Leita í fréttum mbl.is

Gjaldtaka af umferðinni

er bráðnauðsynleg.

Verkefnin sem við blasa í innviðamálum okkar lands eru svo risavaxin að við ráðum ekkert við þau með venjulegum smáskammtalækningum og skæklatogi þingmanna milli kjördæma.  Það er miklu nær að menn greiði sanngjarnt gjald fyrir afnot mannvirkja eins og jarðgangna.

Eins og Hvalfjarðargöngin hafa sannað sig með því að þau eru núna uppgreidd. Þá er viðhaldið og reksturinn og endurnýjunin eftir. Af hverju á nýr borgari landsins allt í einu að fá að keyra þau frítt? Það finnst mér bara grundvallarskekkja, svona álíka eins og að gefa krötum leyfi til að selja landið í erlendar hendur ESB eða gefa það til hælisleitenda og flóttamanna.

Verkefnin í innviðum landsins eru svo hrikaleg að við getum aldrei framkvæmt þau með bara fjárlögum.Ég styð  því hugmyndir Jóns Gunnarssonar ráðherra eindregið um að notendur greiði um leið og þeir nota og njóta alls staðar sem því verður við komið. Já útlendingar mega gjarnan greiða meira en innfæddir ef út í það er farið.

Það er ofarlega í mörgum að mega ekki heyra minnst á veggjöld öðruvísi en að rjúka upp í fússi og segja að það sé búið að stela svo og svo miklu af okkur af skattfénu sem átti að renna í vegina en endaði í niðurgreiðslum af lambaketi. Það er allt rétt.

En við af minni kynslóð sem erum búnir að borga allan þennan tíma  erum bráðum dauðir. Það er komið nýtt fólk sem hefur ekki borgað neitt. Af hverju á það að fá allt frítt núna?

Hversvegna á ekki að láta það borga fyrir alla notkun en ekki vera með þennan gamla söng um peningana sem var stolið af okkur þeim gömlu úr framkvæmdunum sem létu okkur hossast í holunum allt okkar blómaskeið?

Þess vegna vil ég fá að borga strax í öll jarðgöng á Íslandi sanngjarnt gjald í hvert sinn sem ég nota þau.  Annað er bara virðingarleysi við gengnar kynslóðir sem lögðu á sig að byggja þau. Og það er bara skömm fyrir þá sveitavargaþingmenn sem misnotuðu aðstöðu sína til að þeirra atvæði kæmust hjá að borga eins og Vestfjarðagöngin og Héðinsfjarðargöngin eru góð dæmi um.  

Sjáum Hvalfjarðargöngin sem dæmi. Hversvegna á 17 ára krakki sem er nýbúinn að fá bíl og bílpróf að fara að keyra þau frítt af því að einhver lán séu uppgreidd? Er ekki réttara að hann greiði eins og við erum búin að gera í tuttugu ár? Og gröfum þá jafnvel önnur göng samsíða fyrir aurinn? Og göng í gegn um Reynisfjall og Fjarðarheiði með sömu aðferð.

Hættum þessu væli um liðinn tíma og tökum gjald af umferðinni án þess að stela því í annað.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hættum þessu væli um liðinn tíma og látum alla greiða allt í topp. Hættum að taka af unga fólkinu fyrir framfærslu og sjúkrakostnaði ellilífeyrisþega. Það er liðinn tími að gamlingjarnir eigi eitthvað inni og að við skuldum þeim eitthvað. Enginn skrifaði undir það skuldabréf. Hættum þessu væli um liðinn tíma. Nýjir tímar með nýju fólki og nýjum viðmiðum. Eitt skal yfir alla ganga. Þeir borgi sem nota og hver sér um sig.

Er það ekki eitthvað svona sem þú ert að kalla eftir? Eða er gjaldtaka aðeins réttlætanleg í þínum augum ef einhver annar en þú borgar?

Gústi (IP-tala skráð) 24.7.2017 kl. 17:19

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Þú skilur hvorki upp né niður Gústi frekar en fyrri daginn

Halldór Jónsson, 24.7.2017 kl. 18:05

3 identicon

Að keyra frítt.

Enginn Íslendingur hefur ekið ökutæki sínu frítt. Eigendur ökutækja hafa verið skattlagðir í eldsneytisverði,í margföldum sköttum af ökutækjum sínum í hærra hlutfalli en þekkist meðal þjóða í okkar heimshluta.

Þeir sem kalla nú eftir aukinni skattheimtu á ökutæki með veggjöldum eru skoðanasystkin vinstri manna sem sífellt kalla eftir skattahækkunum  og aukinni samneyslu, og stækkun báknins. Vinstra liðinu hefur nú bæst liðsauki.  Einn ráðherra Skattmann, Jón Gunnarsson yfirgnæfir hróp vinstri manna og heimtar aukna skatta. Víst er að Hjálmar á hjólinu,  S.Björn Blöndal, Finnur Árnason gleðjast nú yfir liðsaukanum.

Skattar og gjöld af umferðinni eru talin 60-70 miljarðar en nú er lagt til vegamála 12-15 miljarðar meðtalin þar Vaðlaheiðagöng. Mismunur gengur til vaxandi bákns.

Ungir ökumenn koma ekki til með að aka frítt meðan báknið er látið vaxa stjórnlaust.

Fyrirrennarar núverandi og nýjasta skattmanns kölluðu,     " Báknið burt " 

Eðvarð Lárus Árnason (IP-tala skráð) 24.7.2017 kl. 19:45

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Eddi lögga

auðvita á að byrja að skila þessu þýfi. En ég er samt fastur í að láta þá borga sem nota til viðbótar. Þú ert ekki búinn að borga allt.

Halldór Jónsson, 25.7.2017 kl. 12:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 3
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 3417958

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband