Leita í fréttum mbl.is

Hvað heldurðu að gerist

ef ég blæs tvö stuð í lúðurinn sagði Vestmannaeyjaklerkur við þann aðkomna klerk ofan af fastalandinu? En þá hafði hann nýverið blásið eitt stuð í trompetinn og þá samstundis hafði prestmaddaman í Eyjum komið með rjúkandi kaffi handa blessuðum prestunum þar sem þeir sátu á spjalli um ecclesísk málefni á prestskontórnum þarna úti í Eyjunum á síðustu öld.   Nei, það gat ekki landklerkur vitað.   Ja sjáðu til segir þá Eyjaklerkur hinn íbyggnasti:  Þá hefði sko komið kaffi og með því.Sá aðkomni nærri datt aftur fyrir sig af frugt yfir snilld Ofanleitisklerks. Sem vonlegt var við það að verða vitni af slíkri veraldlegri skipulagsgáfu eins Herrans þjóns.

Svipaðar tilfinningar gætu hafa hríslast um hann Kínaklerk þegar hann frétti hvað Trump Heimaklerkur hefði verið að bralla meðan þeir voru að drekka kaffið á Florida. Þarna var þó bara um smágas í Sýrlandi hjá honum Assad amlóða að ræða. Hvað gæti honum Heimaklerki ekki dottið í hug að gera uppá sitt eindæmi  ef vinir Kínaklerksklerks í NorðurKóreu færu að fikta við Atóm í leyfisleysi? Hugsanlega án þess að spyrja Kínaklerk leyfis þar sem þeir eru orðnir býsna frekir og sjálfráðir í seinni tíð? Heimaklerkur gæti tekið upp á einhverju óvæntara en andskotanum. Enginn KimIlJong allt í einu. Ekkert á milli Kína og SuðurKóreu skyndilega?  Slíkt gæti komið mönnum í uppnám og þó minna tilefni væri. Heimaklerkur er nefnilega búinn að sýna það að hann er ekki endilega hvers manns leika fremur en Þorgils skarði við dýrshornið. Og spyr kannske ekki fyrr en eftirá frekar en þeir gerðu sumir í Texas í gamla daga?

Kínaklerkur er sagður hafa verið hugsi um stund við tíðindin og svo er víst um fleiri klerka í hinum ýmsu kirkjusóknum á heimsbyggðinni. Eru kennimenn  hreint ekki sammála um annað en að vissara sér að hafa varan á sér þar sem Washingtonklerkur er annars vegar. Það sé ekki að vita hvenær né hvursu mörg stuð sá karl getur blásið í lúðurinn og hvað þá gerist? Það er ekki víst að það verði þá tómt molakaffi í boði heldur með því líka.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristmann Magnússon

Mjög góður í dag Halldór minn - Humorinn í lagi 

Kristmann Magnússon, 8.4.2017 kl. 23:24

2 identicon

Húmorinn er í lagi, en skilningurinn á dæminu er það ekki.

Bandaríkjamenn skutu 59 skeytum, einungis 23 komust á áfangastað og gerðu lítin skaða.  Og á "sama tíma" og árás kanans var gerð gerðu ISIS árás ... sem bendir á "samband" milli bandaríkjamanna og hryðjuverkamanna.

Fór þetta fyrir ofan garð og neðan hjá þér?

Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 9.4.2017 kl. 08:24

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Sumir segja Bjarne að þetta hafi verið skeyti sem voru komin fram yfir söludagsetningu og því þurft að fleygja hvort sem var. Getur ekki silningurinn alveg verið svoleiðis eins og hinsegin úr því að þú verður að vera þeim megin sem von er?

Halldór Jónsson, 9.4.2017 kl. 08:47

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Bjarne, samkvæmt upplýsingum frá hermálaráðgjafa mínum þá vöðum við reyk með skeytin. Hann segir:The US Navy launched 60 Tomahawks, one failed and 59 hit the target.. Ég held að hann viti hjvað hann er að tala um.

Halldór Jónsson, 9.4.2017 kl. 11:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 3418132

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband