Leita í fréttum mbl.is

Gömul vísa endurkveðin

er þessi sem hér fylgir. Ég held að ekkert það hafi breyst sem gerir hana úrelta. Þess vegna  læt ég hana flakka hér í trausti þess að einhver hafi ekki lesið hana áður: 

"Sá sem fer í Perluna og spókar sig á útsýnispöllunum á fögrum degi getur auðveldlega orðið fyrir hughrifum af tign og kyrrð Vatnsmýrarsvæðisins. Þarna blasir við fegurð himinsins, vídd sjóndeildarhringsins og að miklu leyti ósnortin náttúra, sem flugvöllurinn gamli og góði hefur verndað í meira en hálfa öld með nærveru sinni.

 

Margir hafa horn í síðu flugvallarins og sjá fyrir sér miklar byggingar á öllu þessu svæði. Það er í raun auðvelt að sjá þessar breytingar fyrir sér af þessum sjónarhóli. Bæta síðan umferðargnýnum við þögnina í eyrunum og blanda svo brælunni frá bílunum við litina frá Snæfellsjökli fyrir sínum innri augum.  Fyrir mitt leyti kem ég ekki auga á þær dásemdir, sem þessi skipti eiga að færa mannfólkinu. Varla hefur  Jóhannes Kjarval haft þær myndir í huga  þegar honum vitraðist það, að  norðurljósin gætu nálgast fætur mannanna  einmitt þarna í Öskjuhlið.

 

Eftir alla þá miklu talnaturna, sem reistir voru um söluhagnað lóða á flugvallarsvæðinu, gáfu menn umhugsunarlaust lungann úr svæðinu endurgjaldslaust til Háskólans Í Reykjavík. Þetta gerðist eftir að Garðabær vildi bjóða skólanum til sín. Yfirtromp R-listans sáluga sem Háskólinn þáði.

 

Sagt var eitt sinn, að bókvitið verði ekki í askana látið. Víst er að ekki mun þetta háskólasvæði  gefa af sér neinar tekjur  í borgarsjóð.   Það mun hinsvegar færa umhverfið úr lagi  og valda óafturkræfum spjöllum á Vatnsmýrinni og flugvellinum.

 

Allt er þetta óþarfi. Það eru margir staðir sem eru heppilegri fyrir Háskólann í Reykjavík en þarna suður af Beneventum í kallfæri við Háskóla Íslands. Umferðarmálin frá þeim Háskóla eru ennþá óleyst . Vandamálin munu aukast til muna með umferð frá nýju  Hátæknisjúkrahúsi, nýrri Samgöngumiðstöð og svo síðast frá Háskólanum í Reykjavík. Þvílíka hugljómun getur ekki sett að venjulegum vegfaranda á Hringbraut seinnipart dags ?

 

Ríkið á mikið land við Keldur. Það eru falleg svæði norður af Rauðavatni, við Rauðhóla, Reynisvatn  og svo má telja. Víðast hvar  í heiminum eru háskólar að flytja útfyrir bæina.  Til dæmis er minn gamli skóli í miðri Stuttgart löngu farinn útí sveit.

 

Höfuðborgin þarfnast flugvallarins. Hvaða borg á sambærilegan “City Airport”  með  sjávarbakka á tvær hliðar ?  Reykjavíkurflugvöll  á að efla og auka flug frá honum. Samgöngur eru undirstaða efnahagslífs allra þjóða, það gerði Daríos Persakóngur sér ljóst fyrir margt löngu. Flugumferð er mun fyrirferðarminni en bifreiðafjöldinn og mengar minna. Eldgos á Hellisheiði eða á Reykjanesi gætu líka skyndilega kallað á flugsamgöngur frá  höfuðborgarsvæðinu.  Hraunin þar runnu aðeins á gærdegi  jarðsögunnar.

 

Njótum samvista við víddina , fegurðina og flugvöllinn.  Eiturspúandi blikkbeljur og magnþrungnir steypuklumpar eru ekki því fegurri sem fleiri koma saman. Dreifð byggð er betri byggð og  barnvænni en Barafjöld.  Mannfólkið þarf  staði þar sem  norðurljósin geta fundið fætur þess. 

 

Verndum Vatnsmýrina, flugvöllinn,fegurðina  og  fuglana  meðan þess er enn kostur."

Það er búið eð vinna mörg skemmdarverk á Reykjavíkurflugvelli af þeim meirihluta sem hefur helsetið Borgarstjórn Reykjavíkur síðan að íhaldið gerði í buxurnar sínar um árið og sýndi að það var ekki trausts kjósenda vert. Eftirlét R-listanum Borgina sem hefur ekki beðið þess bætur síðan. Og er líklega ekki á leið með að skipta því komma og krataliði sem þar hefur stjórnað síðan.

Gömul vísa um Reykjavíkurflugvöll nær ekki að vekja Borgarbúa til umhugsunar,


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Halldór mundu: Allt flugvallarstæði Reykjavíkurflugvallar er um 1,3%,´já eittkommaþrjú % af byggingarlandi Reykjavíkur. Við að byggja þarna 12 metra djúpa grunna leggjast allar tjarnir þarna af og líka Reykjavýkurtjörn, allt fyrir dýrustu íbúðir sem hægt ef að byggja í borginni. Henta bara fyrir fv. sendiherra og fv ráðuneytisstjóra, fólk ferðast ekki um á reiðhjólum.

Örn Johnson ´43 (IP-tala skráð) 3.12.2016 kl. 21:52

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Athyglisvert og satt félagi Örn

Halldór Jónsson, 4.12.2016 kl. 09:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 3418205

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband