Leita í fréttum mbl.is

Hversvegna geta Norðmenn haft 48 tíma reglu?

en Íslendingar ekki þegar kemur að hælisleitendum?

Ég hef heyrt að skýringin sé sú að það hafi komið til skoðunar að taka upp 48 klukkustunda reglu Norðmanna hér á landi en ekki verið talið henta íslenskum aðstæðum.

Norska fyrirkomulagið kalli á aukinn kostnað, t.d. vegna sólarhringsvakta starfsfólks og verulegar breytingar á málsmeðferð sem kann að vera til þess fallið að draga úr trúverðugleika málsmeðferðar.

Þá þurfi að hafa í huga að endursendingar hælisleitenda til heimalands síns rúmast ekki innan 48 klukkustunda reglunnar, þ.e.a.s. það sé hreinlega ekki mögulegt að treysta því að hægt sé að vísa fólki burt af landinu innan 48 klukkustundum  m.a. vegna þess að heimaríki fólksins neiti þá gjarnan að taka við því aftur nema að undangenginni ítarlegri skoðun á gögnum. Í ljósi þessa verði að horfa heildstætt á vandann með það að markmiði að ráðast að rótum hans.

 

Furðar engan á því að Norðmenn geti afgreitt svona mál á 48 klukkutímum? Við höfum ekki mannskap né annað til að fara að eins og þeir. Jafnvel þó að okkar tími yrði vika, þá er það trúlega mun ódýrara að fjölga starfsmönnum heldur en að láta fólkið bíða hér í reiðileysi mánuðum og árum saman.

Á maður að kaupa svona vífillengjur? Ef þessi ríkisstjórn getur ekki leyst þetta mál, hvaða ríkisstjórn getur það þá? 

Af hverju eru flugfélögin ekki látin skanna skilríki allra sem fara um borð í flugvél hingað? Þá er enginn skilríkjalaus í Keflavík? Auðveldara að vita hver maðurinn er.

Ef Norðmenn geta leyst málið á 48 klukkustundum ættum við að geta það á viku.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Norðmenn geti oftast ekki afgreitt svona mál á 48 klukkutímum þó þeir hafi reglu. Við höfum ekki mannskap né annað til að fara að eins og þeir. Jafnvel þó sett væri mikið fjármagn í málið þá búa peningar ekki til fólkið sem okkur vantar. Ríkisstofnanir eiga erfitt með að yfirbjóða fyrirtæki sem ekki eru bundin af fjárlögum og reglum um fjárreiður ríkisstofnana. Eða ert þú að mæla með því að við flytjum inn fólk til að annast afgreiðsluna? Menntað fólk er helst á lausu í Miðausturlöndum þessa dagana.

Meðal afgreiðslutími 2016 voru 80 dagar.

Flugfélögin og öryggisverðir flugvalla skoða skilríki allra sem fara um borð í flugvélar hingað. Og allir hælisleitendur sem hingað koma eru með vegabréf. En auðvelt er að losa sig við vegabréf áður en sótt er um hæli, ekki þarf að sækja um það við lendingu eða á flugvellinum. Stærsta vandamálið er samt að afla upplýsinga frá heimalandinu. Sérstaklega ef þar eru stríðsátök, upplausn eða stjórnvöld sjálf sem eru mesta ógnin fyrir þetta fólk.

Vagn (IP-tala skráð) 19.6.2017 kl. 19:43

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Standast þessar fullyrðingar Vagns?

Flugfélögin og öryggisverðir flugvalla skoða skilríki allra sem fara um borð í flugvélar hingað. Og allir hælisleitendur sem hingað koma eru með vegabréf. En auðvelt er að losa sig við vegabréf áður en sótt er um hæli, ekki þarf að sækja um það við lendingu eða á flugvellinum. Stærsta vandamálið er samt að afla upplýsinga frá heimalandinu. Sérstaklega ef þar eru stríðsátök, upplausn eða stjórnvöld sjálf sem eru mesta ógnin fyrir þetta fólk.

Ertu ekki að búa til vandamál  Vagn? Hvernig geturðu fullyrt að Norðmenn  fari ekki eftir þessu? Af hverju þurfum við að standa öðruvísi að þessu en Norðmenn? Ertu kannski sjálfur hluti af vandamálinu?

Halldór Jónsson, 19.6.2017 kl. 22:55

3 Smámynd: Jónatan Karlsson

Hvers vegna geta Íslendingar sjàlfir ekki ràðið fyrirkomulagi à vörslu landamæra okkar?

Ef kjörnir fulltrúar framfylgja ekki vilja umbjóðenda sinna í þessu màli sem og öðrum, þà eru þeir einfaldlega ekki starfi sínu vaxnir og ættu að hundskast burt.

Eru virkilega engir kjörnir þingmenn à samkunduni inni við Austurvöll sem hafa kjark til að krefjast àlits þjóðarinnar í almennri atkvæðagreiðslu í màli eins og þessu?

Jónatan Karlsson, 20.6.2017 kl. 02:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 57
  • Frá upphafi: 3418168

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 53
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband