Leita í fréttum mbl.is

Meinvættir

virðast ráða för í þróunarmálum Reykjavíkur. Það er sama hvar niður er borið um það sem til framfara og úrlausna brýnna verkefna heyrir, allstaðar rekast menn á einhverja meinbugi sem borgaryfirvöld láta hindra för. Það virðast allstaðar vera einhverjir meinvættir á ferð sem gera allt ómögulegt nema að gera ekki neitt.

Frá því er skýrt í Morgunblaðinu að Flugfélag Íslands hafi árið 2013 sótt um að fá að gera endurbætur á gömlu bröggunum sem eru notaðir til að afgreiða nærri 2000 manns á dag á Reykjavíkurflugvelli. Félagið hefur boðist til að hafa byggingarnar úr niðurtakanlegum einingum eða á hvern þann hátt sem gæti verið þóknanlegt yfirvöldum. Til þessa dags hafa þeir aðeins verið hunsaðir og ekki einu sinni hvorki fengið hvorki neitanir né vífillengjur, bara þögnina eina.

Hjálmar Sveinsson og Dagur Bergþóruson eru þeir sem með öll reiðhjólavöld í Reykjavík fara. Þetta háttalag er þeim auðvitað líkt. Dagur gefur hinsvegar reglulega yfirlýsingar um að nú ætli hann að láta byggja svo og svo margar félagslegar leiguíbúðir. Nú síðast lét hann dekka fyrir sig borð úti á víðavangi þar sem hann tilkynnti um næstu tugi slíkra bygginga til viðbótar við þær þúsundir sem hann hefur áður lofað. Og þetta var auðvitað myndað í bak og fyrir að hætti Dags. Sumir segjast enn vera að  leita að þessum byggingum öllum en finna víst lítið. Enda víst næsta fátt verið byggt af þessum sífelldu Pótemkíntjöldum Dags Bergþórusonar.

Hinsvegar gengur honum alveg prýðilega að hindra allt sem til framþróunar horfir. Sleppa helst viðhaldi gatna en þrengja aðrar þess meira og standa í vegi fyrir nýjum akreinum fyrir bíla. Sem myndu bara fyllast hvort sem er af fleiri bílum að sögn Hjálmars Sveinssonar reiðhjólasérfræðings í skipulagsmálum Reykjavíkurborgar. Því er betra að gera bara ekki neitt.

En meirihlutinn er víst að bíða eftir nýrri borgarlínu í samstarfi við nýja ríkisstjórn þar sem fyrrum félagi þeirra situr.  Stefnan er því bara að bíða og tala, ekkert byggja né bæta. Það er eiginlega stjórnmálasaga Dags Bergþórusonar í hnotskurn.Honum tókst meira að segja að tala hið mætasta fólk inná að byggja tugmilljarða flugvöll í stað Reykjavíkurflugvallar beint ofan á einu virkasta eldfjalli landsins í Hvassahrauni. Og ekki heyrðist að hann hafi ætlað að borga mannvirkið af lóðapeningnum sínum úr Vatnsmýri heldur væri það þjóðarinnar.

Auðvitað vill þjóðin að Reykjavíkurflugvöllur sé efldur bættur og byggður upp til frambúðar. það eru blindir menn sem sjá ekki hvílík gullnáma og lífsgæði völlurinn gæti orðið þjóðinni ef honum væri sómi sýndur. Nýr ráðherra Jón Gunnarsson virðist gera sér glögga grein fyrir nauðsyn þessa. En hann á þvílíkum forynjum að mæta hjá Reykjavíkurborg sem bara vilja tala og tala um einhver samkomulög sem eiga það sameiginlegt að verða aldrei gerð né til nokkurs leiða vegna þess neikvæða hugarfars sem að baki býr. 

Allt er þetta hörmungarástand hinsvegar á ábyrgð Halldórs Auðars Pírata Svanssonar sem færði Reykvíkingum þessa kumpána, Hjálmar og Dag, aftur á valdastóla eftir að kjósendur höfðu kosið þá frá. Og endurgjaldið er svo lítið að menn undrar stórlega lítilþægni þessa borgarfulltrúa sem í raun hefur öll þeirra ráð í hendi sér.Hans gerð er ekki meiri en þetta.

Halldór Auðar Svansson er því vafalaust dýrasti borgarfulltrúi sem Reykvíkingar hafa nokkru sinni fengið í töpuðum tækifærum mælt. Heil glötuð fjögur ár í framþróun og lífi Reykjavíkurborgar eru ekki neitt smáræði. Hann heldur þeim meinvættum við völd í Reykjavík í trássi við vilja þjóðarinnar og Borgarbúa flestra sem flesta framþróun hindra.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ef ég man rétt, þá kröfðust herstöðvarandstæðingar, ef ekki Alþýðubandalgið líka, þess í eina tíð að Keflavíkurflugvöllur yrði lagður niður og öllu flugi beint til Reykjavíkurflugvallar.

Hörður Þormar (IP-tala skráð) 15.1.2017 kl. 12:37

2 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Já meinvættir og svo óvættir sem ekki verður grandað nema með tréfleygum. 

Hrólfur Þ Hraundal, 15.1.2017 kl. 13:52

3 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Halldór minn, taktu eftir því sem ég skrifa hérna, þetta lið verður endurkjörið á næsta ári af því að afi, amma, pabbi og mamma kjósenda kusu alltaf krata hvað sem á dundi, þetta gengur í erfðir.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 15.1.2017 kl. 16:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 59
  • Frá upphafi: 3418162

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 55
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband