Leita í fréttum mbl.is

Áhrifamaður í Sjálfstæðisflokknum ??!!

Robertsem ég á að vera virðist vera aðalatriðið í athugasemdum nafnlausu kommatittanna sem kalla sig virka í athugasemdum í netheimum og sjá ástæðu til að senda mér athugasemdir á mitt ómerkilega blogg.  Hringja meira að segja í dóttur mína sem er í opinberu stjórnmálastarfi öfugt við mig og hóta henni pólitískum eldi og brennisteini ef kallinn sé að skrifa þetta sem þeim ekki líkar. Góða fólkið er virkilega að sanna sig að víðsýni sinni, góðvild  og rökvísi.

Það þykist vera þess siðferðislega umkomið að geta dæmt Róbert Árna í ævilanga útlegð og starfsbann fyrir brot sem hann er búinn að afplána ýtrustu fengelsisirefsingu fyrir. Það er sallað á mig í DV og athugasemdum fyrir meinta siðferðisbresti að mati þessara stórmenna.

Þeim til upplýsingar er mér er slétt sama um svona gelt í hugleysingjum bak við dulnefni hvað þá það sem skrifað er í þetta DV.   Ég hef bara sagt það sem mér finnst um málið og stend við það. Af umræðunni má ráða að Róberti Árna virðist ekkert hæfa nema dauðinn einn að mati þessa Góða fólks. Virkilega blóðþyrstur hópur er þetta lið. Engin fyrirgefning, ekkert vopnahlé,  eilíf útskúfun,  til andskotans með manninn og lengra ef hann kemst. Hvers á þessi dæmdi maður úrkosti? Verður hann ekki að fara af landi brott í ævilanga útlegð eins og var á Sturlungaöld? 

Það er svo eftir öðru hjá þessu liði að auðvitað skal reynt að sverta  Sjálfstæðisflokkinn af því að ég, af öllu fólki, leyfi mér að ræða um Róbert Árna þegar svo margir sækja að honum.   Ég virðist til dæmis skipta miklu minna máli hjá DV og það sem ég skrifa heldur en að ég muni vera einhver  áhrifamaður í Sjálfstæðisflokknum.

 Aldrei hef ég upplifað það að mínar skoðanir hafi verið mikils metnar í þeim flokki enda á ég víst Íslandsmetið í því að falla í miðstjórnarkosningum á mörgum Landsfundum þess flokks. Áhrifamaður!. Tjui!  Það var þá helst!

Þessi miðstjórnarkjör sýna auðvitað hvað þessi flokkur er greindur á Landsfundi. Enda er ég steinhættur að bjóða mig fram til starfa fyrir Sjálfstæðisflokkinn fyrir löngu og horfi bara á sýninguna sem einhverjir aðrir áhrifamenn stjórna en ég. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

1Þú ert vonandi bara gamall og ruglaður og ættir að fá að deyja í rólegheitunum.  ógeðslegur maður með ógeðslegar skoðanir, fallegar myndir af börnunum þínum, hefurðu misnotað þau?

jón (IP-tala skráð) 1.9.2017 kl. 01:03

2 identicon

Nei, nei, ef börnin fá borgað fyrir þá er hvorki um að ræða nauðgun né ofbeldi að mati Halldórs Jónssonar sjálfstæðismanns, bara viðskipti - sem er allt annað mál og alls ekkert alvarlegt brot skv. honum. Hvað ætli börn þurfi annars að vera orðin gömul í huga Halldórs til að breytast í verslunarvöru sem gamlir karlar eins og hann geta misnotað að vild gegn greiðslu í nafni frjálsra viðskipta?

Jón Haldórsson (IP-tala skráð) 1.9.2017 kl. 01:24

3 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Tveir  fulltrúar góða fólksins hér að ofan.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 1.9.2017 kl. 07:10

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Já Heimir,

hugsanlegaa hafa þessir nafnlausu kommatittir báðir þurft að fara einhvern tímann á geðdeild vegna sinna innréttinga. Óhuggulegt eiginlega að svona fólk skuli ganga laust án aðstoðar geðlækna og vera virkt í athugasemdum að eigin mati.Þvílíkir andans Jónar og sjúkt hugmyndaflug. 

Halldór Jónsson, 1.9.2017 kl. 07:41

5 identicon

Nú, nú ég sé að Heimir sjálfstæðismaður er á sömu miðum og Halldór síðuhafi varðandi barnaníð og kemur kannski ekki á óvart. Hann er sem sagt sammála Halldóri um að þessi Róbert sem var dæmdur fyrir barnaníð hefi ekkert gert rangt eða eins og Halldór orðaði það sjálfur:

"Maður þessi beitti engan ofbeldi, nauðgaði engum heldur keypti sér það sem hann gat keypt."

Hvað skyldu margir sjálfstæðismenn í eldri kantinum vera sama sinnis um að það teljist hvorki ofbeldi né nauðgun að misnota og nauðga börnum svo framarlega sem þau fá greitt fyrir - að börn séu bara verslunarvara? Ég sé að Páll Vilhjálmsson er sama sinnis ... hverjir fleiri?

Jón Halldórsson (IP-tala skráð) 1.9.2017 kl. 10:01

6 identicon

Í dóminum sem nú er búið að fjarlægja og afmá koma eftirfarandi samskipti fram, tekin af loggum á MSN.

---

14 ára stelpa var á spjalli við 14 strák að nafni Árni á MSN (Róbert í dulargervi)

Hún sagðist vera peningalaus í bænum og kæmist ekki heim. Spurði hún hin 14 ára Árna (Róbert í dulargervi) hvort hann vissi um einhvern sem gæti skutlað henni heim.

Árni sagði að hann vissi um mann sem væri tilbúin að skutla henni heim fyrir blowjob.

Og seinna bætti hann við að þessi maður væri einnig tilbúin til að greiða henni 15þúsund krónur.

---

Ertu virkilega a halda því fram að hann hafi bara verið að kaupa það sem var til sölu?

Róbert hefur aldrei viðurkennt að hann hafi gert nokkuð rangt og er því stórhættulegur maður og á uppreista æru alls ekki skilið!!

Og þú Halldór hefur meiri áhyggjur Jóni og Jóni Haldórs.

Snorri Þórisson - Ekki Kommi, Ekki vinstri maður

Snorri Þórisson (IP-tala skráð) 1.9.2017 kl. 12:00

7 Smámynd: Halldór Jónsson

Þó að ég nenni ekki að svara nafnleysingjum sem vega úr launsátri þá hef ég hvergi sagt að Róbert hafi ekki gert neitt rangt. Ég sagði frekar þveröfugt. En svona mann eins og þennan Jón varðar auðvitað ekkert um slíkt.

Róbert Árni var dæmdur hart fyrir brot sín af íslenskum dómstólum. En það var víst ekki nóg refsing að mati þeirra sem betur vita.

Halldór Jónsson, 1.9.2017 kl. 12:01

8 identicon

Ha? "hvergi sagt að Róbert hafi ekki gert neitt rangt"?

Ég skal endurtaka orð þín orðrétt aftur:

"Maður þessi beitti engan ofbeldi, nauðgaði engum heldur keypti sér það sem hann gat keypt."

Hér ert þú að segja alveg skýrt að barnaníðingurinn hafi ekki gert neitt rangt. Hann bara "keypti það sem hann gat keypt". Það er varla hægt að segja það skýrar að þér finnist glæpur hans enginn. Þetta voru bara viðskipti í þínum huga og greinilega Heimis líka (sem skilgreinir sjálfan sig meira að segja sem vondann mann, svo og Páls Vilhjálmssonar sem hefur margítrekað stuðning sinn við níðinginn her á Moggablogginu.

Og þitt eina svar er að kalla þá "kommatitti" og bendla við "geðveiki" sem gagnrýna þennan ógeðlega hugsunarhátt þinn.

Ég held þið sem hugsið svona ættuð að ræða við einhvern fagmann og fá aðstoð gegn þessu óeðli.

Jón Halldórsson (IP-tala skráð) 1.9.2017 kl. 12:29

9 Smámynd: Halldór Jónsson

"Maður þessi beitti engan ofbeldi, nauðgaði engum heldur keypti sér það sem hann gat keypt.Sem ekki var sjálfsagt við hæfi."

Hvernig skilja kommatittir þetta sem ég er að segja? Er ég að segja að  mér finnist þetta allt í lagi?

Þetta er sjúkt hugaraástand sem dylst á bak við þessi dulnefnin Jón- enda skiljanlegt að þeir skammist sín fyrir að láta vita hverjir þeir eru. 

Halldór Jónsson, 1.9.2017 kl. 13:51

10 identicon

Finnst þér í alvöru að "Sem ekki var sjálfagt við hæfi" breyti einhverju um þau orð þín að "Maður þessi beitti engan ofbeldi, nauðgaði engum heldur keypti sér það sem hann gat keypt." þegar þú ert að tala um alvarlegt barnaníð mannsins gegn nokkrum börnum?

Þau breyta engu um að þú lítur bersýnilega á það sem Robert gerði sem viðskipti og sanna bara enn frekar hvað þú ert ógeðlegur í hugsun. Barnaníð er einhver viðbjóðslegasti glæpur sem menn geta framið og þú kallar glæpinn "sjálfsagt ekki við hæfi"?

Þér er ekki viðbjargandi. Virkilega ógeðslegur kall.

Jón Halldórsson (IP-tala skráð) 1.9.2017 kl. 15:07

11 identicon

Hvað með þennan heilaga "leikstjóra" ber hann enga ábyrgð sem foreldri á að ala dóttur sína upp. Ég veit ekki hvað er gert í partíum heima hjá leikurum en venjulegir foreldrar ræða hreinskilningslega við börnin sín um kynlíf því bækur, bíómyndir og netið er orðið svo brenglað að maður skilur vel að fólk verði sér út um miða aðra leið út úr þessu þjóðfélagi enda oft íhugað það sjálfur

Faðir (IP-tala skráð) 1.9.2017 kl. 16:07

12 Smámynd: Már Elíson

Þetta er svakalegt hjá þér Halldór hvað þú kemur upp um þig. - Ég hélt hreinlega, að þrátt fyrir augljósa Sjálfstæðis-galla þína, að þá værir þú ekki svona innrættur. - Ekki er ég að verja menn sem koma hér inn nafnlausir, en þeir hafa fyllilega rétt fyrir sér og þess vegna mátt setja nöfnin sín undir. - En Halldór...Hugsaðu um börnin þín niðri í bæ að lenda í höndum Sjálfstæðismannsins Róberti Árna, sem er fyllilega varinn af þér, Brynjari Níels og fleiri sjúkum mönnum. - Hvernig bærist þessi hugsun í brjósti þér ? - Þín börn ??  - Ég er gáttaður á þér, fullorðnum fjölskyldumanninum.  -  Vonandi var þetta slæmur dagur, stundarbrjálæði eða dómgreindarleysi hjá þér.

Már Elíson, 1.9.2017 kl. 16:42

13 identicon

"Þegar þú ert kominn ofan í holu, þá áttu að hætta að moka." 

https://m.timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=3017073

Sigþór Hrafnsson (IP-tala skráð) 1.9.2017 kl. 17:06

14 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Jón Halldórsson, eigðu sjálfur ógeðfellda athugasemd þar sem þú nafngreinir mig. Þú virðist eiga mjög bágt.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 1.9.2017 kl. 18:10

15 Smámynd: Halldór Jónsson

Jæja þá eru þessir vænisjúku kommatittir bunir að skrifa Róbert Árna inn í Sjálfstæðisflokkinn og útskrifa mig sem potential barnaníðing, Þið eruð virkilega sjúkir og ættuð að leita læknis. Til hamingju með þitt innlegg  Már, þú ert miklu magnaðri en ég hélt þú værir á grundvelli fyrri skrifa.

Halldór Jónsson, 1.9.2017 kl. 22:09

16 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Már E

Heilagi alltumvitandi Már.

Hvernig stendur samviska þín gagnvart birgjum þínum og lánardrottnum um ár og áratugi? Hefur þú vammlausan feril þannig að þér fari vel að setja þig á háan söðul siðapostula?

Í hinni Helgu Bók stendur haft eftir Frelsara okkar: 

"Sá yðar sem syndlaus er, kasti fyrstur steini á hana"

 

Væri fróðlegt lesendum Halldórs að vita hversu hár söðull samvisku þinnar í raun er, eður hversu vel og bjart skín af geislabaug þínum.

Margir munu vita þann sannleik sem að baki býr, hvert sem svar þitt hér kann að verða.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 2.9.2017 kl. 00:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 3418167

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband