Leita í fréttum mbl.is

Ársæll Þórðarson

húsasmiður er  góður maður og Guðhræddur. Hann skrifar grein í Morgunblaðið í dag.

Þar viðrar hann líklega skoðanir sem margir Íslendingar deila með honum. Hann segir m.a.svo:

"Hér á landi er nú fjöldi hælisleitenda sem nýtur góðrar gestrisni. Á sama tíma eru íslenskir ríkisborgarar, sem oft eiga við einhverslags fötlun að stríða á götunni sem fá þá úrlausn að gista yfir nótt í einhverslags herskálum mannúðarinnar.

Hingað til hefur stjórnvöldum ríkis og sveitarfélaga gengið misvel að hjálpa þessu fólki sómasamlega og má raunar segja að úrræðaleysi stjórnvalda gagnvart þessum minnstu bræðrum og systrum sé þjóðinni til skammar.

Nú er komin ný staða upp í útigangsmálunum. Reglusamt fólk sem hrakist hefur úr leiguhúsnæði er nú á götunni og Rúv tók viðtöl við konu sem var í tjaldi í Laugardalnum þar sem greiðslan er kr. 2.200 á dag fyrir tjald sem er um tveir fermetrar.

Hér er mikill munur á aðhlynningu þegar horft er til hælisleitendanna sem íslenska þjóðin er látin halda uppi í vellystingum. Það fyrirfinnast Íslendingar sem ítrekað er neitað um félagslegt húsnæði, jafnvel árum saman. Þeir búa í tjöldum, bílum og við enn verri að- stæður.

Fjölda erlendra ríkisborgara er haldið uppi með ærnum kostnaði af ríki og borg og býr í húsnæði sem íslenskir skattgreiðendur ætla löndum sínum. Gestasneiðin af þjóðarkökunni er stór og Íslendingar á vergangi eiga þá sneið með réttu.

Skynsemi og hjálpsemi

Fámenn þjóð á að einbeita sér að hjálparstarfi erlendis, þjóðarsálin ræður ekki við mikinn innflutning fólks með framandi trú og menningu. Íslendingar eiga sögu. Spánverjavígin á Vestfjörðum og Tyrkjaránin eiga að vera til lærdóms.

Óöld ríkir víða í Svíþjóð og 10 milljóna þjóðfélag Svía er í vandræðum með málin. Sömu sögu er að segja víða í V-Evrópu. Hér gildir það sama og í öllu öðru, að sníða sér stakk eftir vexti, og Íslendingar eru þegar komnir út fyrir þann ramma.

345 þúsund manna þjóðfélag er áhættuhópur (geirfugl) í samhenginu. Íslensk ráðstjórn vinnur að því í vinstri öfgum að brengla rökréttri hugsun Íslendinga á samábyrgð og þegnrétt. Einhverslags pólitísku örlæti er ætlað að koma þar í staðinn og virka sem skiptimynt í fjölþjóðavæðingunni.

Ég bið Íslendingum Guðs friðar. Blind góðvild Eftir Ársæl Þórðarson Ársæll Þórðarson »

Það er í raun bara ein þjóðarkaka á borðinu og ef einhver fær stóra sneið fær annar minni.

Höfundur er húsasmiður. arsaellth@simnet"

Nú flytur Samfylkingin frumvarp á Alþingi til að taka fram fyrir hendur Dómsmálaráðherra til að framlengja tilhæfulausa dvöl 6 manns sem eru hælisleitendur. Hún hefur tvær litlar stúlkur á spjótsoddum sínum fyrir framan sig og reyna að blása upp samúð með Samfylkingunni og formanni hennar, Loga. Þetta fólk á að hafa forgang til húsnæðis og framfærslu fram yfir þá Íslendinga sem á vergangi eru og Ársæll talar um í grein sinni.

Þessi sami formaður Samfylkingarinnar lét sig ekki muna um að fara með þjösnagangi gegn guðsmanninum Snorra Óskarssyni kennara á Akureyri og bola honum úr starfi. Hefur Snorri engar bætur hlotið fyrir starfsmissinn sem að hluta til að minnsta kosti er af völdum þessa sama Loga. Sakir Snorra voru þær að halda málstað hinnar stjórnarskrárbundnu evangelísku ríkiskirkju á lofti við nemendur sína og fara með Guðsorð. Þetta þoldi ekki trúarvíðsýni og alþjóðahyggja Samfylkingarinnar né Logi formaður hennar og því fór sem fór.

Skinhelgi og hræsni þessa fólks yfirskyggir afstöðu þess til annarra vandamála í þjóðfélaginu. Samúðin með okkar lítilmögnum er lítt áberandi hjá þessu fólki. Það reynir hinsvegar  að bjarga deyjandi stjórnmálaflokki sínum með því að slá pólitískar keilur með því höfða til samúðar venjulegs fólks um leið og það býr til vont fólk úr löglega kjörnum yfirvöldum. Þetta fólk sættir sig ekki við lýðræðið frekar en Bandarískir DemoKratar  heldur vill láta Alþingi götunnar ráða í von um stundarávinning í pólitík. Sama innrætið hjá báðum þessum systurflokkum, þar sem tilgangurinn helgar meðalið. hvort sem maðurinn heitir Trump eða Snorri Óskarsson.

Ársæll Þórðarson á mínar þakkir fyrir að orða þessar hugsanir svona skilmerkilega. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Snilldarpistill hjá honum og svo sannur.

Því miður er sú pólitíska stétt sen nú ræður

ríkjum, kynslóð fólks sem aldrei hefur þurft 

að hafa fyrir einu né neinu og heldur og trúir

að allt sé ókeypis og peningar falli niður

af himnum.

Svo eru inná milli menn eins og Logi að reyna að

slá sig til riddara á kostnað almennings.

Meðan svona fólk er í pólitík er ekki nema von

að illa fari.

Sigurður Kristján Hjaltested, 12.9.2017 kl. 14:42

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Sammála Siggi vinur, þetta er bara Farísei og pólitískur hræsnari eins og þetta Góða fólk er margt.

Halldór Jónsson, 12.9.2017 kl. 15:29

3 Smámynd: Hörður Halldórsson

Ársæll er sómakarl.

Hörður Halldórsson, 12.9.2017 kl. 20:01

4 Smámynd: Jón Valur Jensson

Tek undir með ykkur öllum þremur, og Ásgeir þekki ég að mörgu góðu. Takk, Halldór, fyrir þinn óhvikula vitnisburð. 

Jón Valur Jensson, 12.9.2017 kl. 20:25

5 Smámynd: Eyjólfur Jónsson

Nú ætlar samfylkingin að ráða í staðin fyrir ráðherra. Má ætla að Ísl. almenningur geti gert hið sama og bara farið að stjórna landinu í staðin fyrir ríkisstjórnina. Nú hvert svo sem útfallið verður er búið að skapa fordæmi sem við Strákarnir ætlum að notfæra okkur og taka stjórnina af stjórninni svo fólk í landinu fái aftur að stunda borgaða vinnu.

Eyjólfur Jónsson, 12.9.2017 kl. 21:48

6 Smámynd: Jón Valur Jensson

Ársæl þekki ég ...

átti vitaskuld að standa hér.

Jón Valur Jensson, 13.9.2017 kl. 10:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband