Leita í fréttum mbl.is

Hættuleg spurning Styrmis

er efni greinar ritstjórans í Morgunblaðinu í dag.

Þar drepur Styrmir á þann vanda sem að Vesturlöndum steðjar vegna betlisóknar þriðjaheimslýðsins sem þangað sækir til að sjúga betri lífskjör eins og tilberar þjóðsagnanna.

Styrmir segir svo m.a.:

".....Fyrir nokkrum dögum sat ég á tali við ungan mann sem hefur komið svolítið að því að vinna í tengslum við fólk sem leitar hér hælis. Ég sagði sem svo: Nú er svo komið að um 10% þeirra sem búa á Íslandi í dag eru komin frá öðrum löndum og sumir þeirra frá öðrum menningarsvæðum. Hvað getum við, sem höfum búið hér á þessari eyju í bráðum 1200 ár, mann fram af manni, tekið á móti mörgum til viðbótar án þess að stofna sögu okkar og menningu í hættu? Getum við fallist á 20%, 25%, jafnvel 30%? Þessi ungi maður, sem getur rakið ættir sínar til þriggja landa á meginlandinu, auk Íslands og Palestínu, horfði á mig og sagði: Þetta er hættuleg spurning...."

Af hverju stöðvast ritstjórinn við 30%' 

Hann segir nefnilega svo síðar:

" ....Það er rétt hjá þessum unga manni að þetta er hættuleg spurning en engu að síður spurning sem við Íslendingar verðum að ræða, fyrr eða síðar. Við getum slegið því á frest en að því kemur að við verðum að svara spurningunni.

Fyrir nokkrum mánuðum sagði Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, við mig að eftir áratug yrðum við komin í sama vanda vegna flóttamanna og sum Evrópuríki eru nú. Og þá komumst við ekki undan því að svara. Það eru takmörk fyrir því hvað við getum tekið við mörgum – ef við á annað borð viljum viðhalda því samfélagi sem við höfum byggt upp á tæpum 1200 árum. Ella gætum við lent í þeirri stöðu að verða minnihluti í eigin landi...."

Og svo bætir hann við:

"...Fólk leitar hingað af tveimur ástæðum. Annars vegar eru þeir sem eru að flýja heimili sín vegna styrjaldarátaka. Það á við um fólk frá Sýrlandi, Írak og Afganistan. Yfirgnæfandi meirihluti Íslendinga er áreiðanlega þeirrar skoðunar að okkur beri skylda til að hjálpa því fólki.Hins vegar eru þeir sem búa í fátækum samfélögum...."

Ritstjórinn virðist ganga út frá því að hann og Jón Baldvin hafi hin réttu svör. Að við verðum að gera eitthvað í þessum flóttamannamálum og líklega í hefðbundum skilningi með móttöku og innflutningi.

Ég er ekki sammála þessu. Við eigum að ráða því sjálfur hversu mörgum við tökum við. Og við eigum líka að velja úr því fólki það fól sem mesta möguleika á að samlagast okkur sem fyrir eru. Það þýðir að við eigum ekki að taka hér inn Múhameðsfólk heldur kristið fólk eða af trúarskoðunum sem eru okkur skaðlausar. Sharíafólk höfum við ekkert að gera við  né ómenntað eða óupplýst fólk sem bara verður byrði.

Og við eigum að fara líka varlega i veitingu ríkisborgararéttar. Okkur vantar ekkert fólk til að fjölga þjóðinni ef við getum ekki gert það sjálfir sem fyrir erum. Gestaverkamenn mega alveg koma hingað tímabundið en það er ekki sama og að þeir eigi að setjast hér að nema öll rök hnígi að því að löngum tíma liðnum.

En þetta er hættuleg spurning sem íslenskir stjórnmálamenn eru ekki að svara frekar en mörgu öðru óþægilegu. Þeir þora ekki að gefa upp afstöðu sína gagnvart innflytjendum.

Styrmir á þakkir skildar fyrir að nefna tölur í sambandi við þessa hættulegu spurningu sem menn mættu hugsa um. Viljum við hafa annan hvern Íslending svartan múslíma þegar tímar líða eða hvernig viljum við að þjóðin líti út eftir hundrað ár?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég sá fyrir skömmu, í þýskum sjónvarpsþætti, viðtal við heimshornaflakkara sem hafði komið til Íslands. 

Það sem sló hann mest við komuna hingað var að "Island ist ein leeres Land", þ.e. "óbyggt land".

Hvað segir það mönnum sem koma frá löndum þar sem fólksfjöldinn er svo yfirþyrmandi að fólk getur ekki dregið fram lífið?

Hörður Þormar (IP-tala skráð) 29.7.2017 kl. 22:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 55
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband