Leita í fréttum mbl.is

Sannleikur um samúð

þeirra sem hæst gala á torgum mannúðarinnar sem þeir hafa tileinkað sér á sínum sérsviðum er oftlega vandfundinn. Hér er allt ónýtt að sögn margra sem fremst fara í neikvæðni og fólkið án hugsunar, samúðar  og mannkærleika. Það eru sýndar myndir af börnum sem eiga bágt og okkur sagt að við séum vond að vilja ekki hjálpa með landvistarleyfi.

Svo orðar Páll Vilhjálmsson þetta:

"

Eftir hrun var ,,ónýta Ísland" óopinbert slagorð góða fólksins. Það vildi afnema stjórnarskrá lýðveldisins, pakka fullveldinu saman og senda það til Brussel. En hrunið var ekki meira en svo að við réttum úr kútnum, þökk sé krónunni, sem góða fólkið hatast við.

Ísland býður þegnum sínum upp á öfundsverð lífskjör. Þess vegna kemur hingað fólk að vinna og setjast að. En sumir koma í leit að fríu fæði, húsnæði og dagpeningum. Og góða fólkið rekur upp ramakvein þegar útlendingum er vísað úr landi eftir að sýnt er fram á að viðkomandi eigi ekkert erindi hingað.

,,Ég skammast mín að vera Íslendingur" heitir herferð góða fólksins, sem nú stendur yfir á samfélagsmiðlum með dyggri aðstoð fjölmiðla sem reglulega birta fóður fyrir þá góðu að kjamsa á. Þetta nýja tilbrigði við ,,ónýta Ísland" er sumpart keyrt áfram af fólki sem beðið hefur skipbrot í lífinu.

Sumir í háværasta hluta góða fólksins eiga að baki persónulegt gjaldþrot, alkahólisma og brotnar fjölskyldur. Til er fólk sem ,,afrekar" allt þrennt. En samt gólar það á torgum samfélagsmiðla um að þjóðin eigi að skammast sín.

Fólk með ömurlegan æviferil á það til að kenna öllum öðrum en sjálfum sér um mistökin í lífinu. Þetta fólk þiggur með þökkum hjartnæmar hannaðar sögur af flóttamönnum í bágindum, otar þessum sögunum framan í þjóðina og segir hrokafullt: þið eigið að skammast ykkar.

Vellíðunin, sem misheppnaður einstaklingur finnur fyrir, þegar hann hreykir sér í hlutverki mannvinar bætir upp vanlíðan ömurlegrar ævi."

Hver kannast ekki við þennan söng. Allt ætlar af göflum að ganga ef stjórnvöld ætla að fylgja eigin reglum. Þá hlaupa til sjálfskipaðir spekingar sem boða til mótmælafunda og samstöðu um að beygja kerfið að sínum sérþörfum. Þetta smitast auðveldlega inn á Alþingi þar sem það veldur fjöldasamúðarkasti og ríkisborgararétti er slett eins og skyri eftir vilja kórsins. Eitt svona kast stendur nú yfir og reynt er að gera Sigríði Andersen dómsmálaráðherra að ófreskju sem enga mannlega tilfinningu hafi.

Sannleikurinn er hinsvegar sá, að hinn þögli meirihluti vill að sparlega sé farið með veitingu íslensks vegabréfs.Hann vill ekki opin landamæri. Fólki finnst ekki rétt að það kalli á veitingu ríkisborgararéttar til heilu stórfjölskyldnanna þó einn einstaklingur hafi hlotið slíkan rétt.

Alltof áberandi er það að þetta Góða fólk setji sama sem merki milli hælisleitenda, kvótaflóttamanna og farandverkamanna sem hingað koma á löglegan hátt. Það er auðvelt að búa slíkar furður í búninga mannúðar og vorkunnsemi sem enga tengingu hefur við staðreyndir.

Vonandi tekst stjórnvöldum að halda sinni ró þrátt fyrir moldviðri óvandaðra fréttamiðla.Í þeim hópi virðist RÚV síst eftirbátur annarra þegar kemur að illa ígrundaðri samúðarvakningu hjá góðhjörtuðum en fljótfærum almenningi.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Jónsson

rír þingmenn Pírata, Samfylkingar og Vinstri grænna sendu frá sér sameiginlega yfirlýsingu í hádeginu. „Ef við leyfum þessum stúlkum og öðrum börnum að vera send aftur á flótta setjum við skammarblett á Ísland sem stjórnvöld þurfa ávallt að bera á sér,“ segir í yfirlýsingunni sem þingmennirnir Eva Pandora Baldursdóttir, Oddný G. Harðardóttir og Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir skrifuðu undir.

Hvernig komu þessar stúlkur hingað? Ekki í boði íslenmskra stjórnvalda?

Lugu þeir til sem komu með þær? Voru þeir með skilríki?

Halldór Jónsson, 10.9.2017 kl. 12:29

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Sjást 500 manns á myndinni á RÚV eða færri?

Halldór Jónsson, 10.9.2017 kl. 12:38

3 Smámynd: Kristmann Magnússon

Góður í dag Halldór 

Kristmann Magnússon, 10.9.2017 kl. 18:06

4 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Er ekki verið að um snúa þessu á hvolf og reina að fá einhverja samúð, er ekki verið að vísa foreldrum þessara stúlkna úr lamdi?

Vill Góða Gáfaða Fólkið að foreldrarnir verði semdir úr landi en stúlkurnar verði eftir?

Hverslags grimd er þetta í Góða Gáfaða Fólkinu?

Einhversstaðar las ég "Með lögum skal land byggja og ólögum eyða." Svo eru löggjafar að krefjast þess að stjórnvöld eigi að brjota lög í þessu máli af því að tilfinningar þeira vilja það. 

Þetta er ekkert annað en ákall eftir stjórnleysi, það á ekki að stjórna landinu af tilfinningasemi, heldur með lögum lamdsins.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 10.9.2017 kl. 19:24

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Þú segir það Jóhann.

Hvernig var í Houston í bylnum? Eigum við von á hælisleitendum þaðan?

Halldór Jónsson, 10.9.2017 kl. 21:51

6 Smámynd: Halldór Jónsson

Já Jóhann, það þótti ekki stórmannlegt i den tid að ota fram fyrir sig börnum eins og þessir foreldrar eru að gera. Og góða fólkið á Austurvelli ætlar að beygja Alþingi til að lúffa.

Halldór Jónsson, 10.9.2017 kl. 21:54

7 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Ég var nú svo heppinn að ekkert af okkar húsum víðs um Houston urðu fyrir skemmdum af flóði eða vindi, býð eftir útkomuni í Miami. Hef átt Fasteignir í Miami í 41 ár en alltaf sloppið við skemmdir frá fellibylnum.

Það var mikil flóð allstaðar í kringum okkar Fasteignir og miklar skemmdir og bara furðulegt að við,sluppum.

En ég varð fyrir $3,000 vatnskemdum í Las Vegas, GO figure, i eyðimörkinni og það var enginn rigning.

En ég vorkenni fólki sem lenti í vatnskemdum, Fake News CNN taldi að það væru 300 þúsund Fasteignir skemmdar eða ónýtar í Texas vegna fellibylsins Harvey, en eins og við vitum þá eru fréttir hjá Fake News CNN ekki alltaf réttar.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 11.9.2017 kl. 23:29

8 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Ég trúi því ekki að Alþingi lúffi enn og aftur, hélt að Góða Gáfaða Fólkið hafi lært eitthvað að gefa Albönunum ólöglegt Ríkisfang.

Kanski lærir Góða Gáfaða Fólkið ekkert af þessu.

Það verða engir hælisleitendur frá Texas býst ég við sem vilja fara til Íslands. 

Við höfum ekki neitt vandamál að fólk er að flýja Texas, því miður, en við erum með vandamál að hælisleitendur eru að hrúgast til Texas, því miður, sem skapar ýmis vandamál.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 11.9.2017 kl. 23:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband