

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 57
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband