Leita í fréttum mbl.is

Aulerí Pírata

er furðulegt. Þeir hafa í raun engar skoðanir nema að það eigi að spyrja fólkið álits. En ef álit fólksins passar ekki við skoðun þeirra ráðamanna þá er ekki hægt að nota skoðun fólksins. Menn minnast þess hvernig Birgitta tók á römgum skoðunum frambjóðenda á sínum tíma.

Svo segir Páll Vilhjálmsson um þessa tvíhyggju Pírata:

"Allt frá Forn-Grikkjum snýst pólitík um valkosti. Aþenskir stjórnmálamenn töluðu á þjóðfundum og mæltu fyrir þessum eða hinum valkosti við úrlausn mála. Öll vestræn stjórnmál byggja á greiningu á ástandi og tillögum til að breyta eða festa í sessi stöðu mála. Spurningar út í loftið án svara eru merkingarleysa.

Píratar á Íslandi kunna ekki einföldustu grunnatriði stjórnmála. Píratar hafa enga skoðun, þeir vilja bara ,,spyrja þjóðina." Píratar vita ekki hvort þeir vilja í Evrópusambandið, þeir vita ekki einu sinni hvort þeir vilja sækja um aðild. Þeir ætla að spyrja þjóðina.

Til að lýðræði verði annað en markleysa þarf að vera staðfastur vilji og sannfæring á bakvið valkosti sem kosið er um. Það dettur engum í hug, nema kannski Pírötum, að kjósa um hvort það eigi að vera sól á morgun eða rigning, eða hvort heimurinn eigi að vera friðsamur eða í ófriði.

Spurningalýðræði Pírata gerir stjórnmál að leikhúsi fáránleikans þar sem spurningum er svarað með spurningum: eigum við ekki að spyrja þjóðina hvort hún vilji þjóðaratkvæðagreiðslu? Eða þykjast Píratar einir hafa rétt til að spyrja spurninga?"

Það er sem sagt allt í lagi  með dæmda glæpamenn eftir siðferðismati Pírata þegar þeir eru komnir úr tugthúsi? Allt í lagi með fyrrverandi fíkla sem eru nægilega edrú þessa stundina til að geta verið í umferð?  Það er ekkert verið að leita að fólki fyrir Pírataflokkinn sem er í lagi að upplagi?  Var AlCapone bara í lagi eftir að hann losnaði úr fangelsinu? Skipti fortíð hans engu máli? Skiptir fortíð manna engu máli? Er ISIS-liði bara í lagi sem hælisleitandi og æskilegur innflytjandi til Íslands?

Ólafur Ólafsson er þá lagi sem viðsemjandi Borgarstjórnar af því að hann er utan girðingar núna? Og stærstu málin hans nýuppkomin eru líklega fyrnd sem gerir hann þá enn æskilegri viðsemjanda fyrir Reykjavíkurborg að dómi Píratafulltrúans?  Hvað sem líður áliti flokksmanna hans og kjósenda?

Ég er ekkert búinn að fyrirgefa Ólafi Ólafssyni minn eignamissi í KB-banka.Hann stal hlutnum mínum fyrir sig og núna er hann að nota þýfið til að græða með Degi Bergþórusyni í skjóli nafna míns Auðars Svanssonar.  

Flottur félagsskapur þessi Pírataselskabur og siðferðið akkúrat passandi fyrir það allsherjar Aulerí sem þessi Pírataflokkur er.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 58
  • Frá upphafi: 3418152

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband