Leita í fréttum mbl.is

Krónan?

er sá ódýri sökudólgur  sem fólk grípur til þegar það veit um eigin þátt í heildarvandamálinu.

Hvað er krónan okkar? Hún er okkar gjaldmiðill það vitum við. Hún er óstöðug segja kjarabaráttumenn. Hún er orsökin fyrir því að við gerum kröfur um kauphækkanir. Við þurfum gjaldmiðil sem við getum treyst. Evran er oft nefnd sem valkostur.Hún er í notkun í Grikklandi.Flestum er kunnugt um til hvers það leiðir ef ekki er hægt að verða við kröfum um kauptaxta. Þetta samband skýrir þetta sama fólk ekki sem krefst stöðugs gjaldmiðils fyrir Íslendinga. Þeirra sýn takmarkast við það að knýja fram kauptaxta í stöðugum gjaldmiðli og þá verði allt í lagi þangað til að kemur að næstu kjarabaráttu.Sem auðvitað allir sjá að gengur ekki upp til lengri tíma. Og enginn gjaldmiðill í heimi er til sem ekki hefur rýrnað í verðbólgu eins og 1940 dollarinn sem er orðinn að fremur fáum centum.

Þegar gríska niðurstaðan kemur upp í skammtímanum  þá er gripið til annarra skýringa.

Krónan er ekkert öðruvísi en aðrir gjaldmiðlar, dollar, evra eða bitcoin. Hún leitar síns gengis eftir aðstæðum á markaði. Nú er ástandið þannig að Seðlabankinn verður að berjast við að halda gengi hennar niðri vegna aðstreymis gjaldeyris frá ferðamönnum. Sem þýðir í raun að yrði ekkert að gert myndi dollarinn vera kominn niður fyrir hundraðkrónurnar. Sem þýddi að allt innflutningsverð, nýrra bíla sem annars innflutts varnings, myndi stórlækka. Sem þýddi neikvæða verðbólgu sem er aukinn kaupmáttur allra. Þetta er þessi óstöðuga króna sem ekki er til umræðu þegar svo stendur á. Það er bara þegar þróunin fer í hina áttina að grundvöllur fyrir kjarakröfum myndast.

Það ætti engum að leyfast að tala með svo ábyrgðarlausum hætti um krónuna sem verkalýðsleiðtogar leyfa sér þegar þeir ræða kaupkröfur. Það eru kauphækkanirnar umfram innistæður sem hafa valdið mikilli lækkun á gengi krónunnar sem hér hafa verið viðvarandi mjög lengi. Þjóðarsáttin 1990 sýndi hvernig hin leiðin virkar. En hún er svo leiðinleg og tilbreytingarlaus og verkalýðshetjur fá bara ekki notið sín við slíkar aðstæður.

Bjarni Benediktsson fór yfir þá ótrúlegu stöðu sem þjóðarbúið er komið í  svo stuttu eftir hrun á fjölmennum fundi í Kópavogi í gærmorgun. Hagvöxtur á landinu var 5.9 % á síðasta ári. Hver hefði trúað þessu sagði Bjarni? Gjaldeyrisforðinn er stærri en nokkru sinni fyrr. Ekki bara stærri heldur margfaldur það sem hann hefur áður verið. Fengi krónan að styrkjast eins og hún vildi þá myndi það valda útflutningsatvinnuvegunum söluerfiðleikum og ferðamönnum gæti farið að ofbjóða kostnaður á öllu innanlands, Þannig að þetta er allt jafnvægislist. Bjarni svaraði mörgum spurningum fundarmanna um stjórnmálaástandið og var gerður góður rómur að af nærri hundrað fundarmönnum.

Ekki virðast vera uppi miklar vantrúarraddir uppi á krónuna sem okkar framtíðargjaldmiðil innan Sjálfstæðisflokksins mótsett við samstarfsflokkinn Viðreisn. Krónan virðist því verða með okkur um næstu framtíð.

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 3417956

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband