Leita í fréttum mbl.is

Saga af Albana

var mér send af manni sem fer ekki með fleipur.

" Hitti lögregluþjón um daginn sem var að koma frá því að flytja flóttamenn tilbaka til Albaníu ásamt nokkrum öðrum lögreglumönnun. Sagðist lögregluþjónninn hafa gætt og setið hjá manni í flugvélinn á leiðinni út til Albaníu sem kunni sæmilega ensku og hann gat rætt við. Var Albaninn ófeiminn að segja frá því að hann ætti nokkrar íbúðir eða hús í Albaníu, hefði það svo sem ágætt þar, en kom til Íslands með konu og sonum til að prófa kerfið. Þau fengju alla vega frítt uppihald, læknisþjónustu og vasapeninga og synirnir unnu sér líka inn sæmilegan pening á meðan beðið var útskurðar um hælisdvöl fjölskyldunnar! Óvenjulegt "frí" en þess virði að prófa að mati Albanans!"

Við erum búnir að bjóða upp á þetta fyrir tilstilli Unnar Brár, Útlendingalaga og dugleysis Útlendingastofnunar. Hver skyldi hafa borgað fyrir lögregluþjóninn og flugfarið?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Upplifði gleðleg jól með fátækum vinum mínum, hjón með tvö börn, hér í Temeni, Grikklandi. Kann því ekki að meta svona "jólahugleiðingar" Íslendings. Skil ekki Halldór, greindur maður sem stúderaði verkfræði í Stóðgörðum á sínum tíma. Trotzdem, frohe Weihnachten Halldór und ein Gutes Neues Jahr.

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 28.12.2016 kl. 12:53

2 identicon

Sé núna, að ég gat þessi ekki að þessir vinir mínir eru Albanar. Biðst afsökunar.

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 28.12.2016 kl. 13:50

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Danke schön Haukur und gleichfalls meins besten Wünsche.

Ég hef ekki verið að leggja neinn dóm á þessa sögu sem ég fékk frá manni sem er yfir allan efa hafinn í mínum huga. Ég segi bara frá þessu sem staðreynd.

Ég er ekkert á móti því að fólk nýti sér tækifæri sem því bjóðast eins og þessi Albanska fjölskylda gerir. En ég er á frekar á móti því að bjóða upp á veislur á kostnað Íslendinga þegar við höfum gamalt fólk á vergangi hér í höfuðborginni.Finnst það óþarfi að sóa okkar fé í svona og ég geri ráð fyrir því að þú hugsir eitthvað svipað þegar kemur að skattfé þínu.

Ég kem því ekki auga á tenginguna hjá þér við "jólahugleiðingar mínar" og veisluna sem þú hélst á Grikklandi, hvað þá veru  mína í Stóðgörðum. Ég er ekki klár á því hvort þú ert Haukur efnafræðingur frá München eða Karlsruhe eða mun yngri forritari með þessu nafni?

Halldór Jónsson, 28.12.2016 kl. 15:14

4 Smámynd: Valdimar Samúelsson

 Gleðilega hátíð Halldór. Þessi saga er sorgleg en þarna er verið að henda peningum á glæ í frekjufólk sem kallar sig flóttafólk.Þarna stela þau þjónustu  og þar með læknisþjónusta og allt innifalin. Horfandi á svokallað flóttafólk og aðra með fulla matarpoka og þurfa ekki einusinni að sína nein skilríki og það í Apótekum líka.

Það getur engin og þú Haukur það á engin að vera ánægður með að þessi þjóð okkar sé að henda peningum í einhverja þegar hægt er að fæða hundruðin ef ekki þúsundir af sveltandi fólki í þessum heimi.  

Valdimar Samúelsson, 28.12.2016 kl. 16:16

5 identicon

Jú Davíð12 21:39 það hefur víst verið flogið með Albana í lögreglufylgd - þó ekki sé beint til Albaníu.

Skal ekki segja með sannleiksgildi þessarar sögu en ef satt er þá höfum við fullan rétt á að fá að heyra hana án þess að fólk eins og þú sé með einhverjar hártoganir. 

Sigrún Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 28.12.2016 kl. 22:20

6 identicon

http://www.friatider.se/48-spermaflackar-hittade-efter-flyktingarnas-gruppvaldtakt-pa-svenska-tvabarnsmamman

Það versta við tilvistina í dag er, að við vitum hvað er framundan á Íslandi, miðað við þá stefnu sem ríkir í flóttamannamálum á Íslandi í dag. Við eltum svíana, sem hlegið er að út um allan heim fyrir heimsku og barnaskap. Viljið þið vandræði, farið þá fetir svíum í innflitjendamálum og þá sértaklega með "ensmkommandi barn".

valdimar jóhannsson (IP-tala skráð) 29.12.2016 kl. 01:09

7 Smámynd: Jón Þórhallsson

Væri það til bóta að bakka út úr Scheengen?

Hafa þannig fyrirkomulag að útlendingar þyrftu að sækja um vegabréfsáritun í íslenskum sendiráðum erlendis ÁÐUR en að þeir hyggðust koma til landsins; þar sem að þeir þyrftu að gera grein fyrir sínum ferðum til landsins.

=Svo að það þurfi ekki alltaf að vera að leysa vandamálin þegar í óefni er komið?

Jón Þórhallsson, 29.12.2016 kl. 17:01

8 Smámynd: Erla Magna Alexandersdóttir

eg vildi gjarnan fá svona frí- allt frítt ! gæti þá farið til tannlæknis- og fengið klippingu- engir reikningar eða áhyggjur !  HVAÐ ÞARF EG AÐ BÚA LENGI Í ALBANIU TIL AÐ FÁ SVONA FRÍ Á ÍSLANDI ??? ER AÐ KAFNA VEGNA REIKNINGA ???

Erla Magna Alexandersdóttir, 29.12.2016 kl. 19:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 55
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband