Leita í fréttum mbl.is

Spítali í Dubai

er risinn. Hann er 3000 m2 að grunnfleti og 10 hæðir. Samtals 30.000 m2. Myndi líklega duga okkur ef við fengjum að nota teikningarnar og kaupa allan sama búnaðinn og þarna er að finna frá Suður-Kóresku fyrirtæki sem sá um allt tæknilegt. Ekkert mál að byggja 10 hæðir á spítalalóðinni með góðum bílakjöllurum undir.

Íslenskur læknir, Gísli Einarsson var hátt settur við þessa framkvæmd þannig að hæg heimatökin ættu að vera að spyrja hann út í þetta til samanburðar við okkar áætlanir.

Íslendingar eru að setja saman hóp teiknara með margvíslega reynslu eins og af stólahönnun, íbúðarhúsabyggingum og járnateikningum, pípulögnum, sem geta nýst til að teikna lágreistan spítala við Hringbraut þar sem hægt er að ferðast lárétt á hlaupahjólum eftir göngunum í stað lyfta upp og niður. Þessi hönnunarkostnaður á eftir að hlaupa á stórum upphæðum. Hagvöxtur og skattgreiðslur auðvitað líka?

Af hverju má ekki bera saman kostnað af því að kópéra spítalann í Dubai og því byrja allt frá grunni hér?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Spítalinn í Osló er nýr og talinn sá besti í Evrópu. 

Ómar Ragnarsson, 20.1.2017 kl. 16:45

2 identicon

Ég hef aldrei skilið þetta viðkvæði að það að byggja spítala annarsstaðar en á Hringbraut muni tefja verkið jafnvel um áratug vegna þess að þurfi að fara í hönnunarvinnu.

Það er búið að hanna og byggja hátæknisjúkrahús um heim allan. Er nokkuð erfitt að gera ein og þú segir að kópera spítalann. Copy Paste. 

Af hverju þurfum við alltaf að finna upp hjólið að nýju?

Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 20.1.2017 kl. 21:50

3 identicon

Sæll frændi.

Ég er aðein kunnugur í Kína. Þar vantar ekki spítala og þeir byggja stórt.

https://en.wikipedia.org/wiki/List_of_hospitals_in_Beijing

Ekki vitlaust að stela teikningum þaðan, annað eins gera þeir sjálfir.

https://en.wikipedia.org/wiki/Beijing_Chao-Yang_Hospital

Það er svolítið skrítið að bera saman stærðirnar þar og annarstaðar þar sem ég þekki.

 

Guðmundur Bjarnason (IP-tala skráð) 21.1.2017 kl. 01:10

4 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Spítalinn í Dubai er talinn einn sá besti hannaði í heimi. Þar er engin Hringbraut, enginn dagur eða hjálmar, skammsýnir hjólreiðastígabjálfar, eða annað úrtölufólk. 

Í Reykjavík gæti svona sjúkrahús aldrei risið. Ástæðan er einföld.: Það er alveg sama hvað við byggjum stór sjúkrahús, sjúklingum mun aðeins fjölga og því tekur því ekki að byggja þau.

 Að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 21.1.2017 kl. 03:26

5 identicon

Halldór en hvað með alt pakkið sem þarf að mata krókinn við svona framkvæmdir.þessi hugmynd þin yrði auðvitað notuð af einkaaðilum,en verður aldrei leifð i ríkisframkvæmdum.

Helgi Armannsson (IP-tala skráð) 21.1.2017 kl. 08:36

6 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Nú er ég hissa á þér, Halldór. Hvernig dettur þér í hug að við Íslendingar getum nýtt okkur reynslu annarra? Hvernig dettur þér í hug að við viljum einfalda málin?

Hér á Íslandi þarf alltaf að finna upp hjólið, stundum tekst það ágætlega en oftast er árangurinn lélegur og stundum hrein hörmung.

Nýjustu dæmi þessu til staðfestingar eru tvær rannsóknir verkfræðistofunnar EFLU, önnur fyrir borgina og hin fyrir ríkið. Þar er stórum fjármunum eytt til rannsóknar á verkum sem eru vel þekkt og ekki annað en að taka upp símann og hringja örfá símtöl. Þannig mætti fá allar upplýsingar á hálfum degi og fara síðan í framkvæmdir.

Þarna er ég að tala um skýrslu EFLU fyrir Reykjavíkurborg um snjóhreinsun reiðhjólastíga. Verkfræðistofan komst að þeirri niðurstöðu að best væri að sópa þá með vélsóp og salta. Aðferð sem hefur verið notuð bæði austan og vestan hafs um áratugaskeið, með mjög góðum árangri.

Svo og skýrslur sömu verkfræðistofu fyrir ríkið um byggingu salernisaðstöðu á ferðamannastöðum. Mætti halda að klósett hefðu verið fundin upp í gær og að ríkið sé að spá í hvernig megi nýta þá nýju uppfinningu.

Fleira mætti telja sem bera merki þess að við þurfum að finna upp hjólið í stað þess að afla upplýsinga hjá þeim sem þekkja málin. Landeyjahöfn er kannski þar efst á blaði, þegar fræðingar Vita og hafnarmálastofnunnar, eins og hún hét á þeim tíma, fóru á kostum.

Þar var sama aðferð notuð til að byggja höfn og til að fanga sand. Sandfangarinn, sem byggður var við Vík, hefur skilað ágætum árangri, en höfnin, sem byggð var á Landeyjarsandi, er aftur meira og minna full af sandi. Enda eru báðar þessar framkvæmdir gerðar eftir sömu teikningu, að mestu. Einungis aðeins bætt við teikninguna af höfninni.

Bútasaumaði Landspítalinn við Hringbraut er annað dapurt dæmi. Þegar liggur fyrir að þessi spítali mun ekki anna sínu hlutverki, þegar og ef smíði hans einhvertímann líkur. Ekki er pláss til að koma fyrir öllu því sem nú ætti að vera innan spítalans, hvað þá því sem bætist við vegna aukinnar tækni sem og fjölgunar landsmanna. Spítalinn er úreltur áður en framkvæmdir við hann hefjast að ráði! 

Þetta hafa jafnvel hörðustu Hringbrautar talsmenn viðurkennt og tala um að nýr og flottari spítali verði byggður á nýjum stað, eftir að bútasaumnum við Hringbraut líkur!

Aðgengið að honum er þegar sprungið og nær útilokað að bæta það til þess sem þarf í dag, hvað þá þegar og ef starfsemin kemst á fullt.

Reyndar hefur hjólahjalli komið með lausn á þessum vanda öllum. Með því að hafa verulega skert aðgengi að spítalanum má hafa hann minni og nettari! Reyndar þarf þá væntanlega að fjölga útfararstofum og vonandi að þær fái þá að standa eitthvað austar í borginni.

Fyrr frýs í helvíti en að við Íslendingar förum að nýta okkur þekkingu og reynslu annarra. Hjólið SKAL fundið upp, aftur og aftur og aftur og aftur og ..........

Kveðja

Gunnar Heiðarsson, 21.1.2017 kl. 09:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 3418212

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 53
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband