Leita í fréttum mbl.is

Þá hefur kommatittunum

og vinstragenginu loks tekist langt ætlunarverk sitt sem er að ófrægja Davíð Oddsson og öll hans verk og Sjálfstæðismanna  sem mest.

Viðleitnin byrjaði hjá R-listanum og Ingibjörgu Sólrúnu sem byrjaði að fjandskapast við minningu Davíðs með öllum ráðum.Þó að hún settist með bestu lyst í ráðhúsið sem hann reisti tókst henni ekki að eyðileggja Perluna til fulls. Í ráðhúsið hafa kommatittirnir æ síðan mokað inn metfjölda starfsmanna miðað við öll önnur sveitarfélög án þess að þjónustan við borgarbúana hafi gert annað en að versna ár frá ári.

Í Perlunni hefur Bjarni í Brauðbæ rekið veitingahús á heimsvísu í aldarfjórðung og var hvergi nærri að vilja hætta. Þá tókst þeim gærDegi og Hjalla á hjólinu að flæma hann burt til að koma einhverjum sér þóknanlegum vinstridindlum að til þess að eyðileggja Perluna og telja sig þar með hafa greitt minningu Davíðs það högg sem loks dugir þegar búið er að draga staðinn niður á sjoppuplanið.

Það er eftirsjá í rekstrinum í Perlunni eins og hann hefur verið til algerrar fyrirmyndar og sjá hana dregna niður í svað billegra Lundabúða og bullugangs.

Kommatittunum hefur tekist ætlunarverkið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Ingibjörg Sólrún sú sem hóf niðurlægingar ferli Reykjavíkurborgar  og hélt Borgarnesræður og ætlaði að kaupa sig inn í öryggisráðið og hoppaði í bjögunarbátinn um leið og fyrsta skvettan löðrungaði þjóðarskútunna og skildi Geir Haarde einan eftir í brúnni og á flóttanum frá skylduverkunnum þá henti hún völdum sínum í fang Jóhönnu vitlausu og skapaði okkur í viðbót við það sem gerst hafði fimm hörmungar ár sem okkur vantaði ekkert, því okkur vantaði samstöðu en ekki sundrungu sem er það eina sem Jóhanna vitlausa kann.  

Hrólfur Þ Hraundal, 30.12.2016 kl. 13:09

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Tek heilshugar undir þetta Halldór.

Og bæti við að síladarbræðslu flugþróin í Keflavík er að verða eins. Ekki fæst þar lengur ætur þjóðlega þekkjanlegur biti annar en það algerlega viðbjóðslega heimilislausa rusl sem selt er á hvaða andskotans búllum sem er við gerónýtar harðbrautir Evrópu, þar sem hægt er að aka 1500 km án þess að boðið sé upp á annað en nafnlaust sorp. Hér heima halda menn að þetta sé flott.

Kópavogur ætti að reisa nýjan stað efst á Rjúpnahæð þar sem glaðir og þakklátir Íslendingar geta virt fyrir sér rústir Reykjavíkurborgar úr öruggri fjarlægð, og skálað fyrir öruggum flótta skattgreiðenda úr þeim. Þaðan myndi úthverfi hins ónýta útnára-miðbæjar Reykjavíkurbogar sjást sem dimmur blettur eins og þegar menn virða fyrir sér muninn á Norður-Kóreu og Suður-Kóreu úr flugvél: sem muninn á svörtu og hvítu; lífi og hins vegar dauða.

Þegar útgerðin er farin frá Reykjavík þá geta staurblankir einstæðir erlendir ferðamenn með nestispakka tekið 101 myndir af sjálfum sér úðandi í sig nestispakkanum sem mamma þeirra gerði handa þeim heima í geldingarstöðvum  ESB- og Asíulanda. Vappað þar blankir um, takandi eina mynd af sjálfrum sér, áður en þeir deyja algerlega út.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 30.12.2016 kl. 13:10

3 identicon

Hrólfur ... vitaskuld eru skoðanir manna skiptar á Ingibjörgu Sólrúnu en hafðu hugfast að um svipað leyti og hrunið varð greindist hún með krabbamein og varð að taka sér veikindafrí. Þetta er ekki að "hoppa í björgunarbát" eins og þú orðar það á svo meinfýsislegan hátt.

Hilmar Bjarnason (IP-tala skráð) 30.12.2016 kl. 15:04

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Hilmar, af hverju er Ingibjörgu svona mikil vorkunn vegna krabbameins sæins? Geir Haarde greindist líka með krabbamein á svipuðum tíma en engum fannst ástæða til að taka tillit til þess og hann var dreginn miskunnarlaust fyrir Landsdóm  með velvilja illþýðisins sem að því stóð. Nú eigum við að hylla það sem eftir situr af því á Alþingi.

Halldór Jónsson, 30.12.2016 kl. 16:15

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Gunnar, þú ert alltaf skemmtilegur

Hrólfur, þér bregst ekki minnið frekar en fyrri daginn.Jóhann er einn ofmetnasti einstaklingur sem verið hefur í pólitík. Katrín Jakobs er að sanna sig liðtæka í þann  hóp með hverjum deginum. Síglottið þýðir í rauninni bara að hún getur ekki ákveðið sig með neitt án þess að spyrja Steingrím J. fyrst. Hún hefur eitthvað lítið af eigin sannfæringu sýnist manni nema hækka skatta sem mest á öllu sem hreyfist.

Halldór Jónsson, 30.12.2016 kl. 16:21

6 identicon

Ekki vera svona ferlega steiktur.  Það er hinn eðlilegasti hluti í heimi þegar fólk fær æxli í heila að taka sér frí frá vinnu til að leita lækninga.  Það heitir ekki að hoppa frá borði eða skorast undan ábyrgð ... þetta heitir að fá bata frá illvígum sjúkdómi.  Það er enginn að vorkenna henni eða Geir.  Þetta hlýtur þú að vita sjálfur!

Hilmar Bjarnason (IP-tala skráð) 30.12.2016 kl. 16:40

7 identicon

er þetta ekki bara en eitt dæmið um það hvernig mönnum tekst að klúðra góðu verki fyrri manna. Verkin í tengslum við Icesave og svo ESB benda til þess að það er ekki þjóðarhagur sem þessi hópur heldur á lofti, fyrir utan auðvitað eiginhagsmuni. Davíð má eiga það að hann stóð fast í lappirnar þegar Bretar og Hollendingar vildu kaffæra þessa litlu þjóð í skuldafeni sínu, og fékk hann þó mikið skítkast fyrir það, ísland er merkilegt land

elvar (IP-tala skráð) 30.12.2016 kl. 16:46

8 Smámynd: Halldór Jónsson

Hefur einhver heyrt að múslímar(Saudi Arabar)hafi sýnt áhuga að kaupa Perluna af Reykjavíkurborg fyrir mosku? Peningarnir séu svo miklir að menn kikni í hnjáliðunum.

Halldór Jónsson, 30.12.2016 kl. 17:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 59
  • Frá upphafi: 3418162

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 55
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband