Leita í fréttum mbl.is

Af hverju þurfum við nýja stjórn?

Ég kem ekki auga á það.

Þessi stjórn kom fjárlögum í gegn með málamiðlunum sem allir sættu sig við nema komminn hún Katrín sem vildi skattleggja allt og alla upp fyrir rjáfur. Hinir betri þingmenn sáu delluna í henni og felldu tillögurnar hennar.

Af hverju vill Sjálfstæðisflokkurinn framlengja líf þessa óþarfa flokksbrots Viðreisnar með því að mylja undir þá? Ef þeim er haldið úti í kuldanum þá eru þeir dauðir í næstu kosningum. Og mikið ef Píratar verða þá ekki útdauðir líka þar sem kjósendur eru búnir að átta sig á þeim eftir ræðuhöld Smára stærðfræðings og stjórnarmyndunartilraun Birgittu.
 
Mér sýnist minnihlutastjórnin sem nú situr vera að mörgu leyti mjög æskileg stjórn og betri en meirihlutastjórn, því hún þarf að leggja sig fram til að koma góðum málum áfram en getur ekki anað fram með offorsi. Það reynir þess vegna mun meira á hæfileika hennar ráðherra heldur en í öruggri meirihlutastjórn.
 
Eigum við ekki bara að hafa hana áfram? Það verða einhverjir til að verja hana vantrausti ef hún sýnir sig að vera traust og velviljuð.
 
Af hverju þurfum við einhverja aðra stjórn núna þegar ekki er hægt að mynda neina meirihlutastjórn?

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Segðu. Mæltu manna heilastur. Þetta er alveg rétt hjá þér, og ég tek undir þetta. Ég var að hugsa um það í morgun, að það er sífellt verið að tala um, hvað sé hlegið að okkur erlendis og gert grín að okkur þar, en mér finnst það ekki að ástæðulausu svo sem. Hvers vegna ætti fólk erlendis ekki að skopast að þeim, sem vilja endilega fara inn í brennandi og hrynjandi kofaskrifli ESB á sama tíma og aðildarþjóðirnar eru alltaf að velta því fyrir sér, hvernig þeir geti komist þaðan út? Skyldi það ekki skjóta skökku við í augum útlendinga? Ekki spurning. Erlendis yrði spurt, hvort þessir Íslendingar, sem vilja endilega fara inn í ESB þrátt fyrir ástandið á þeim bæ og þá staðreynd, að allir vilja fylgja í kjölfar Breta og fara þaðan út, séu ekki í lagi, eða í hvaða heimi og veruleika þeir lifi eiginlega. Engin furða, þótt fólk erlendis mundi spyrja svo, því að það er greinilegt, að þessir ESB-flokkar eru ekki með á nótunum í Evrópumálum, fjarri því. Það er eins og þeir búi við allt annan veruleika en við hin og hafi enga fjölmiðla til að fylgjast með fréttum í, og lifi eiginlega ennþá á 19. öldinni í þeim efnum. Þeir vilja hvorki, heyra, sjá né skilja, hvað er í gangi innan ESB, vilja heldur ekki vita af því, en halda fast við sinn keip, og það þrátt fyrir, þótt stærsti hluti Íslendinga vilji alls ekkert með ESB hafa og ennþá síður að fara þangað inn. Það virðist ekki koma þeim neitt við eða skipta neinu máli. Ég er ekkert hissa, þótt svona fólk sé aðhlátursefni útlendinga, og þeim finnist það eitthvað klikk. ESB-vitleysan er nóg til að ætla, að svo sé. Haldið það sé nú! Varðandi ríkisstjórnina, sem situr nú sem starfstjórn, þá finnst mér það leiðinlegt, að hún skuli ekki hafa fengið meirihlutaatkvæði, og fólk skuli ekki hafa séð sóma sinn í því að launa henni vel, það sem hún hefur gert til þessa til hagsbóta fyrir landsmenn. Að vísu má alltaf deila um sum mál, en þegar á heildina er litið, þá hefur hún staðið sig vel, og einstaka ráðherrar, eins og Bjarni og Lilja hafa verið einstaklega góðir ráðherrar. Sigurður Ingi hefur komist vel frá sínu sem forsætisráðherra líka. Það er ekki yfir neinu að kvarta, og því finnst mér alveg óþarfi að skipta þessarri stjórn út. Henni hefur líka tekist vel upp sem starfstjórn, og þess vegna ætti hún að sitja áfram, og kjósa síðan aftur í vor, og láta þær kosningar fara fram þá, sem með réttu hefðu átt að fara fram þá, ef þessi frekjulýður í stjórnarandstöðunni hefðu ekki heimtað kosningar strax. Þeir hafa líka farið flatt á þeirri kröfu sinni heldur betur, eins og sýndi sig á útkomunni. Sú niðurstaða verður ítrekuð enn frekar á næsta ári. Fólk vill ekki veruleikafirrta ESB-flokka, eða neitt Reykjavíkurrugl í landsstjórnina. Mál er að linni svoleiðis vitleysu. Málið er: Starfstjórnina áfram og kosningar í vor! Það á að vera krafa allra í dag, svo að hægt sé að koma á starfshæfri stjórn álíka þeirri og starfstjórnin var í upphafi. Svo einfalt er það mál.

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 29.12.2016 kl. 14:57

2 Smámynd: Elle_

Það vantar bara alls ekki nýja ríkisstjórn. Við erum ekki á neinni heljarþröm að ég viti.

Elle_, 29.12.2016 kl. 21:49

3 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Það sem vantar eru kosningar og þangað til er heppilegast og ódýrast að nota þá stjórn sem við höfum núna. 

En því miður þá virðist forsetinn ekki skilja þetta og tönglast á því dag eftir dag að hann vilji sjá ríkisstjórn á morgun, næsta dag eða hindagin eða eftir jól. 

Hann er heppinn vesalings maðurinn að Íslendingar eru umburðarlyndir.    

Hrólfur Þ Hraundal, 29.12.2016 kl. 22:58

4 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Akkurat Hrólfur forsetinn veit hvers er vænsts af honum.Varla heppni að hann komast upp með einskonar þjófstart.

Helga Kristjánsdóttir, 30.12.2016 kl. 00:29

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Það eru líka hugsanlega einhver leikrit í gangi sem liggja ekki í augum uppi.

Halldór Jónsson, 30.12.2016 kl. 08:19

6 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Þess er auðvita vænst að niðurstaða kosninga sé fyrsta flokks en það gerist aldrei á Íslandi. Venjulega fáum við annars flokks og stundum þriðjaflokks  niðurstöðu og magn hrossakaupa í samræmi við það.  

Niðurstaða haust kosninganna  var og er ónýt, náði ekki einu sinni að vera þriðjaflokks og úr þessháttar dóti verður ekkert smíðað sem gagnast getur ærlegum. En hrossaprangarar hafa náttúrulega bara sína hagsmunni að leiðarljósi svo sem dómar og umsagnir þar um sanna. 

Það er merkilegt að engum þingmanni, engum ráðherra, engri ríkisstjórn,  hafi hugkvæmst að gefa kjósendum betri möguleika til að ráða því hverjir fari með völd eftir kosningar.  

Hrólfur Þ Hraundal, 30.12.2016 kl. 09:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 61
  • Frá upphafi: 3418164

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 57
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband