Leita í fréttum mbl.is

Lífeyrissjóðasukkið

hef ég árangurslaust reynt að vekja upp umræður um en rekst á vegg samræmdrar þöggunar.Svo fjölmennur hópur étur úr sjóðunum og veltir sér upp úr lúxus í eigum sjóðsfélaganna. Stjórnunarkostnaður er brjálaður og ekki í nokkru samræmi við umfangið.

Vilhjálmur Birgisson verkalýðsforingi á Akranesi tekur loksins undir þetta og skrifar svo á Facebook í dag:

Steve Edmundson"Hugsið ykkur að einn maður að nafni Steve Edmundson stýrir 35 milljarða dala lífeyrissjóði fyrir opinbera starfsmenn í Nevada í Bandaríkjunum.

Takið eftir að miðað við gengi Bandríkjadollarans í gær er þessi lífeyrissjóður sem þessi eini maður stjórnar jafn stór og allt lífeyriskerfið okkar eða um 3500 milljarðar íslenskrar króna.

Það kemur líka fram í þessari frétt að árslaun Steve eru rétt rúmir 127 þúsund dalir, eða sem nemur 1,1 milljón á mánuði.

Á litla Íslandi erum við með um 33 lífeyrissjóði og það kostar um eða yfir 10 milljarða á ári að reka okkar lífeyrissjóðskerfi.

Þessi rekstarkostnaður lífeyrissjóðanna er líka uppundir helmingi hærri en sú upphæð sem það kostar að reka æðstu stjórn íslenska ríkisins. Þar undir eru Alþingi, Ríkisendurskoðun, ríkisstjórnin, Hæstiréttur, embætti forseta Íslands og umboðsmaður Alþingis. Heildarkostnaður við þessa æðstu stjórn nemur 5 milljörðum á árinu 2016 samkvæmt fjárlagafrumvarpi.

Það er semsagt ekki bara að einn maður í Bandaríkjunum stjórni einn lífeyrissjóði sem er jafn stór og allt lífeyriskerfið okkar heldur er rekstrarkostnaður íslensku sjóðanna helmingi meiri en kostar að reka æðstu stjórn ríkisins!

Er ekki eitthvað skrítið við þetta? Og þarfnast þetta ekki umræðu og skoðunar?"

Það er gott til þess að vita að jafn mikilsvirtur maður og Vilhjálmur veki loks athygli á því spillingardíki sem lífeyrissjóðakerfið er með uppkaupum sínum á hlutabréfum margra stærstu fyrirtækja landsins og stjórnarsetum og lúxus lífeyrissjóðafósanna, jeppaeign og hvaðeina.

Þetta er alþjóðarhneyksli. Þessir menn leika sér að því að tapa hundruðum milljarða án þess að eigendur æmti né skræmti. Það er bara lækkaður lífeyririnn og búið spil Enginn ábyrgur.

Hversu miklu tapar Edmundsson á ári? Skyldu menn tala um Lífeyrissjóðasukk þegar menn skoða skrifstofuna hans? Hversu stór ætli bíllinn hans sé? Og er honum greidd of há laun?

Viðskiptablaðið skýrir frá eftirfarandi:

"Steve Edmundson stýrir 35 milljarða dala lífeyrissjóði fyrir opinbera starfsmenn í Nevada í Bandaríkjunum.

Lífeyrissjóðurinn þykir þó nokkuð óeðlilegur, enda starfar aðeins einn einstaklingur hjá sjóðnum sem sjóðstjóri.

Wall Street Journal hefur fjallað um sjóðinn, enda hefur hann verið að skila lífeyrisþegunum betri ávöxtun en aðrir lífeyrissjóðir vestanhafs.

Forðast stressið

Edmundson forðast stressið sem flestir í fjármálaheiminum kannast við. Hann vinnur helst ekki nema bara milli 8 og 5.

Sjóðstjórinn reynir einnig að forðast að borða hádegismat á veitingahúsum. Eiginkona hans undirbýr oftast handa honum samloku og svo keyrir hann í vinnuna á 2005 Honda Element.

Edmundson reynir einnig að forðast það að lesa fréttir og samkvæmt opinberum gögnum námu árslaun kappans um 127.122 dölum.

Vill halda kostnaði lágum

Edmundson reynir ekki að sigra markaðinn með flóknum formúlum, heldur einbeitir hann sér að því að lágmarka kostnað og dreifa áhættu.

Meginþorri peningana rennur í ódýra vísitölusjóði, sem eiga að elta hlutabréfa og skuldabréfamarkaði.

Mikil áhættudreifing gerir Edmundson einnig kleift að hafa litlar áhyggjur af Trump og Brexit.

Breytti fyrirkomulaginu

Edmundson breytti fyrirkomulagi sjóðsins umtalsvert, þegar hann hóf störf árið 2005. Þá voru um 60% af peningum lífeyrisþeganna í vísitölusjóðum.

Árið 2012 tók hann sig svo til og rak alla sjóðstjórana og kom öllu fjármagninu í vísitölusjóði.

Í dag starfar hann einn og reynir að gera sem minnst, sem að hans sögn reynist erfiðara en það hljómar."

Hvort er þetta Lífeyrissjóðasukk hjá okkur Íslendingum eða  er Edmundson ekki að vinna vinnuna sína?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Góð grein og þörf.  Ég hef lengi vakið máls á lífeyrissjóðasukkinu en mjög sjaldan fengið viðbrögð og oftast hafa þau verið á þann veg að ég viti ekki um hvað ég sé að tala.  Ég vil benda þér á þó nokkuð góða úttekt á lífeyrissjóðunum, sem Ómar Skapti Gíslason skrifaði árið 2015, sem lokaverkefni í Viðskiptafræði við HA.  Þessi ritgerð er á "Skemmunni" og er öllum opin.

Jóhann Elíasson, 15.6.2017 kl. 15:36

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk fyrir það Jóhann

Halldór Jónsson, 15.6.2017 kl. 15:55

3 identicon

Sæll Halldór - sem og aðrir gestir, þínir !

Halldór !

Líkt: og til þíns sjálfs, sem margra annarra mætra manna (Páls Vilhjálmssonar / Jack´s Daniels / Sveins Pálssonar og Jónasar Kristjánssonar:: auk fjölda annarra), hefir Vilhjálmur á Skaganum, auk þeirra Ragnars Ingólfssonar (VR) og Aðalsteins Baldurssonar á Húsavík fengið afsteypur minna Tölvupóstssendinga, til Ríkissaksóknara - Umboðsmanns alþingis - Hæstaréttar - Dómstólaráðs, að ógleymdum Ríkislögreglustjóra m.a., varðandi orðinn ÞJÓFNAÐ (frá árunum 2004 - 2008 kr. 153.700.00) á mínum fjármunum, af hendi Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda, auk tilraunar sjóðsins, til þess að rukka mig um 179.772.00 krónur til viðbótar, fyrir árið 2009.

Skemmzt er frá því að segja - að Ríkissaksóknari og Umboðsmaður alþingis hafa hvorutveggju: staðfest móttöku ákæra minna, á hendur forkólfa 5 Lífeyrissjóða í landinu: persónulega, sem munu fá að finna til Tevatnsins, endist mér erindið, til löngu tímabærra hefnda, gagnvart þessu liði.

Íslenzka Lífeyris sjóða flóran - eru hrein og klár ÞJÓFNAÐA bæli úr vösum launþega, studd af ólögum alþingis fárán leikans, auk ASÍ og SA:: að ógleymdum Molbúunum í Viðskipta ráði / Samtökum Verzlunar og þjónustu, auk fjölda annarra makræðis holu klúbba, hérlendis.

Auðvitað: finnur Vilhjálmur Birgisson til íslenzka fárán leikans í þessum efnum, þegar hann dregur Nevada dæmið, til samanburðarins, og vitaskuld styðjum við hann af alhug, í hans viðleitni, til þess að farga soranum, hérlendis.

Þér að segja Halldór - víbra fíflin hjá Lögmannafélaginu / ASÍ (Gylfi Arnbjörnsson og Sigurður Bessason, auk annarra), sem og Samtaka atvinnulífs hvítflibbarnir af skelfingu þessi misserin OG ÞURFA AÐ FÁ AÐ GERA ÞAÐ, verði Sólarljósinu varpað í inn Myrkra holur Lífeyrissjóðanna:: já, og ekki síður hinna fjárglæfra bælanna íslenzku (Banka Mafíunnar: meðtalinnar).

Og: minnumst líka, 20 Milljóna króna Bónus Framtakssjóðsins, þess nýjasta, hverjum visir.is greindi frá, gærdegis  !!! 

Með - hinum beztu Kúómingtang hreyfingar (Chiangs Kai- shek heitins Herstjóra á Taíwan 1887 - 1975), kveðjum af Suðurlandi, sem endranær /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 15.6.2017 kl. 15:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 3
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 3417958

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband