Leita í fréttum mbl.is

Alþingi fari að vinna fyrir þjóðina

en ekki eftir forskrift hinna fjörtíuþúsund fífla Al Gore í París.

Í Bændablaðinu 20.júlí er firnagóð grein eftir ritstjórann Hörð Kristjánsson. Þar flettir hann ofan af þeirri gerð Alþingis sem það framdi með lagasetningunni Nr.40 5 apríl 2013 sem nú þýðir að landsmenn verða að sæta 5 % íblöndun af ethanóli sem er hálfdrættingur af orku bensíns og  miklu dýrara per lítra en bensín. Til viðbótar er ethanólið framleitt úr maís sem er tekinn frá hungruðum börnum í Afríku sem eykur auðvitað á hælisleitendastrauminn til Evrópu.

Alþingismenn samþykktu þetta einróma líklega af því að þeir höfðu ekki kynnt sér málið eins og í fleiri tilvikum þegar fyrirskipanir koma frá hinni miklu móður í Brüssel. En ESB sendir okkur tilskipanir á færibandi sem við tökum upp hugsunarlaust hversu vitlausar og andsnúnar okkar eigin hagsmunum sem þær eru.

Kratar eins og Jón Baldvin eru iðnir við að grobba sig af því að hafa komið okkur undir EES tilskipanirnar og sannað sína alþjóðahyggju og ættjarðarfyrirlitningu.  En staðreyndin er að íhaldið kom þeim í gegn þó ekki batni þær fyrir það.

Þjóðinni er brýn nauðsyn á að fara að segja sig frá blindri hlýðni við þetta regluverk allt sem að mörgu leyti hefur orðið okkur til bölvunar þegar á heildina er litið, innifalið Schengen og öll afleidd vandamál þess samkomulags.

Alþingismenn eru fyrir löngu uppvísir af því að vinna ekki vinnuna sína og samþykkja blindandi alls kyns ólesið bull í blindni frá Brussel. Svo halda þeir ekki vatni hinn daginn yfir því hvað þeim þykir vænt um öryrkja og einstæðar mæður um leið og þeir leggja þessi óþarfa útgjöld á þetta fólk.

Það er kominn tími til að Alþingi fari að vinna fyrir þjóðina en ekki þrælakistu Evrópusambandsins og Parísarfíflanna fjörtíuþúsund.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Fyrir utan það að minnka orkugildið í bensíninu, þá skemmir þetta frá sér. t.d tærast keilur í segullokunum á bensíndælunum þannig að opnunin verður ekki nóg og dælingin því mjög hæg og þá þarf að skipta um keiluna. Þetta vandamál var óþekkt áður en þeir fóru að blanda bensínið. Þetta er bara eitt vandamálið sem er þegar farið að koma í ljós. Hvernig þetta á eftir að fara með bílvélarnar verður tíminn að leiða í ljós. 

Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 24.7.2017 kl. 18:37

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Hvað gengur þeim þá til með þessu ráðslagi? Ætli ég fari ekki að setja steinolíu á silfur-refinn minn Wolswagen fox.

Helga Kristjánsdóttir, 25.7.2017 kl. 00:55

3 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Þegar Kerfið er farið að snúast um það eitt að viðhalda sjálfu sér, er illa komið fyrir Íslandi. Við erum einmitt á þeim tímapunkti núna. Gerumst við möppudýrafóður, eða rísum við upp og kveðum þennan fjanda niður? Fjörtíu þúsund fífl, þar á meðal Íslensk, sem sötruðu kampavín og bjuggu ekki á ódýrustu hótelum veraldar, yfir eina helgi, halda að þau(þ.e.a.s fíflin) viti allt og kunni allt. Það er jú ljúft að ferðast og njóta lífsins lystisemda á kostnað annara, ekki satt? Að stjórna veðurfari Móður Jarðar, þvælist ekki fyrir þessum mannvitsbrekkum, sem þegar upp er staðið, eru mestu andskotans vitleysingar sem dregið hafa andann, frá því jörðin tók upp á því að snúast um sjálfa sig, á sporbaug um Sólina. 

Quentin Bates, einhver mesti og besti þekkingarmaður um sjávarútveg veraldarinnar orðar ruglumræðuna á snilldarlegan  hátt í einni af sínum greinum í World Fishing. : 

 Á meðan lygin hefur farið hringinn um Jörðina, á skítugum skónum, hefur sannleikurinn rétt náð að smokra sér í annan sokkinn.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 25.7.2017 kl. 02:14

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk fyrir þetta Rafn Harladir, já þetta vitum við ekki nema það sem þú lýsir.

Helga ef þú ferð til Akureyrar eða Vestmannaseyja færðu óblandað OLÍS-bensín að því mér skilst. Spyrð Rafn Harald hvað eigi að gera.

Nafni minn að sunnan, þú talar sem mér líkar vel.

Halldór Jónsson, 25.7.2017 kl. 12:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 11
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 57
  • Frá upphafi: 3418199

Annað

  • Innlit í dag: 11
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 11
  • IP-tölur í dag: 11

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband