Leita í fréttum mbl.is

Mannkynsfrelsarar

eru á leið héðan til að tjasla saman sundurskotnum í Mósúl.

Ég hef stundum velt því fyrir mér af hverju það verður okkar vandamál Íslendinga þegar einhverjir brjálæðingar úti í heimi fara að drepa hvern annan og limlesta. Þá er eins og mest liggi á að bjóða þeim hingað í kost og logi og ala önn fyrir þeim sem liggja óvígir á vellinum eða hafa flúið átökin eins og hræddar geitur.

Hver er ábyrgð fólks í styrjöld eða borgarastríði? Hver var ábyrgð Lincolns? Hver er tilgangurinn með styrjöld? Er hann ekki sá að drepa sem flesta af óvininum sem er núna þú í mínum augum og ég í þinum? Það vissi Shermann þegar hann eyddi öllu sem fyrir honum varð. Af hverju er ábyrgðin á öllu þessu skyndilega flutt til Íslands? Við eigum að redda þessu? Við höfum hinsvegar ekkert að segja um fyrirkomulag manndrápanna eða umfang?

Á ekki frekar að loka landamærum ríkja sem fara í borgarastyrjöld út af pólitík?  Ber þegnum eins ríkis ekki skylda til að taka þátt í borgarastyrjöld? Það hefði ekki verið mikið hlustað á þá Bandaríkjamenn sem ekki vildu taka þátt í þrælastríðinu. Það er kannski  öðruvísi þegar barist er um auðæfin með hjálp stórveldanna og risafyrirtækjanna.Þá eru þetta frekar landvinningastríð í glæpsamlegum tilgangi ala Hitler.

En í alvöru. Af hverju eigum við alltaf að frelsa mannkynið?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Að vera hluti mannkyns setur okkur vissar skyldur. Rétt eins og að vera Íslendingur setur okkur vissar skyldur. Þegar gýs í Vestmannaeyjum eða snjóflóð fellur á byggð þá hjálpum við, jafnvel þó við þekkjum engan á staðnum og teljum þetta landsbyggðapakk almennt óalandi og óferjandi. Greiðum jafnvel lífeyri til gamlingja af sköttum okkar þó fæstir eigi það skilið. Við erum hluti af heild og verðum að haga okkur eftir því.

Gústi (IP-tala skráð) 4.4.2017 kl. 11:38

2 identicon

Að vera hluti mannkyns setur okkur vissar skyldur. Rétt eins og að vera Íslendingur setur okkur vissar skyldur. Þegar gýs í Vestmannaeyjum eða snjóflóð fellur á byggð þá hjálpum við, jafnvel þó við þekkjum engan á staðnum og teljum þetta landsbyggðapakk almennt óalandi og óferjandi. Greiðum jafnvel lífeyri til gamlingja af sköttum okkar þó fæstir eigi það skilið. Við erum hluti af heild og verðum að haga okkur eftir því.

Gústi (IP-tala skráð) 4.4.2017 kl. 11:39

3 identicon

Heill og sæll Halldór.  Því miður er þetta svokallaða góða fólk að vinna mikil skemmdarverk á þjóðlífi okkar og menningu. Það er ótrúlegt hvað þessum múslimum sem hér eru, hefur orðið ágengt í skemmdarstarfsemi sinni.  Hvernig þetta fólk hefur komist upp með að breyta því sem hefur verið kjölfesta  í samfélaginu s.s.skólafæði.  Kirkjunni okkar. og flr. flr.

 Lengst var þó gengið í skömminni og undir lægjuhættinum þegar lögreglan í útkalli fór úr skófatnaði sínum til þóknast múslimum er  farið var  inn í Ymishúsið. til að stilla til friðar í múslimahópi.

Því miður er enginn flokkur á þjóðþinginu sem hefur sýnt vilja til þass að Verja LANDAMÆRI ÍSLANDES.  Margir höfðu von með að sjálfstæðisflokkurinn tæki þar til hendi en hann er handónýtur í því sem öðru.

Eðvarð Lárus Árnason (IP-tala skráð) 4.4.2017 kl. 12:01

4 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Algjörlega sammála þér Eðvald satt að segja finnst mér fokið í flest skjól að vita af þessu liði í ríkisstjórn,eða eins og einhver sagði nánast í fanginu á Sjálfstæðisflokknum.
  þú Gústi guðsmaður? Að sjá eftir hjálp við landsmenn sína þegar náttúruöflin leika þau grátt er auðvirðileg og ekkert meira um það að segja.

Helga Kristjánsdóttir, 4.4.2017 kl. 14:54

5 Smámynd: Kristmann Magnússon

Gústi hér að ofan er tvískráður og ykkur veitti nú ekki af að lesa hann líka tvisvar.  Hann hefur nefnilega rétt fyrir sér - við erum hluti af heild og eigum að haga okkur sem slík 

Húrra fyrir þér Gústi 

Kristmann Magnússon, 4.4.2017 kl. 17:34

6 Smámynd: Halldór Jónsson

Mannsi er ekki einhver munur á Vstmannaeyjum og Mósúl í okkar augum?

Halldór Jónsson, 4.4.2017 kl. 18:17

7 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Halldór. Sálir okkar eru vitrari en heili okkar. Og miklu eldri en þessa lífs heili.

Sálarvilja hvers og eins leiðbeina þeir hjálparenglar/goð almættisorkunnar góðu, sem sálirnar í mannslíkamahulstri hvers og eins, láta heila sinn og hjartans innstu kærleiksbænir snúast um.

Eiturefni eru að sýkja, vannæra og eyðileggja heilahæfni fólks til að einbeita sér að kærleikssamfélags bænum til almættisins.

Er Sjálfstæðisflokkurinn ekki kristinna og kærleiksríkra einstaklinga studdur og skipaður samfélagsins flokkur?

Fyrir hvað stendur heiðskýri og heiðarlegi blái liturinn?

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 4.4.2017 kl. 18:35

8 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Er þér virkilega sama um börnin sem eru drepin með eiturvopnum . Og að bera saman Mósul og Vestmannaeyjar er einkar ógeðfellt. Í Vestmannaeyjum voru náttúruhamfarir og enginn lét lífið á meðan harmleikurinn í Mósul er af mannavöldum. Gústi guðsmaður var góð sál Helga og algjör óþarfi að hæðast að honum. 

Jósef Smári Ásmundsson, 4.4.2017 kl. 20:14

9 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Halldór. Hér er smá viðbót af netferðalagsins upplýsingum.

youtube: Anton Shekhovtsov´s blog: Russian fascist Aleksandr Dugin´s dreams of dictatorship in Russia.

Youtube: Anton Shekhovtsov´s blog.

Okkur er víst öllum hollast að leita uppruna heimsstyrjaldanna blekkingafjölmiðlunar, til að geta réttlætt hvernig við skiljum hvað er í gangi hér á jörðinni.

Svo væri ekki verra að rannsaka vitni í St. Petersborg í viðtali fjölmiðils frá Noregi.

Viktor Dudnik var hann nefndur í Norsku fréttinni?

Engar fréttir á Íslandi af þessu fyrsta Norska fjölmiðla-vitni af hryðjuverkum í St.Petersburg í gærmorgun?

Óverjandi léleg fjölmiðlun heiðarlegra upplýsandi fjölmiðla af raunveruleika hryðjuverkaárásar sem kostaði fjölmarga bæði lífið og heilsuna í Rússlandi?

Hefði þetta hryðjuverkadæmi gerst í París, þá hefði ekki nokkur maður leyft sér að stöðva raunveruleikans atburðarrás a þennan hátt í heimsfjölmiðlunum?

Heimsveldis bankaráns hryðjuverka stjórnsýslandi fjölmiðlun er sturluð og stórhættuleg fyrir alla heimsbyggðina.

Og ekki síst hættuleg fyrir ungu börnin sem verið er að eitra fyrir bæði andlega skólaskyldufræðslukúgandi og líkamlega/andlega/heilsufarslega með flugvélasérsveita eitrunum í framtíðarheilsubrestum.

Eitrandi flugvélaspúandi aftöku/heiladrepandi efnavopnaárásir munu drepa/veikja framtíðarinnar börn, ef enginn stöðvar þessa illra vætta löngu plönuðu trúarbragðastýrðu 3.stríðs helför jarðar.

Eina ráðið sem ég kann, er að biðja af mínum hjartans velvilja og einlægni, almættisorkuna algóðu og alvitru sem er öllum mannaverkum valdameiri, um að leiðbeina jarðarbúum til viskunnar friðarleiðar fyrir alla í framtíðinni.

Munum að enginn lifir jarðlífið af (sem betur fer), og ekkert er í raun að óttast fyrir núlifandi einstaklinga fyrir að segja frá, til varnar börnum framtíðar á jörðinni.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 4.4.2017 kl. 21:29

10 identicon

Hvort börn séu drepin í Mósul breytir það ekkki því að óheftur straumur innflytjenda hingað breytir landinu síst til batnaðar. Né heldur linnir hörmungunum í útlöndum við það að fólk komi hingað. Alla mannkynssöguna hafa verið framin ódæðisverk, en við munum ekki alltaf hafa friðsælt samfélag ef við höldum uppteknum hætti. Það eru hundruðir milljóna manna í heiminum sem eru á vergangi, þau sem fréttamönnum finnst ekki nógu mikið í tísku að fjalla um. Eiga þau öll að koma til vesturlanda?

Það má halda því fram að við höfum einhverja siðferðislega skyldu að aðstoða þá sem eiga bágt. Gott og vel. En ekkert skuldbindur okkur að fórna höfuðstól samfélags okkar, enda er okkar ábyrgð að sinna okkar samfélagi fyrst - ef við gerum það ekki, þá sköpum við öðrum vandræði. Þetta má sjá af reynslu annara landa, svo sem Bretlands: það er ekki að ástæðulausu að það er stundum kallað "Londonistan", því þaðan hafa verið gerð hryðjuverk, og ekki bara innanlands. Einnig í Svíþjóð þar sem eftirfarandi úrkynjun á sér stað:

http://www.frontpagemag.com/point/251905/swedens-multicultural-center-expert-islamophobia-daniel-greenfield

http://www.wnd.com/2015/05/swedens-welfare-bonanza-for-returning-isis-jihadists/

Það má hjálpa fólki án þess að færa slíka fórn. Það er einnig munur á góðmennsku og rembing. Og Góða Fólkið er ekki gott.

Egill Vondi (IP-tala skráð) 4.4.2017 kl. 23:38

11 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Ó Jósef Jósef, ég henti ruglið úr penna hans á lofti og sendi það rakleiðis til baka að vísu illa þýddu!

þeir sem skrifa gælunöfn sín á tölvur út í bæ,eiga ekkert tilkall til sérstakrar virðingar,ef þeir skrifa ekki eins og vitibornir menn.  

Gott að fá þesa linka Egill 

 

Helga Kristjánsdóttir, 5.4.2017 kl. 01:49

12 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Eg veit nú ekkert hvort þetta er hið rétta nafn en er sammála þér að fólk á að skrifa fullt nafn undir það sem það skrifar. En þó ég þykist vita að þú hafir skrifað Gústi guðsmaður í einhverju fálmi , þá ekki vera að blanda siglfirðingnum inn í þetta með þessum hætti. Það bera allir siglfirðingar lífs og liðnir virðingu  fyrir minningu hans.

Jósef Smári Ásmundsson, 5.4.2017 kl. 06:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 58
  • Frá upphafi: 3418152

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband