Leita í fréttum mbl.is

Góða fólkið

af  Norðurlöndum er fengið í RÚV til að rakka niður þjóðernisflokka sem allstaðar eru í sókn í Evrópu.  Niðurstaða þeirra er sú að rétt sé fyrir gömlu stjórnmálaflokkana að tala ekki við þá og reyna þannig að þagga þá í hel. Þeir lýsa því hvernig aðrir flokkar í ýmsum löndum reyni að afneita nýju flokkunum með því að tala ekki  við þá. Og finnst það þá líklega rétt hjá strútum að stinga höfðinu í sandinn.

Eiríkur Bergmann er því auðvitað fenginn á RÚV til að hnykkja á því að þetta séu "lýðskrumsflokkar" sem reyni nú að slá sig til riddara undir því yfirskyni að þeir séu að verja velferðarkerfið fyrir þá innfæddu fremur en að vera á móti einstökum kynþáttum eins og rasistar voru hér í gamla daga.

Þessir góðu flokkar verða samt einhvern tímann, ef þeir vilja sjálfir ekki tortímast, að sveigja stefnur sínar að þessum "lýðskrumsflokkum" sem Eiríkur kallar svo. Svo sterk andúðarbylgja við öfgainnflytjendastefnu stjórnvalda er að rísa víða um lönd að að ekki verður stöðvað með aðgerðaleysi.

Auðvitað dregur Eiríkur Bergmann kolrangar ályktanir um eðli þessara flokka eins og hans er gjarnan háttur í endalausum stjórnmálaskýringum sínum á RÚV.Þetta eru  nefnilega ekki " lýðskrumsflokkar" heldur fremur landvarnaflokkar sem eru ekki tilbúnir að fleygja frá sér þjóðfélögum sínum eins og þau voru. Þjóðfélögum og þeim þjóðarbrag sem flokksmennirnir ólust upp við og áttu að venjast fram á síðustu ár áður en góða fólkið fór að flytja inn þetta þriðja-heims fólk í stórum stíl. Hugsanlega eftir kenningunni um að skemmd epli lagi góðu eplin í tunnunni með tímanum?

Afleiðingin af þessum innflutningi er skelfileg og þess vegna grípur fólkið til varna. Það er hætt að trúa þeim stjórnmálamönnum sem byggja stefnu sína á sjónarmiðum góða fólksins. Þetta verður að stjórnmálahreyfingum  sem rísa nú víðast um Vesturlönd.

Trump er til dæmis kosinn af fólki sem er búið að fá nóg af gömlu flokkunum og falskenningum þeirra. Ennfremur lygum og svikum Obama í innanlandsmálum sem menn geta lesið um á töflu sem birtist hér á þessu bloggi fyrir skemmstu. Fólkið gerir kröfu um þjóðlegar breytingar, innlenda atvinnu og friðarvilja á alþjóðavettvangi.

Gerum Bandaríkin mikil aftur eftir innanlandslygarana og utanríkisafglapana Obama og Hillary segir Trump og fólkið trúir honum.

Grunnstefið þessara "lýðskrumsflokka", er samt einfaldlega að verja þjóðleg gildi en ekki að ljúga einhverju að fólkinu eins og venja hefur verið. Verja löndin sín eins og þau voru áður en innstreymi allskyns lýðs af ólíku menningarlegu bergi brotinn fór að flykkjast til þessara landa, eyðileggja almannafriðinn, mergsjúga velferðarkerfin og menga þjóðaryfirbragðið með andfélagslegri hegðun og glæpum.

Björn Bjarnason hefur kostnaðargreint íslenska hegðun gagnvart blekkingahælisleitendum glögglega og ekki er sú niðurstaða þekkileg. Auðvitað kemur þetta beint niður á íslenskum almenningi, sem verður að borga fyrir þetta endemis verklag með hærri sköttum.

Skefjalaus innflutningur af þriðja heims vöru, sem rústar auk þess atvinnulífinu, er svo annað sem á fólkinu  brennur. Störf hverfa og atvinnuleysi siglir í kjölfarið. Íslenskt dæmi er kratahagfræðingurinn sem finnst ekkert að því að eyðileggja sveitir landsins með frjálsum innflutningi landbúnaðarvöru frá heitari löndum og skrifar lærðar greinar í Fréttablaðið þessu til stuðnings. Ekkert er hugsað til enda né að veðurfar og hærri koltvísýringur skipti máli við ræktun og þar með um verð á framleiddri landbúnaðarvöru.  

Almenningur þessara landa vill þetta ekki og flykkist því til þessara nýju flokka. Hér á Íslandi var gerð tilraun til að koma svona flokki á fót fyrir síðustu kosningar en forystumennirnir klúðruðu málinu á einhvern hátt og flokkurinn fékk engan mann kjörinn.

Enda er óæskilegt að stofna nýja stjórnmálaflokka sem yfirleitt verða nú ekki langlífir enda óþarfir með öllu. Menn í gömlu flokkunum verða þá að vilja ræða öll mál en ekki þagga þau óþægilegu niður. Þetta verða allir gömlu flokkarnir að skilja og góða fólkið líka.  Uppákoman og skrílslætin  á Landsfundi Sjálfstæðisflokksins síðasta um málefni flóttamanna mega ekki endurtaka sig ætli sá flokkur að vera áfram stór.

Hinir hofmóðugu gömlu flokkar útlendingasinna hafa ekki skilið þetta til þessa. Þeir heyra ekki í þjóðarsálinni. Þeir halda að þeir komist upp með áfram að keyra sína gömlu stefnu um óheftan innflutning hvaða skríls sem er á þeim grunni að allir menn séu fæddir jafnir. Sem er auðvitað ekki svo ef menn vilja sjá.

Ef þessu heldur áfram munu þessir nýju flokkar ná áhrifastöðum ef ekki meirihluta víða um lönd. Gætum við þá til dæmis séð  Svía reisa fangabúðir og smala þangað þeim verstu úr hópi innflytjendanna og láta þá dúsa þar þangað til leið finnst til að koma þeim úr landi með fé eða fortölum?  Og næsta víst er að margir Sómalir muni verða í þeim hópi því aðlögun þeirra hefur gersamlega mistekist í Svíþjóð hvernig sem reynt hefur verið.Innanlandsástandið í Svíþjóð er orðið sumstaðar með þeim hætti að finna þarf aðrar leiðir til að fást við vandann.

  

Hefðbundnir stjórnmálaflokkar, sem hafa engir þorað að ræða málin eins og þau eru, verða að að fara opna eyru sín og augu fyrir vandamálunum og leita leiða og samstarfs við þessa nýju og stækkandi flokka til að leysa þau. Ef maður getur ekki sigrað þá gengur maður til liðs við þá. Eða breytir sjálfum sér sem er betra.  

Það er staðreynd að konur þora ekki lengur úr húsum á kvöldin víða í Svíþjóð vegna innflytjendaskrílsins sem ræðst á konur, brýtur,bramlar og rænir og brennir bíla. Lögreglan ræður ekki við ástandið og talað er í auknum mæli um að fá herinn út á göturnar.

Það er erfitt að ímynda sér að góða fólkið og íslensku umræðustjórarnir eins og Eiríkur Bergmann geti ekki séð það fyrir að aukinn innflutningur  óskylds fólks getur leitt til svipaðs ástands hér eins og annarsstaðar.Nema við eigum ekki her til að grípa til.

Ríkisstjórnin okkar sér það ekki gerast og ætlar því að auka á innflæðið samkvæmt sérstöku ákvæði í stjórnarsáttmálanum um fjölgun flóttamanna til Íslands. Góða fólkið ætti að vera ánægt með þetta ákvæði að minnsta kosti. 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það er nokkuð athyglisvert að skoða "þýðingarnar" hjá RÚV í umfjöllun þeirra á frétt um Breivik, hérna fyrir u.b.b tveimur dögum en þar sagði verjandi Breivik (á Norsku, sem ég skil alveg prýðilega, var búsettur í Noregi í vel á þriðja ár); AÐ BREIVIK HEFÐI ORÐIÐ MUN "ÖFGAFYLLRI" Í SKOÐUNUM VIÐ EINANGRUNINA Í FANGELSINU,  en RÚV þýddi það þannig; AÐ BREIVIK HEFÐI ORÐIÐ MUN "HÆGRISINNAÐRI" VIÐ EINANGRUNINA. Er samasemmerki milli þess að vera hægrisinnaður og öfgafullur? Bera svona vinnubrögð merki um hlutleysi?

Jóhann Elíasson, 18.1.2017 kl. 22:36

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

  Sannarlega eitt hlutleysisbrotið enn hjá Rúv.

                                      Öfgar innflytjenda'stefnu'sinnar,ganga svo fram af venjulegum Evrópubúum að þeir taka til varna og flykkjast í landvarnaflokka.- 

Helga Kristjánsdóttir, 19.1.2017 kl. 00:28

3 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Ég heyrði ekki betur en að norski viðmælandinn umrædda flokka vera nauðsynlega fyrir lýðræðið og viðmælendurnir lýstu því að þessir flokkar vildu verja velferðarkerfin norrænu fyrir ásókn innflytjenda inn í þau. 

Ómar Ragnarsson, 19.1.2017 kl. 00:33

4 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Hvers vegna kallaði hann þá þessa flokka "lýðskrumsflokka", Ómar? Þetta drottningarviðtal við, að því er virðist, eina stjórnmálafræðing sem uppi hefur verið á Íslandi, var hrein og klár hörmung! Ömurleg auglýsing um fyrirlestur hans um helgina, í Norræna Húsinu, um nýútkomna bók hans. Hver sekúnda er rándýr í auglýsingatíma fjölmiðla, en af einhverjum nú velskiljanlegum ástæðum, fær þessi maður allt fyrir ekkert, hjá RÚV.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 19.1.2017 kl. 01:21

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Jóhann, það er athyglisvert ef Breivik er orðinn öfgafyllri í fangelsinu en hann ver í Utöja. Hvað skyldi hann geta drepið þá marga núna ef hann fengi gasofn frá Hitler? Að þetta kvikindi yfirleitt fái að koma í réttarsal til að tala um réttindi sín. Þetta helvíti sem hefði átt að skjóta á sama stað og Quisling. Hann ætti að vera rasskelltur á hverjum degi í einangrun og enginn að fá að sjá hann nokkurntímann fyrir það sem hann gerði.

Helga, við erum sammála

Ómar, ég skil þetta ekki sem þú ert að segja, heyrði ekki viðmælendurna

Nafni mionn að sunnan, við erum að vanda sammála. Þessi Bergmann hefur frá fyrstu tíð vakið athygli mína fyrir þynnku í tilsvörum. Núna er hann orðinn doktor,ég hefði gamana f að lesa þá ritgerð.

Halldór Jónsson, 19.1.2017 kl. 10:29

6 identicon

 http://www.friatider.se/kinberg-batra-nu-redo-f-lla-regeringen-med-hj-lp-av-sd

Sænskir stjórnmálamenn skíta upp á bak eins og venjulega.
Kinberg Batra moderat vill fella rauð-grænu ríkisstjórnina í haust með aðstoð SD svíþjóðademokrata, sem engin flokkur vill tala við og hafa reynt að þagga í hel í öll ár.
Í könnunum eru SD annar og eða þriðji stærsti stjórnmálaflokkurinn í Svíþjóð, þrátt fyrir þöggun vinstri fjölmiðla (99% fjölmiðla í Svíþjóð eru vinstri)og annarra flokka.
Almenningur hefur fengið nóg af endalusum lygum flokka og vinstri blaða i áraraðir og þá sérstaklega í kring um flóttafólk og hælisleitendur. Vandamálið er áþreifanlegt allstaðar í samfélaginu alla daga og almenningur hefur fengið nóg en stjórnmálamenn viðurkenna ekki sín mistök. Móderaterna vita að fylgið hrynur ef þeir styðja kratana áfram í þessari heimskulegu innflytjenda pólitík. Þegar ríkisstórnin setti kvöð á sveitarfélög um að þau yrðu að taka á móti ákveðnum fjölda flóttamanna án tillits til aðstæðna þá fékk fólk nóg.
Ekki man ég nafnið á sveitfélagin sem átti að taka á mót 2000 flóttamönnum en íbúarnir er 5000 manns. Það sjá allir heilvita menn að þetta er veruleikafirtir kratar.
SD vex fylgi einfaldlega af því að þeir hafa bestu stefnuskrána.
  Í framhjáhlaupi vil ég benda á spillingu sænskra krata í áratugi en kratar hafa heilaþvegið almenning í þrjár kynslóðir sem gerir að engin gerir athugasemd.
Þegar vinnandi maður greiðir stéttarfélags gjald og skiptir þá ekki máli hvaða stéttarfélag er um að ræða, þá fer hluti gjaldsinn sem styrkur til Sosialdemokratiska flokksinns en aðrir flokkar fá ekker! Sama gildir um LO Landsorganisationen í Sverige sem er stjórnað af krötum, þeir fá líka bita af kökunni. Almenningur er svo heilaþvegin að það er aldrei gerð athugasemd, enda hfer það sýnt sig að ef einhver andmælir spillingu krata getur hann einfaldlega mist vinnuna. Það er efitt fyrir heilvita mann að trúa þessu en þetta er staðreind. Þegar ég frétti þetta þá hætti ég að borga gjaldið og fékk þá HÓTUN frá sréttarfélaginu að vera rekinn.
Það var engin miskun þar hjá krötunum. En þarna sjáum við spillingar hugsunarháttin hjá vinstri krötum.
kv.

a langloku ekki lengri

valdimar jóhannsson (IP-tala skráð) 19.1.2017 kl. 11:51

7 Smámynd: Jóhann Elíasson

Halldór, það sem ég er aðallega að benda á eru efnistök RÚV og hvernigþeir túlka hlutina alveg eftir sínu höfði og breyta bara  texta fréttanna eins og þeim sýnist og hentar þeim.

Jóhann Elíasson, 19.1.2017 kl. 23:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 3418215

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband