Leita í fréttum mbl.is

Takk fyrir mig

og ánægjulega dvöl í Sjálfstæðisflokknum í sveitarstjórnarmálum.

Mér sýnist sá flokkur ekki þarfnast mín lengur til sveitarstjórnarkosninganna á vori komanda. Ég skil líklega ekki pólitík lengur og verð því að segja pass.

 

"Samkomulagið


Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu skrifuðu fyrir helgi undir samkomulag um innleiðingu hágæða almenningssamgangna. Hluti af því samkomulagi er að farið verði í viðræður við innanríkisráðuneyti og fjármálaráðuneyti ásamt Vegagerðinni um formlegt samstarf um fjármögnun og nauðsynlegar lagabreytingar.

Það er því mat okkar, borgarstjóra og bæjarstjóranna á höfuðborgarsvæðinu, að ný ríkisstjórn verði að koma að uppbyggingu hágæða almenningssamgöngukerfis á höfuðborgarsvæðinu í samstarfi við sveitarfélögin og eftir atvikum einkaaðila.

Um borgarlínuna ríkir algjör samstaða meðal sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Með samstilltu átaki getum við aukið þjónustu við íbúana á svæðinu og lífsgæði þeirra um leið. Við getum dregið úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda, fækkað slysum, stóraukið flutningsgetu samgöngukerfisins og minnkað fjárþörf til viðhalds vegakerfisins. Með tilkomu borgarlínu fæst hvatning til íbúa til að breyta ferðavenjum sínum – enda mun forgangsakstur hraðvagna eða léttlesta með hárri tíðni gera mörgum kleift að ferðast hraðar á milli staða en á einkabílnum.

Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs
Ásgerður Halldórsdóttir, bæjarstjóri Seltjarnarness
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar
Haraldur Líndal, bæjarstjóri Hafnarfjarðar
Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar "

 

Miklir hljóta hæfileikar Dags B. Eggertssonar á stjórnmálasviðinu að vera þegar  Sjálfstæðismenn í sveitarstjórnum láta hann hafa slíka forystu fyrir sér í Borgarlínu-, léttlestakerfinu og flugvallarmálinu  í stríðinu við nútímann og einkabílinn.

Eru þeir bæjarstjórar allir núna sameinaðir í að tryggja Degi B. og hans fólki áframhaldandi völd í Reykjavík?

Hafa þau Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri í Kópavogi, Ásgerður Halldórsdóttir á Seltjarnarnesi og Gunnar Einarsson í Garðabæ tekið sæti í endurkjörsnefnd Dags B. Eggertssonar og vinstri meirihlutans í Reykjavík? 

Sjálfstæðisflokkurinn þarf greinilega ekki á mínu atkvæði að halda að vori þar sem upprunnir virðast nýir tímar.Ég á ekki samleið með Degi B. Eggertssyni og hans stefnumálum.

 

Lifi þetta góða Sjálfstæðisfólk marga góða Daga og takk fyrir mig.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Það var maður að nafni Sigurgeir Sigurðsson sem kom Seltjarnarneshreppi seina Seltjarnarnesbæ í það glæsilega bæjarfélag sem það er í dag og var alltaf með lægsta útsvar.

Síðan að kerlingar fíflið Ásgerður tók við, þá er allt á niðurleið og útsvarið á bæjarbúa ekki lengur það lægsta á landinu.

Burtu með þennan kerlingar asna næsta vor, enda eiga kerlingar ekki að vera í valda og áhrifastöðum,

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 25.5.2017 kl. 02:02

2 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Er algjörlega sammála því að þessi borgarlína er heimskuleg hugmynd og á aldrei eftir að ganga upp.

Jósef Smári Ásmundsson, 25.5.2017 kl. 06:58

3 Smámynd: Jónatan Karlsson

Sæll Halldór

Þar kom að því að mælirinn fylltist.

Spurningin er nú aðeins hvort Sigmundur eða nafni þinn í Holti koma til með að öðlast stuðning þinn.

Enn og aftur til hamingju og eins og maður segir:

Batnandi fólki er best að lifa.

Jónatan Karlsson, 25.5.2017 kl. 07:53

4 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Se ad nafn baejarstjorans i Mosfellsbae er einnig a thessum lista. Er thad midur og ljost ad ekki adeins missi Sjalfstaedisflokkurinn i Mosfellsbae atkvaedi mitt, heldur allrar fjolskyldunnar og telur hun talsvert. Allt tal um borgarlinu, sem sennilega mun kosta yfir eitt hundar thusund milljonir, er svo galid ad engu tali tekur. Hofudborgin er nanast a kupunni, born eru vannaerd a leikskolum, gatnakerfid rustir einar af vanhirdu og vidhaldsleysi a storum koflum og svo maetti lengi telja. A sama tima thenst skrifraedisbaknid ut og upp um margar haedir i stjornsyslu borgarinnar. Thvi meira sem thad vex, thvi minna kemur af viti ur theim ranni. Borgarlina er thvaela, hvernig sem a thad er litid og hver sa baejarstjori sem ritar nafn sitt undir thessa vitleysu, i nafni sins baejarfelags, aetti ad bera thetta mal undir sveitunga sina, adur en ritad er undir vitleysuna. Aetla nagrannasveitarfelog Reykjavikur og baejarstjornir theirra virkilega ad eltast vid thvaeluna ur borgarstjorn, Daginn inn og Daginn ut? Ef svo er, eru Hjalmar ekki naudsynlegir.

Godar stundir, med kvedju ad sunnan. 

Halldór Egill Guðnason, 25.5.2017 kl. 08:45

5 identicon

Égf hef nú áður minnst á það í kommenti hér á blogginu og

ætla að endurtaka það.

Sjaldan ef ekki aldrei hefur annað eins rusl komist til í

stjórnmálinn og nú eru. Gnarr grínið er búið að eyðileggja

Reykjavík og búið að breyta öllu þar úr Degi í Nótt.

Svo toppar fáránleikinn allt með þessari borgarlínu, sem

ríkið á svo að borga. Ef að hatrið á einkabílnum væri ekki svona

mikið, en það er vegna þessa Dagsundrið, býr í 101, þá væri

ekkert umferðarvesen. Búið að þrengja og eyðileggja margar

götur, allt til þesss að skapa umferðartafir og teppur svo

hægt sé svo að benda á borgarlínu sem á að bjargar öllu. 

Hoppa svo aularnir í hinum sveitrafélögunum á vagninn á meðan

öll þessi bjarfélög þyrftu að fara taka til hjá sér vegna

óreiðu og skulda. Nú hafa Ármann, Gunnar og Ásgerður tryggt

áframhaldandi set Dags og fellt sjálfstæðismenn út þar sem

þau sitja.

Allgjör Dags-snilld.

Sigurður K Hjaltested (IP-tala skráð) 25.5.2017 kl. 08:56

6 identicon

Er ekki von til þess að það fari fram prófkjör fyrir næstu sveitarstjórnar kosningar og þannig væri hægt að losna við bæjarstjórana Hjálmar á hjólinu og Dag. Eftir fall þeirra yrðu þessir hér að neðan eins og veðurvitarátt og stefnulausir.

Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs

Ásgerður Halldórsdóttir, bæjarstjóri Seltjarnarness

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar
Haraldur Líndal, bæjarstjóri Hafnarfjarðar
Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar "

Ef það gæfi sig framframbærilegt fólk til framboðs næsta vor væri hægt að  henda þessu fólki sem að ofan er nefnt ásamt borgarlínuhugmynd þeirra.

 

Eðvarð Lárus Árnason (IP-tala skráð) 25.5.2017 kl. 09:49

7 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Nú Halldór ég sé nú enga stóra stefnubreytingu við þetta eitt. Þeir sem hafa gaman af stærðfræði eiga ekki heima í þessum hópi. Þeim gæti dottið í hug hvort þetta borgaði sig. Hvað eru þetta mörg Vaðlaheiðagöng? ....og enginn ber ábyrgð. 

Sigurður Þorsteinsson, 25.5.2017 kl. 11:01

8 identicon

Sæll Halldór.

Vinstri flokkarnir eru sjálfkjörnir
til valda næstu 10-15 árin í Reykjavík.

Sjálfstæðismenn uppskáru svo sem til var sáð
og árið tæpast liðið í aldanna skaut þegar
virtist að jafnvel borgarfulltrúar þeirra sjálfra
hefðu skipt um nafn og kennitölu; hagað seglum eftir vindi.
Af ávöxtunum skulið þér þekkja þá!

Einfaldast er að sleppa kosningum 2018 í Reykjavík
og að þeir peningar sem annars hefðu farið í slíkt
rynnu beint í himnalestina!

Húsari. (IP-tala skráð) 25.5.2017 kl. 11:28

9 Smámynd: Óðinn Þórisson

Sæll Halldór - Ármann ræddi borgarlínuna á síðasta fundi Sjálfstæðisfélgs Kópvogs og það voru margir sem voru beinlíns ekki sáttit við hann og vörðu við þessari borarlínu.

Óðinn Þórisson, 25.5.2017 kl. 12:02

10 Smámynd: Halldór Jónsson

Sæll Óðinn

ertu að segja að séu fleiri jafnheimskir og ég í Kópavogi að sjá ekki ljósið?

´Getur verið að menn getgi lifað heila ævi, farið í Borgarlínuna og keyrt með henni í vinnuna sína og síðan með línunni til baka og heim.Fara aldrei útfyrir þennan öxul.Barnið fer í leikskólann, grunnskólann, menntaskólann,Háskólann, kirkjuna til að gifta sig, á vinnustaðinn, svo spítalann til að deyja og svo i krkjugarðinn sem allt liggur á þessari línu og kvíslum hennar.

Hvernig fer maður í berjamó með fjölskylduna? Hvernig fer hún í sunnudagstúrinn sinn? Hvernig fer hún í Bláfjöll á skíði? Ef hún bara sleppir þessu þá minnkar kolenisfótsporið greinileg mest.

Halldór Jónsson, 25.5.2017 kl. 13:21

11 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Gott hjá þér Halldór.

Þessi stimpilklukka fulltrúa íbúanna út úr veruleikanum slær öll met innan ging gong tikk takk fullt klikk greinarinnar sem áður var vettvangur bankanna. Lágmark 200 tonn af járnarusli á hvern staurblankan farþega skuli nú koma skröltandi á kostnað borgaranna. Þvílík fífl sem þetta fólk er. Grasasnar í Stalínstíl. 

Vona má að Seðlabankinn hækki stýrivextina til að koma þessari vitfirringu fyrir kattarnef, þannig að í staðinn verði byggt nýtt Kópavogshæli sérstaklega fyrir þessa á-bæjarstjórnarmenn, því ekki er hægt að kalla þá sveitastjórnarmenn. Þetta er fullkomið fávitahæli.

Þetta er náttúrlega frábær byggðastefna fyrir allt landið. Þegar höfuðborgarréttindin verða svo tekin af þessum fíflum þá skála ég og þakka fyrir mig. Þetta verður stórkostlegt tækifæri fyrir okkur á landsbyggðinni. Síldin er að koma aftur til okkar, í tunnum frá Reykjavík & Co.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 25.5.2017 kl. 13:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 3
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 3417958

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband