Leita í fréttum mbl.is

Hvað er til bragðs?

að taka fyrir eldri borgara?

Ég hef lengi dáðst að baráttugleði ýmissa áhugamanna fyrir bættum kjörum aldraðra. Má nefna þá Björgvin Guðmundsson sískrifandi og þá Helga K. Hjálmsson  og Erling  Garðar  Jóhannsson sem hafa skrifað margt um þessi mál og rifja gjarnan upp staðreyndir um brigðmælgi stjórnmálamanna úr öllum flokkum.

Meginniðurstaða mín eftir að fylgjast með þessu er að stjórnvöld á hvaða tíma sem er standa ekki við fyrirheit til eldri borgara sem þeir gefa  um kosningar. Hugsanlega reikna þeir þetta þannig út að þeim sé pólitískt stætt á því að gera eitthvað annað við peninga en að fleygja þeim í slík ábyrgðarlaus kosningaloforð. Enda er það lenska hérlendis að slík loforð séu aðeins efnd eftir efnum og ástæðum. Þess vegna bregður mörgum í brún þegar maður eins og Donald Trump fer allt í einu að efna kosningaloforð sín. Það er eins og menn eigi slíku ekki að venjast og standi bara þrumulostnir?

Hvað er til bragðs að taka þegar ritsmíðar slíkra afbragðsmanna duga ekki til og ekkert breytist? Er stjórnmálamönnum bara ekki nokkuð slétt sama um kjör þessa fólks og huggi sig við það að það slampist einhernveginnn af á eignum sínum.

Mér hefur flogið í hug að eina ráðið fyrir þennan hóp sé að gera póitískar skrúfur. Verkurinn er sá að aldraðir eiga ekkert sameiginlegt í pólitík og hata hvern annan hugsanlega meira en þá sem svíkja þá mest. Þeir eru fyrirfram klofnir.  Er málið þá óleysanlegt?

Nei, ég held ekki.

Mér dettur í hug að lausnin gæti verið sú að Landsamband eldri borgara  fengi einhverja valikunna eldri borgara sem eru tryggir og reyndir flokksmenn viðkomandi flokka og hafa þar traust  til þess að taka þátt í prófkjörum Sjálfstæðismanna, Framsóknarflokksins,   Vinstri Grænum og Samfylkingu. (Varla nokkur eldri borgari fer að daðra við litluflokkakraðakið til vinstri.)

Allir þessir frambjóðendur lýsi því yfir að þeir muni starfa með meirihluta þingflokka sinna og ekki gera þar ágreining í neinum málum. Samþingmenn megi treysta á hollustu þeirra til að fylgja flokknum.  NEMA í þeim málum sem varða kjör eldri borgara. Í þeim málaflokki áskilja þeir sér allan rétt til að greiða atkvæði sjálfstætt eða með öðrum flokkum ef svo ber undir.

Þetta þýðir að pólitískt verður málum ekki komið fram í andstöðu við þessa sveit eldri borgara. Þetta er engin fyrirhöfn þar sem þeir munu ekki endilega leggja mikla vinnu í önnur þingstörf eða kappræður um fundarstjórn forseta. Þeir reisa sig aðeins þegar þeirra málaflokkur kemur á dagskrá. Sameinað afl eldri borgara er notað í prófkjörunum til þess að veita þessum fulltrúum brautargengi. Ef það dugar ásamt almennum kjörþokka frambjóðandans þá er málum  hugsanlega betru komið. 

Ef aldraðir koma þannig einhverjum mönnum á þing þá er fljótt komið að þvi að einhverjir vilji semja við þá en bjóði ekki bara upp á einhliða ákvarðanir. Flokksstarfið hjá viðkomandi flokkum líður ekki fyrir þetta þar sem aldraðir eru trygglyndir og orðheldnir. Þeir eru traustir flokksmenn í sínum flokki en sækjast ekki eftir metorðum. En þeir munu aðeins standa dyggan vörð um hagsmuni eldri borgara þegar svo ber undir.Í öðrum málum fylgja þeir flokkslínunni.

Ég held að þetta geti verið fær leið fyrir eldri borgara til að láta eitthvað gerast í þeirra málum. Annað hefur sýnt sig að duga ekki.Er þá ekki rétt eitthvað annað til bragðs að taka?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 4
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 3417959

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband