Leita í fréttum mbl.is

Hjörleifur og Morgunblaðið

eru greinilega að reyna að innræta landsmönnum trú á að Ísland sé að valda umhverfisskaða í heiminum.

Hjörleifur Guttormsson sá ágæti vísindamaður skrifar enn eina innrætingargreinina um loftslagsmál í Morgunblaðið á miðopnu í dag:

Þar segir m.a.:

".....Losun gróðurhúsalofts út í andrúmsloftið veldur ekki aðeins hækkun hitastigs og sjávarborðs vegna bráðnunar jökla, heldur jafnframt súrnun heimshafanna. Ástæðan er sú að sjórinn tekur til sín um þriðjung gróðurhúsaloftsins sem veldur efnabreytingum og hækkandi sýrustigi sjávar með alvarlegum afleiðingum fyrir lífverur sem byggja stoðkerfi sín á kalki, svo sem skeljar, kórallar og kalk- þörungar. Áhrifin valda keðjuverkun, einnig fyrir fiska, og geta þannig gripið inn í alla lífkeðju hafsins og afrakstur manna af sjávarauðlindum.

Hér eru öll heimsins höf og strandsvæði undir. Samdráttur í losun gróðurhúsalofts af mannavöldum er því lífsnauðsyn eins og viðurkennt var með Parísarsamkomulaginu, en sem bandarísk stjórnvöld hóta nú að draga sig út úr.

– Notkun jarðefnaeldsneytis, kola og olíu, er það sem mestu veldur um losun gróðurhúsalofts með afleiðingum fyrir lofthjúpinn og heimshöfin. Þar við bætast bein óhöpp við vinnslu olíu af sjávarbotni.

Ísland jók við losun gróðurhúsalofts um 28% á tímabilinu 1990-2015. Samkvæmt Parísarsamkomulaginu hyggjast íslensk stjórnvöld ná 40% samdrætti fram til ársins 2030, en það er sýnd veiði en ekki gefin. Þannig gætum við staðið í svipuðum sporum um losun árið 2030 og fyrir fjörutíu árum síðan, sem er allt annað en viðunandi. Olíumengun sjávar er einnig í nokkrum mæli frá landstöðvum, en alvarlegra er að opinberlega stefna íslensk stjórnvöld enn að olíuvinnslu á Drekasvæðinu...."

Annað er vel sagt í greininni eins og um plastmengunina.

En Hjörleifur skautar fram hjá því að áhrif þessarar  gróðurhúsalofttegundalosunar Íslendinga og áhrif þeirra á heimsbyggðina er í besta tilviki byggð á hæpnum forsendum. forsendum. Hann kemur ekki með tölur hvað Holuhraunsgosið hafi losað miklu meira en við getum nokkru sinni framleitt til að losa.

Þetta gerir Donald Trump sér ljóst og því hefur hann dregið Bandaríkin út úr Parísarsamkundu hinna fjörtíuþúsund fífla AlGore. Með þessu afneitar Hjörleifur með öllu áhrif sólarinnar á loftslag á jörðinni hvað sem vitnisburðum jarðsögunnar líður.

Þessi skrif eru ekki mjög samboðin Hjörleifi sem vísindamanni og alls ekki samboðið Morgunblaðinu að ganga svona í lið með þessum einstefnuvísindum sem rýra hag Íslendinga langt umfram hlutfall þeirra í heimsbúskapnum þegar aðalsökudólgarnir sleppa algerlega.

Það á að hvetja fyrirtæki með skattaívilnunum til að umgangast umhverfið með virðingu eins og gert er í Bretlandi. Það er á ábyrgð fyrirtækja að menga ekki meira en hægt er að komast af með. Að blanda lífrænu ethanoli í bensínið er endemis della sem rýir efnahag þeirra landsmanna sem síst skyldi.Óblandað bensínið í Costco hefur sýnt sig að duga til mun lengri aksturs en blandað fyrir utan að vera ódýrara. Þessi dellustefna er að valda hungursneyð um víða veröld hjá þeim sem minnst mega sín þegar maísinn er ekki lengur fæða fólks heldur notaður í bensínbullið sem er ættað frá AlGore og fjörtíu þúsund fíflum hans  sem græðir svo sjálfur ómælt á öllu saman.

Hjörleifur og Morgunblaðið eiga ekki að vera bandamenn í bulli.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband