Leita í fréttum mbl.is

Fjöldi Framsóknarhnífa

stendur nú í baki Sveinbjargar Sigurjónsdóttur. Þar á meðal einn stór frá Guðfinnu sem hún dró með sér í Borgarstjórn í síðustu kosningum.

Svo skrifar Jón Magnússon um þessa atburði:

"Fyrir rúmum 80 árum var talað um nótt hinna löngu hnífa, þegar forusta þýska þjóðernissósíalistaflokksins lét taka af lífi helstu forustumenn vígsveita flokksins.

Fyrir rúmum 10 árum kvartaði þáverandi þingmaður Framsóknarflokksins Guðjón Jónsson yfir því að bakið á honum væri alsett hnífum eftir bakstungur fjandvinar síns í Framsóknarflokknum hann lifið það þó af þó pólitískt líf hans yrði ekki lengra. 

Nú hafa Framsóknarmenn dregið hnífana úr baki Guðjóns og nota þá óspart á Sveinbjörgu Birnu Sveinbjörnsdóttur borgarfulltrúa og gengur þar hart fram sá borgarfulltrúi Framsóknar sem er hinn fulltrúi þessa litla flokks í borgarstjórn Reykjavíkur. 

Aðrir fylgja á eftir, en þó verður ekki séð hvort þeir gera það tilneydir. 

Eftir að Sveinbjörg Birna benti réttilega á annmarka á skólakerfinu, sem veldur því að það gagnast í mörgum tilvikum hvorki íslenskum börnum né börnum hælisleitenda og kostar of fjár,  fór fjölmiðlaelíltan úr öllum límingum einkum þeir sem þiggja laun sín frá skattgreiðendum, en með í för var einnig liðtækur sporgöngumaður, eiginmaður aðstoðarkonu forsætisráðherra. 

Fréttin um ummæli Sveinbjargar varð helsta ekki fréttin alla verslunarmannahelgina og fréttaelítan á RÚV var með þessa ekki frétt í öllum fréttatímum nema e.t.v. í einhverjum morgunfréttatímum kl. 6 á morgnana. 

Fréttamenn RÚV drógu fram hvern forustumann Framsóknar af öðrum til að fá þá til að fjalla um og fordæma ummæli Sveinbjargar og gerðu þeir það svikalaust með mismiklum þunga samt. Nú síðast ályktaði stjórn ungra Framsóknarmanna um málið. Kom það nokkuð á óvart, þar sem þjóðin hafði ekki vitað af tilvist þeirra. 

Atgangur ríkisfréttamanna var slíkur að það minnti á þekkt kvæði eftir Stein Steinar um Jón Kristófer og samneyti hans við Hjálpræðisherinn en þar orti Steinn;

"Jón Kristófer kadett í hernum

 í kvöld verður samkundan háð 

 og lautinant Valgerður vitnar 

 um veginn að Drottins náð

 Og svo verður sungið og spilað

 á sítar og mandólín tvö

 ó komdu og höndlaðu herrann 

 það hefst klukkan rúmlega sjö"

 

Eins og í kvæðinu vitnaði fréttaelítan með sama hætti og lautinant Valgerður í kvæðinu um veginn að Drottins náð og sungu á sinn sítar og mandólín tvö þangað til að flokksforusta Framsónar áttaði sig á hvað þyrfti til að höndla herrann og brást við eins og fréttaelítan vildi.

Eftir situr framsóknarmaddaman Sveinbjörg Birna óverðskuldað með mörg hnífasett í bakinu og ekki sú fyrsta af forustufólki Framsóknar sem öðlast það hlutskipti."

Framsóknarmenn virðast hafa sérstakt lag á að myrða yndin sín. Þeir brugðust sigursælum foringja sínum Sigmundi Davíð hrapallega og fögnuðu vandræðum hans. Þeir sameinuðust um sinn lægsta samefmara og þann líklega mest óintresserandi formann, hugsanlega að bensínsalanum frátöldum, sem hægt var að uppdrífa. Og sá stefnir auðvitað lóðbeint niður á við með fylgi maddömunnar að því að best verður séð.

Framsóknarmenn væru betur komnir með Sveinbjörgu í formannsstóli ef þeir ætla sér framhaldslíf heldur en hestageldinn sem engin samstaða né stemning er fyrir.

Sá flokkur þarf að átta sig á því að menn verða einhverntímann að taka afstöðu ef kjósendur eiga að taka hann alvarlega. Og jafnvel Sjálfstæðisflokkurinn þyrfti að velta þeim málum fyrir sér líka fyrir Landsfundinn í nóvember hvað varðar hælisleitendur, Schengen og framhald EES. Hvort flokkurinn ætlar að láta Brussel teyma sig úr hverju virkinu á fætur öðru með blindandi samþykktum fyrirmæla heldur en að spyrna við klaufum þess í stað. 

Framsókn þarf að slíðra hnífana frekar en að fjölga þeim í bök síns besta fólks með elítu-og kratasnobbi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

-Minnist eins nýbakaðs Bé-þingmanns sem talaði með heilt ´grænt´ hnífasett í bakinu úr ræðupúltinu í Alþingi en ´bé´-beit á jaxlinn og kveinkaði sér ekki par ! ;)

Örnólfur Hall (IP-tala skráð) 13.8.2017 kl. 19:44

2 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Þegar lögð er til aðgerð þar sem svívirðilega er komið fram við börn fyrir utan það að vera fjárhagslega slæm þá er eðlilegt að menn fordæmi slíkt. Ef Framsóknarflokkurinn losar sig ekki við Sveinbjörgu af framboðslista flokksins fyrir næstu kosningar þá losna þeier seint við rasistastimpilinn enda eiga þeir hann þá skilið svo ekki sé talað um ef þeir færu að gera hana að formann.

Staðreyndin er sú að það er mun ódýrair og gaglegri leið til að sinna börnum hælisleitenda að setja þau inn í almenna skóla og auka á sama tíma það fé sem þeir  hafa til sérkennslu heldur en að stofna sérsakan skóla fyrir þessi börn. Það að setja þau í sérstakan skóla veldur þvi líka að þau verða félaglega einangraðri og eignast síður íslenska vini og gengur þar með verr að læra íslensku. Þeir kennarar sem hafa haft börn hælisleitenda í bekk hjá sér og hafa tjáð sig opinberlega um málið hafa mótmælt því að það bitni á íslenskum nemendum í skólunum og hafa meira að segja sagt að íslensku börnin læri mikið af því að kynnast þessum börnum.

En hugsanlega er þessi hugmynd einmitt hugsuð til að gera börnin félaglega einangraðri og þannig með færri íslenska vini og lakari íslenskukunnáttu. Þá verður nefnilega auðveldara að reka þau úr landi því þegar börnin eiga marga vini og eru þar að auki farin að geta bjargað sér á íslensku þá verða svo mikil mótmæli þegar það á að reka þau úr landi. Það að banna heimsóknir til hælisleitenda og setja þá lengst upp í sveit virðist vera gert með sama markmið í huga.

Sigurður M Grétarsson, 13.8.2017 kl. 20:18

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Alltaf samur við sig Sigurður M. Grétarsson. Ef til er ömurlegur málstaður þá ert þú mættur.

Halldór Jónsson, 13.8.2017 kl. 21:09

4 identicon

Sveinbjörg og hennar fylgjendur nota sömu rök, sömu góðvild og umhyggju og rasistar héldu fram fyrir aðskilnaði svartra og hvítra. Töldu rökrétt og skynsamlegt og undrast það að allt eðlilega hugsandi fólk skuli gagnrýna málflutninginn. Þetta sprettur reglulega upp gegn hinum ýmsu þjóðfélagshópum hjá fólki sem illa getur falið fordóma og fávisku sína.

Gústi (IP-tala skráð) 13.8.2017 kl. 21:45

5 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Já þegar menn eru mættir til að dreifa ömurlegum málstað þá er ég mættur til að tala gegn honum. Hatur sumra gegn hælisleitendum er svo sannarlega ömurlegur málstaður.

Sigurður M Grétarsson, 13.8.2017 kl. 21:54

6 Smámynd: Halldór Jónsson

Sigurður, þið Gústi eruð dæmi um ömurlegar jaðarhugsanir ofstækismanna sem eru brátt komnir í algeran minnihluta á vesturlöndum.

Halldór Jónsson, 13.8.2017 kl. 22:37

7 identicon

Er ég eitthvað að misskilja Sveinbjörgu þegar hún talar um að veita elrlendum börnum sérkenslu í íslensku til þess að þau komist sem fyrst inn í námið.
Arabi sem er 10 - 12 ára, sem kann ekki einu sinni stafrófið, hefur ekkert að gera í kennslustund með íslenskum börnum nema til að tefja alla kennslu. Sveinbjörg talar ekki neinstaðar um að veita ekki þessum börnum kennslu í öðrum námsefnum.
Ég verð að fá einhvern til að leiðrétta mig ef ég hef rangt fyrir mér.
Þekki kennara til magra ára í Svíþjóð, sem sagði að grunnskólakerfið þar hrundi um leið og flóttabörn frá Kósavo og öðrum múslímskum löndum komu inn í landið og reyndar miklu fyrr. Í raun og veru fór allt til andskotans því útlensku börnin voru sett í tíma með heimabörnum um leið og þau komu til landsins.Þessi kennari var sossi (krati) og fannst sjálfsagt að setja börnin strax í tíma. En það var dálítið annað upplitið á kennaranum eftir árið. Ég get ekki haft eftir orðbragðið sem viðkomandi lét út úr sér um þessi börn og því síður foreldrana eftir árs kynni.
Og þetta, eins og Sigurður M. gerir að blanda saman vegabréfslausum aröbum, sem þykjast vera börn og ljúga um alla sína tilvist, við skólakerfið er fráleitt og sýnir veruleikafyrringu af verstu gerð.
 



valdimar jóhannsson (IP-tala skráð) 13.8.2017 kl. 22:53

8 identicon

Hérna getur fólk séð hvernig vegabréfslausu "einstæðu börnin milli 20-30 ára" frá Afganistan haga sér í Svíaparadísinni.
Ekki veit ég hvernig þau komust til vesturlanda, nema landráðamaðurinn George Soros geti svarað því.
http://avpixlat.info/2017/08/11/vi-tanker-inte-ga-harifran-forran-utvisningarna-till-afghanistan-stoppas/
Eins og búast mátti við frá þessum kúltúr er frekjan yfirgengileg og okkur vesturlandabúum óskiljanleg.

valdimar jóhannssonv (IP-tala skráð) 13.8.2017 kl. 23:15

9 Smámynd: Benedikt V. Warén

Auðvita veltir maður fyrir sér hvort Sigurður M Grétarsson hefði ekki þurft í þannig bekk sem Sveinbjörg nefnir, til að auka skilning á íslensku máli og færni til að átta sig á hvað er í gangi.

Ég læt aftur fylgja með ágæta færslu frá Ágústi H Bjarnasyni fyrir SMG til að fara yfir í rólegheitum og í þeirri trú að hann átti sig á hvað Sveinbjörg var að fara án þess ekki detta í gamalkunnan samsærisgírinn snúnningalast og halda að RÚV hafi gætt fyllsta hlutleysis við vinnslu fréttarinnar. 

"Mér finnst einhvern vegin að fáir sem tjá sig hafi hlustað á viðtalið sem fer fyrir brjóstið á mörgum.

Hér fyrir neðan er úrklippa úr þeim hluta sem málið snýst um.  Ætti að vera auðskilið flestum:

Væri ekki börnunum fyrir bestu að tekið sé tímabundið á móti þeim í sérskóla þar sem þau fengju fulla athygli og kennslu?

 ---

" ...Kennarar og félagsráðgjafar sem ég hef rætt við að þeir hafa talað um hversu vandmeðfarið og hversu mikill kostnaður fylgir því að taka á móti börnum sem eru í leit að alþjóðlegri vernd og styðja þá auðvitað til að læra íslensku og komast af stað í námi. Þetta er mismunandi eftir því hvort þetta séu stelpur eða strákar, vegna þess að svo eru þau kannski farin eftir 6 mánuði, 12 mánuði, 1 ár 2 ár þegar búið er að vísa fjölskyldunum úr landi, þá er þetta að einhverju leyti sokkinn kostnaður hjá Reykjavíkurborg.

-

...En þegar þau eru sett inn í bekki vegna þess að við erum með stefnu skóla án aðgreiningar, að þá verður mjög mikill fókus af þessum hópi inni í bekknum sem þarf stuðning, mjög margir sem eru á einhverfurófi, eru með athyglisbrest eða þurfa sérstaka aðstoð í námi sem að fá hana kannski ekki vegna þess að fókusinn er á öðru. Þess vegna hefur þeirri hugmynd skotið upp hvort það sé eðlilegt að það sé bara sérskóli stofnaður sem taki við þessum börnum sem eru að koma með foreldrum í leit að alþjóðlegri vernd. Síðan þegar fjölskyldan er komin með dvalarleyfi á Íslandi, þá fari þau inn í skólana. ...""

Benedikt V. Warén, 14.8.2017 kl. 17:37

10 Smámynd: Benedikt V. Warén

Gústi.

Reyndu að þroskast og lesa það sem þú gerir að umræðuefni þínu.

Það er morgunljóst að þú hefur ekki hundsvit á hvað Sveinbjörg var að meina og hefur ekki nokkra nennu að kynna þér heldur. 

Betra er að vera talinn hálviti, en að blogga og staðfesta það sem aðrir halda.

Benedikt V. Warén, 14.8.2017 kl. 17:41

11 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Sennilega sækir IKEA nýjustu hnífalínuna sína til Framsóknarflokksins, þá er næsti vörulisti verður gefinn út. Hönnun framsóknarhnífanna hentar öllum tækifærum.: Allt frá smjördreifingu, sem og úrbeiningar og vinastungna, að ógleymdum samherjastungunum landsfrægu. Gott ef ekki er hægt að flá heilt þjóðfélag með Framsóknarkutunum. Aneiða það í strimla og steikja síðan yfir hægum eldi fjölmiðlafárs, með "dassi" af "góða og gáfaðafólksfjölmiðlakryddinu". 

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 15.8.2017 kl. 04:14

12 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Enginn kuti getur flakað, sneitt, stungið eða skorið kjána eins og Sigurð M., eða Gústa, enda ólseigir leðurhausar, sem ekkert sker, sökum þvermóðsku og lélegs þankagangs og rætinnar hugsunar. Sennilega hliðarspor af misheppnuðu ræktunarátaki krataræksnisþjóðflokks, báðir tveir. Inn í þá aumu hausa og þeirra langlegnu letibök, komast engir hnífar, aðrir en þeir sem ekkert gera gagn, enda hannaðir til lítils annars en væls og gráturs.....altso Gústi og Sigurður M. Þeir munu aldrei komast í bækling hjá IKEA, nema ef þeim bregði fyrir í mynd af fólki í mötuneytinu, í auglýsingu.(Óafvitandi)

 Hnífar af öllu gerðum geta hinsvegar gert margt gagn, nema í Framsókn. Þar ætti hreinlega að banna þá!

Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 15.8.2017 kl. 04:30

13 Smámynd: Benedikt V. Warén

Góður, Halldór Egill.  laughing

Benedikt V. Warén, 15.8.2017 kl. 13:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 3418189

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 44
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband