Leita í fréttum mbl.is

Það er að vora!

og það kemur í mann fiðringur að lesa grein Kjartans Magnússonar í Mogga í dag. Kjartan segir:

"Tæplega þrjú hundruð manns sóttu vel heppnað Reykjavíkurþing Varðar, Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, sem haldið var um helgina. Þingið sótti sjálfstæðisfólk á öllum aldri og úr öllum hverfum borgarinnar til að ræða borgarmál, vinna að stefnumótun og styrkja tengslin sín á milli.

Á þinginu komu fram fjölmargar hugmyndir, stórar sem smáar, sem allar miða að því að bæta mannlíf í Reykjavík með einhverjum hætti. Einnig var farið yfir stöðuna í hinum ýmsu málaflokkum borgarinnar og rætt um hvernig standa megi betur að rekstri þeirra.

Málefnanefndir unnu að ályktunum sem síðan voru bornar upp og samþykktar á þinginu. Var ómetanlegt fyrir okkur borgarfulltrúa að taka þátt í störfum Reykjavíkurþingsins og skiptast þar á skoðunum við fjölda fólks sem gjörþekkir aðstæður í sínum hverfum og veit hvernig bæta má þjónustu og rekstur Reykjavíkurborgar. Vil ég þakka öllum þeim sem sóttu Reykjavíkurþingið og tóku þátt í störfum þess. Sérstaklega vil ég þakka hinum stóra hópi sjálfboðaliða úr sjálfstæðisfélögunum sem lögðu af mörkum mikið starf í sjálfboðavinnu til að gera þetta glæsilega þing að veruleika.

Reykjavíkurþingið var glæsileg byrjun á baráttu Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningar, sem fara fram eftir eitt ár, 26. maí 2018. Nú verður fjallað um nokkrar ályktanir þingsins en með þeim hafa línur verið lagðar að stefnuskrá flokksins fyrir kosningarnar. Reykjavík á að vera fyrsti kostur fyrir alla þá sem vilja búa á höfuðborgarsvæðinu.

Sjálfstæðisflokkurinn vill að útsvar verði lækkað í áföngum og verði komið niður fyrir meðalútsvar á landsvísu á næsta kjörtímabili.

Reykjavíkurborg skal tryggja nægjanlegt framboð af lóðum til sölu.

Sjálfstæðisflokkurinn vill að byggingarréttargjald verði fellt niður. Lóðir í nýbyggingarhverfum skal selja á kostnaðarverði. Með auknum íbúafjölda aukast útsvarstekjur sem gerir borgina betur í stakk búna til að sinna grunnþjónustu.

Lagt er til að öllum leigulóðum íbúðarhúsnæðis verði afsalað til eigenda húsnæðis þess sem á lóðunum stendur.

Sjálfstæðisflokkurinn er fylgjandi því að afnumin verði sú lagakvöð sem síðasta vinstri stjórn setti á Reykjavíkurborg að fjölga borgarfulltrúum úr 15 í a.m.k. 23 við næstu borgarstjórnarkosningar, í maí 2018.

Sjálfstæðisflokkurinn vill tafarlaust endurskoða núgildandi aðalskipulag Reykjavíkur. Að alskipulagið þarfnast betra jafnvægis í þéttingu byggðar og nýrra byggingarsvæða.

Samfara áframhaldandi þéttingu byggðar skal leggja áherslu á nýtingu byggingarlands austan Elliðaáa.

Fullt tillit skal tekið til lífsgæða íbúa og umhverfis.

Sjálfstæðisflokkurinn telur mikilvægt að standa vörð um græn og opin svæði í borginni og hlúa að náttúruperlum, svo sem Elliðaárdal, Laugardal, Öskjuhlíð og svæðinu í kringum Reynisvatn.

Reykjavíkurflugvöllur verði í Vatnsmýrinni í aðalskipulagi í óskertri mynd. Staðsetningu flugvallarins verði ekki breytt nema annar betri kostur bjóðist. Sjálfstæðisflokkurinn hefur lengi lagt áherslu á mikilvægi góðra samgangna í borginni, hvort heldur sem um er að ræða hjólreiðar, gangandi vegfarendur, almenningssamgöngur, leigubíla eða einkabíla.

Góðar samgöngur eru undirstaða nútíma lífshátta. Undanfarna áratugi hefur þessum málum hins vegar ekki verið sinnt sem skyldi í Reykjavík. Öryggi í umferðarmálum hefur vikið fyrir gæluverkefnum. Nauðsynlegt er að forgangsraða í þágu viðhalds og uppbyggingar á vegakerfi höfuðborgarinnar með öryggi að leiðarljósi. Meðal brýnna samgönguverkefna má nefna Sundabraut, bætt umferðarflæði Miklubrautar og tengingar við önnur sveitarfélög. Örar tæknibreytingar munu setja mark sitt á samgöngur framtíðarinnar og þarf skipulag að taka tillit til þess.

Stefna Sjálfstæðisflokksins í skólamálum byggist á því að allir nemendur hafi aðgang að námi sem hentar hverjum og einum. Hagsmunir nemenda skulu ávallt vera miðpunktur stefnumörkunar og framkvæmda í skólum borgarinnar. Lögð verði áhersla á að auka fjölbreytni í skólastarfi og fjölga valkostum í námsleiðum og rekstrarformi skóla.

Áhersla verði færð frá miðstýringu í átt að auknu sjálfstæði og sveigjanleika í skólastarfi. Efla þarf tengsl skóla og atvinnulífs. Lögð verði áhersla á að kynna tækni- og iðngreinar fyrir börnum til að fleiri nemendur skili sér í iðnog tækninám.

Meginviðfangsefni skólastarfs er aukinn námsárangur og framfarir í námi og kennslu. Til að meta þann árangur þarf reglubundnar mælingar og viðmið sem öllum eiga að vera aðgengileg. Auka þarf gagnsæi í árangursmælingum. Tryggja þarf aðgengi allra skóla að viðeigandi og stöðluðum skimunar- og mælitækjum.

Gera þarf átak í endurbótum og viðhaldi á skólahúsnæði, sem víða er í slæmu ásigkomulagi vegna langrar vanhirðu. Sömuleiðis þarf að lagfæra og bæta skólalóðir og skólaumhverfi.

Hér hefur einungis verið tæpt á nokkrum atriðum en í framhaldinu verður gerð grein fyrir fleiri góðum ályktunum sem samþykktar voru á hinu glæsilega Reykjavíkurþingi um helgina."

Þegar maður ekur hér um í Orlando og sér umferðarmannvirkin þar sem hnútapunktar hraðbrautanna liggja á mörgum hæðum á forsteyptum gulum brúarmannvirkjum með grænum burðarbitum þá hljóma fyrir eyrunum yfirlýsing stjórnmálamanns uppi Íslandi:

"Tími mislægra gatnamóta er liðinn"

Hvernig geta menn látið svona út úr sér? Hvernig getur fólk kosið menn til ábyrgðarstarfa sem þannig hugsa?

Einkabíllinn er það samgöngutæki sem allir kjósa sér ef þeir mögulega geta. Það þarf þvi að vinna að því að greiða fyrir þeim lífskjarabótum almennings sem gera bílaeign mögulega.Einstæðar mæður geta ekki notað strætóa eða hjólhesta til að skutlast með börnin í leikskóla, fara í tvær vinnur, skjóta börnum í íþróttir aða á bíó. Hvaðan er það fólk sem heldur að þetta sé nútíminn?

Flugsamngöngur þurfa að vera almenningseign. Reykjavíkur- flugvöll þarf að fara að nýta betur og stórauka þaðan millilandaflug. Þannig geti menn skroppið til London fyrir hádegi og komið til baka að kvöldi án þess að leggja á sig margra klukkustunda ferðalag suður til Keflavíkur og til baka fyrir einn skreppitúr.

Reykjavíkurflugvöllur er vannýtt auðlind  Borgarbúa sem þarf að hlúa að. Hugsanlega þarf að lengja einhverjar brautir út í sjó en ekki að loka þeim.

Hvernig getur fólk kosið fólk til starfa sem vill loka þeirri perlu höfuðborgarsvæðisins sem  Reykjavíkurflugvöllur er  og setja þar upp strætóstoppistöð á Aðalskipulagi? Leggur til í alvöru að byggja annan flugvöll í túnfæti Keflavíkur  fyrir 150 milljarða ofan á virku eldfjalli? 

Það mun vora að ári þegar Sjálfstæðisflokkurinn mun taka við áhrifum í Borginni og núverandi vinstra afturhaldi og óstjórn þess, umferðarfíflagangi og Borgarlínufabúleringum verður komið frá völdum út á öskuhauga stjórnmálasögunnar. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Ég er nú ekki hrifinn af meirihlutanum í Reykjavík en Kjartan Magnússon, guð minn góður. Hvílíkt dauðyfli. Með þetta lið innanborðs er ekki fræðilegur möguleiki fyrir sjálfstæðismenn að vinna borgina.

Jósef Smári Ásmundsson, 22.5.2017 kl. 19:27

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Þú kannskibara skellir þér í pfrófkjör og reddar flokknum?

Halldór Jónsson, 22.5.2017 kl. 20:31

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Það má nú ekki kenna borgarfulltrúum Sjálfstæisflokksins um ástandið. Það er alveg sama hvað þeir segja, Dagur gefur skít í það og veður áfram í villunni með Hjálmari. Þeir eru rökheldir báðir og það er vita tilgabngslaust að ræða við þá um nokkurn hlut. 

Halldór Jónsson, 22.5.2017 kl. 20:33

4 Smámynd: Kristmann Magnússon

Hef nú ekki hugmynd um hver þessi Jósef er en tek heilshugar undir það sem hann segir.  Það vantar ný og einhver góð andlit í framboð fyrir XD í Reykjavík.  Þessi sem fyrir eru duga ekki til að flokkurinn nái einhverju fylgi - því miður 

Kristmann Magnússon, 22.5.2017 kl. 20:57

5 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Að sjálfsögðu bera borgarfulltrúarnir ábyrgðina, Halldór. Ekki nema þú ætlir að halda því fram að stefnan sé röng ? 

Jósef Smári Ásmundsson, 22.5.2017 kl. 21:35

6 Smámynd: Halldór Jónsson

Nei Jósef

bæjarfulltrúar  haldsins sem fá engu ráðið fyrir Degi og kommunum geta ekki borið neina ábyrgð á fíflaganginum á Hofsvallagötu eða Grensásvegi, Miklubrautinni eða holunum í götunum. Þetta er allt á ábytgð Dags, Hjálmars og Halldórs Pírata, sem ber mesta ábyrgðina fyrir utasn kjósendurna sem kusu þá.Þeim er mátulega í rass rekið.Ekki vorkennik ég þeim. Kjartan greyið getur ekkert gert að þessu, þú verður að viðukenna það. Ef hann væri borgarstjóri í stað Dags eer þó alveg klárt hvað hann myndi gera öðruvisi en þeir sem stjórna.   . 

Halldór Jónsson, 23.5.2017 kl. 00:08

7 identicon

 Kjartan sýnir og sannar með grein sinni, að hann er fæddur foringi, og að mínu mati er það hann, sem ætti að leiða lista flokksins í Reykjavík, frekar en Halldór, enda veit ég, að það eru svo skiptar skoðanir um Halldór hérna, að það væri hagstæðara að láta Kjartan leiða listann og vera foringjann. Hann hefur líka haft sig meira í frammi en Halldór og er skorinortur. Maður veit alltaf, hvar hann stendur, en það er satt, sem hefur verið sagt um Halldór, að það hefur farið alltof lítið fyrir honum, og maður veit ekki alltaf, hvar maður hefur hann. Ég trúi, að Sjálfstæðisflokkurinn myndi fá meira í sinn hlut í kosningunum næsta vor, ef Kjartan leiddi listann. Hann á það líka fyllilega skilið.

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 23.5.2017 kl. 11:18

8 Smámynd: Halldór Jónsson

Verða Sjálfstæðismenn ekki að ákveða hver á að vera í efsta sæti. Halldór vann síðast og er oddviti. Kjartan getur margt og efur hæfileika. Veerður ekki skorið úr því af flokksmönnum hver á að leiða?Getur einhver annar gert það?

Halldór Jónsson, 23.5.2017 kl. 11:27

9 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Það verður að vera mannaskipti í Sjálfstæðisflokknum Reykjavík,  annars fá þeir Dagur B og Holuhjálmar endurnýjun á umboði fáránleikans í fjögur ár í viðbót.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 23.5.2017 kl. 15:40

10 identicon

Þar sem ég er hvorki Reykvíkingur né Sjálfstæðismaður hefur mín skoðun frekar lítið vægi, en Kjartan hefur mér sýnst vera kurteis, hógværog viljur að hjálpa borgurunum gegnum kerfisstrúktúrinn. Gott ef hann hefur ekki slatta af heilbrigðri skynsemi.

Fít að hafa hann og þess vegna oddvita, en að sama skapi ólíklegt þar sem frekir besservisserar ráða ríkjiæ

ls (IP-tala skráð) 23.5.2017 kl. 23:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 3417956

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband