Leita í fréttum mbl.is

Alþingi sýni ábyrgð

og hætti að sóa tíma í dellumál eins og áfengisfrumvarp meðan sjómannaverkfallið er óleyst. Það skiptir máli en ekki brennivín sem fæst í ríkinu hindrunarlaust.

Ámóta dellumál taka tíma frá því sem máli skiptir. Hvort eigi að selja Lögreglustöðina og láta ríkið taka hana á leigu af fasteignafélagi? Var ekki Árni Sigfússon búinn að sýna það í Reykjanesbæ hvert slík della leiðir? Það var sótt að Kópavogi að fara þá leið. Meirihlutinn hafði vit á að ansa því ekki.

Nú kaupa fasteignafélög og kvótasölumenn upp heilu blokkirnar hér í Kópavogi sem áttu að fara á almennan sölumarkað. Nú eru bara leigumálar í boði á verði sem enginn getur borgað.

Lífeyrissjóðaspillingin er að leggja allt heilbrigt athafnalíf í landinu að velli. Verðlækkunin á Flugleiðabréfunum er ekki orðið neitt tap ennþá.Bara bókhaldstala. En ef hún verður varanleg þá lækkar bara lífeyririnn minn. En furstinn sem stjórnar sjóðnum mínum bara hlær og kærir sig kollóttann. Ég þekki hann ekki einu sinni og get ekki einu sinni skammað hann né sett út á hann. Ég er gersamlega ofurseldur honum og hann ræður yfir allri minni framtíð. 

Almenningur verður að fara að rísa upp og krefjast uppskurðar á þessu foraðsdíki sem þetta spillta lífeyrissjóðakerfi landsmanna er. Það verðu að breyta þessu í gegnumstreymiskerfi í stað þessa Shangrílakerfis sem segist ætla að ná 3.5 % ávöxtun á íslenskar krónur meðan ávöxtun heimsins á peningum er fyrir neðan núll.

Þetta lífeyrisjóðakerfi er að eyðileggja þjóðfélagið, gera ungu fólki ómögulegt að lifa í þjóðfélaginu fyrir eigin reikning, keyra upp vexti í fákeppni banka sem framleiða rafeyri á ræfildómi allra skuldsettra vesalinga sem eru að reyna að standa í atvinnustarfsemi í þessu landi eins og Icelandair er vissulega að reyna að gera.

Alþingi verður að sýna ábyrgð og hætta að verða sér til skammar með að láta stelpukjána standa uppi í pontu og kalla erlenda þjóðhöfðingja fasista.Það þarf líka að fara að greina aðalatriði frá aukaatriðum eins og hvort selja eigi Bónussprútt eingöngu eða hafa þokkalegt úrval eins og verið hefur.Og stjórnmálamenn þurfa að sýna ábyrgð með því að hætta að dellumakast um sölu á arðbærum ríkiseignum vegna ályktana einhverra sértrúarsöfnuða eins og Viðskiptaráðs Íslands.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Mjög góð grein og tekur nokkuð á þeim vandamálum sem steðja að þjóðinni nú um mundir en alþingismenn og konur virðast hafa lítinn áhuga á að leysa heldur er hvert "bullmálið" sem rekur annað á meðan alvörumálin hrannast upp og enginn hefur áhuga á þeim.

Jóhann Elíasson, 3.2.2017 kl. 19:52

2 Smámynd: Elle_

Niðurdragandi Halldór. Jón Magnússon skrifaði skylda grein:

Skepnuskapur gagnvart ungu fólki.

Hvað er ætlunin að gera fólki það erfitt að koma eigin þaki yfir höfuðið? Það virðist ekki vera mikill skilningur á þessu meðal stjórnmálamanna. 

Elle_, 3.2.2017 kl. 20:39

3 Smámynd: Elle_

 Og eitt það skrýtnasta sem ég hef heyrt lengi er þetta með að selja lögreglustöðina og ríkið leigi húsið svo af leigufélagi.  

Elle_, 3.2.2017 kl. 20:42

4 Smámynd: Jóhann Kristinsson

"Alþingi sýni ábyrgð," þetta er nú góð lýsing á þýðingu orðsins oximoron.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 3.2.2017 kl. 22:01

5 Smámynd: Þórir Kjartansson

Gott að sjá Halldór að þú ert kominn í þann sístækkandi hóp sem sér hverslags svarthol og óskapnaður þetta lífeyriskerfi okkar er orðið. Ég hef stundum á undanförnum árum reynt að færa þetta í tal við alþingismennina okkar en ekki fengið önnur viðbrögð en þau ,,að við séum með besta lífeyriskerfi í víðri veröld og allir öfundi okkur af því"

Þórir Kjartansson, 3.2.2017 kl. 22:34

6 identicon

Það er aumt að hafa ekki hugsandi menn innan flokksins sem hugsa um heildina.Aðeins um fjárfestingarfélög sem okra á íbúðar leigu láglauna fólksins landsins. 

Hafsteinn Reykjalin (IP-tala skráð) 3.2.2017 kl. 22:52

7 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Sá sem verður píndur til að borga mannabústað fyrir sig og sína, með lífi sínu og sinna, ásamt líffærum, er betur settur án þess "mannabústaðar" fyrir sig og sína!

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 4.2.2017 kl. 01:25

8 Smámynd: Halldór Jónsson

Ármann Kr. í Kópavogi og hans fólk er búið áð átta sig á því að Kópavogur er ekki að brjóta lönd undir nýjar lóðir fyrir kvótagreifa eins og Guðrúnu í Stálskip til þess að hún geti okrað á húsaleigu fyrir velstæða eldri borgarara. Hún og Ágúst eru sko ekki að fara að hjálpa unga fólkinu með því að kaupa upp heilu blokkirnar sem áttu að leysa húsnæðisþörf eldri borgara eða hvað annað í heildsölu.

Halldór Jónsson, 4.2.2017 kl. 16:02

9 Smámynd: Elle_

Í staðinn fara núna menn á milli húsa í götum í Kópavogi nálægt MK, og nánast pína fólk til að fara úr gömlum húsum í götum sem það ætlaði ekkert að fara úr. Fari fólk ekki, verður það að lifa við óþolandi hávaða og skugga. Þar ÆTLA þessir menn sko að byggja stórhýsi á landi núverandi íbúa. 

Elle_, 4.2.2017 kl. 21:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband