Leita í fréttum mbl.is

Lífið á Línunni!

verður þaulskipulagt. Öllu verður fyrirkomið svo að menn geti lifað og dáið á beinni línu eða í besta falli á hliðarlínu frá aðallínu.

Það er líklega að fólk geti lifað heila ævi, farið í Borgarlínuna og keyrt með henni í vinnuna sína og síðan með línunni til baka og heim.Fara aldrei útfyrir þennan öxul.Barnið fer í leikskólann, grunnskólann, menntaskólann,Háskólann, kirkjuna til að gifta sig, á vinnustaðinn, svo spítalann til að deyja og svo i kirkjugarðinn sem allt liggur á þessari línu og kvíslum hennar.

Hvernig fer maður í berjamó með fjölskylduna?

Hvernig fer fjölskyldan í sunnudagstúrinn sinn? Hvernig fer hún í Bláfjöll á skíði?

Ef hún bara sleppir þessu þá minnkar kolefnisfótsporið greinileg mest. Ekki þarf að leggja nýjar akreinar sem þá ekki fyllast af bílum? Ekki þarf öll þessi bílaumboð sem eru að auglýsa bíla á öllum miðlum alla daga?

Ég velti fyrir mér hvernig verði hægt að koma þessari stefnubreytingu við hér í Orlando. Hvað megi byggja margar blokkir á öllum þeim akreinum sem losna við það að allir keyri á blökkustrætóunum Lynx? Hvað verður um alla skólabílana? Hvert fara allar þessar flugvélar þegar komin er skiptistöð borgarlínunnar og svo blokkir á McCoy flugvöll? Hvar lenda Flugleiðir þá?

Hvað verður gert við allar stóru brýrnar sem liggja 4 í hæð þvers og kruss í beygjum og beint þegar enginn þarf að fara neitt því að sósíalisminn sem kannski verður kenndur við ÁrDag eftir höfundunum uppi á Íslandi(maður verður að gera kröfur fyrir sinn heimanbæ) hefur tekið völdin hér í bæjarstjórn Orlando?

Er ekki rétt að senda þá Ármann og Dag hingað út til þessa að þeir geti hagrætt í samgöngumálum og minnkað útblásturinn hjá sér hérna í Orlando? Það er samt vissara að gæta þess aðð þeir verði ekki settir á geðveikrahæli í misgripum þegar sýningin þeirra byrjar. 

Það gætu orðið spennandi kosningar hérna í Florida þegar þeir fatta hvað Íslendingar eru sniðugir.

Lífið á Línunni er auðvitað það sem koma skal! 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Glötuðu Bankarnir eru komnir aftur, því það er kominn einn fimmkall í kassann á ný.

Þessi stimpilklukka svo kallaðra fulltrúa íbúanna út úr veruleikanum slær öll met innan ging gong tikk takk fullt klikk greinarinnar sem áður var sérvettvangur bankanna. Lágmark 200 tonn af járnarusli á hvern staurblankan farþega skuli nú koma skröltandi á kostnað borgaranna. Þvílík fífl sem þetta fólk er. Grasasnar í Stalínstíl.

Vona má að Seðlabankinn hækki stýrivextina til að koma þessari vitfirringu fyrir kattarnef, þannig að í staðinn verði byggt nýtt Kópavogshæli sérstaklega fyrir þessa á-bæjarstjórnarmenn, því ekki er hægt að kalla þá sveitastjórnarmenn. Þetta er fullkomið fávitahæli.

Þetta er náttúrlega frábær byggðastefna fyrir allt landið. Þegar höfuðborgarréttindin verða svo tekin af þessum fíflum þá skála ég og þakka fyrir mig. Þetta verður stórkostlegt tækifæri fyrir okkur á landsbyggðinni. Síldin er að koma aftur til okkar, í tunnum frá Reykjavík & Co.

Húrra! Loksins!

Gunnar Rögnvaldsson, 25.5.2017 kl. 14:14

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk fyrir skemmtilegar undirtektir Gunnar, þú ert greinilega að fatta þetta eins og ég.Það er ekki hægt að segja að Botninn sé uppi í Borgarfirði hjá þessum Bakkabræðarum sem taktinn slá.

Halldór Jónsson, 25.5.2017 kl. 14:38

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Það er áfall að sjá svona svart á hvítu að EKKERT jarðsamband sé til staðar hjá þessu fólki. Það er greinilega orðið vant því að peningarnir vaxi gratís á trjám annarra en þeirra sjálfra. Þetta eru orðnar opinberar ryksugur.

Hvað er eiginlega að þessu fólki? Þetta fólk lifir í einhverjum ofurheimi innvortis múgsefjunar. Maður myndi kannski nenna að taka upp tólið og hlusta ef að um nokkurrar milljóna manna borg væri að ræða þar sem allt pláss væri á þrotum.

En værsgo og takk: þetta hér er einfaldlega hrein og skær geðbilun!

Ef ég byggi þarna enn, þá myndi ég selja eignir mínar og koma mér burt áður en allt fasteignaverð húrrar þarna til andskotans. En þangað er Reykjavík á leiðinni. Ég vissi hins vegar ekki að Kópavogur væri komin í sjálfsmorðshugleiðingar líka. 

Gunnar Rögnvaldsson, 25.5.2017 kl. 14:52

4 identicon

Auðvitað á að endurvekja Strætisvagna Reykjavíkur, rútur til Hafnarfjarðar í Garðabæ og í Kopavog !

Það sjá það allir vitlausustu sjálfstæðismenn langar leiðir, að eitthvað nýtt sem kemur öllum vel er óðsmanns æði og það mun enginn sjálfstæðismaður með góðu nafni græða á því !

Jón (IP-tala skráð) 25.5.2017 kl. 15:18

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Það er nóg að lækka álögur hins opinbera ryksugufélags á bensín og bifreiðar - Jón.

Síðan ætti þetta fólk að koma sér í vinnuna og reyna að gera þar gagn sem fulltrúar fólksins, sem er pay-master þeirra. Annars á að reka það allt!

Gunnar Rögnvaldsson, 25.5.2017 kl. 15:23

6 Smámynd: Jónas Gunnlaugsson

Halldór skrifar.  "Kostnaðaraukningin varð 8 % við þessi skipti."

Við að nota steinsteipu í staðin fyrir malbik varð 8% aukakostnaður.

Það sýnist sem að steinsteipan marg borgi sig.

Getum við trúað því að olíufélögin, og þá Flóa ríkin, sem eiga líka Federal Reserve, og þá dollarann, og þá líka NWO, það er New World Order, stjórni sveitarfélögunum á Íslandi. 

Reynum að hugsa.

Egilsstaðir, 25.05.2017  Jónas Gunnlaugsson

Jónas Gunnlaugsson, 25.5.2017 kl. 21:42

7 Smámynd: Jónas Gunnlaugsson

Þessi athugasemd átti að fara á.

17.5.2017 | 14:50

Malbik er ónýtt efni

Egilsstaðir, 25.05.2017  Jónas Gunnlaugsson

Jónas Gunnlaugsson, 25.5.2017 kl. 21:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband