Leita í fréttum mbl.is

Gaman, gaman

sendu meiri peninga, sagði síðar þekktur athafnamaður í skeyti til yfirboðara síns eftir að hann hafði skemmt sér ærlega í Kaupmannahöfn og klárað ferðasjóðinn.

Gaman gaman. Þá sjá Sjálfstæðismenn menn enn einu sinni framan í kratatrýnið eins og það er. Þeir kratar sprengja og sprengja eins og formaðurinn Gröndal sagði um árið. Sá sem treystir krötum er glataður í pólitík, frá Þorsteini og Geir Haarde til Bjarna Ben. Þeim krötum er aldrei að treysta í pólitík.  Það er bara ekki vitað alveg núna hvert á að síma eftir meiri peningum.

Er þetta ekki lærdómur fyrir kjósendur? Sýnir hvaða afleiðingar það hefur að greiða smáflokkum á borð við Bjarta Framtíð atkvæði sitt í einhverri ímyndaðri uppreisn gegn hinum gamla fjórflokki eða þríflokki núna sem er í tísku að rakka niður á bloggsíðum við öll tækifæri? 

Það verður gaman gaman að fá að kjósa Samfylkinguna frá til eilífðar og Bjarta Framtíð og Viðreisn út af borðinu til algers áhrifaleysis um alla framtíð. Fólkið mun sjá að stöðugleiki fæst aldrei fyrr en stóru flokkarnir þrír mynda einhverskonar trausta stjórn. Kratastóðið í hvaða gervi sem er má þar hvergi nærri koma enda sýnt sig að vera gersamlega óhæft til stjórnarsetu. Good riddance!

Spurning er hvort Framsókn hoppar á tækifærið.

Nú annars kjósum við bara aftur eins og við vildum margir gera strax.

Gaman Gaman!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bjarni Jónsson

Þetta tætingslið, BF, er ekki aðeins ábyrgðarlaust, heldur einnig hæfileikalaust til stjórnunar, eins og stjórnarseta þess og nú stjórnarslit hafa opinberað.  Siðleysið hrjáir sumt af því í þokkabót, eins og tízkusýning í þingsal bar vott um.  Nú taka við flóknir tímar í pólitíkinni og ólgusjór mikill.

Bjarni Jónsson, 15.9.2017 kl. 09:56

2 identicon

Það er nauðsýnlegt að nú verði varið í þjóðarfjósið og flórinn grandskoðaður ef hann er hreinn verði þjoðinni sýnt fram á það. Ef svo er ekki þarf að moka flórinn, þannig að henn verði hreinn. 

Í gegn um ártíðirnar hefur Íslensku þjóðinni verið talið trú um að enginn spilling væri á Íslandi, er það rétt eintóm lygi.

Íslensku þjóðinni hefur verið talið trú um  og þá vitnað í erlendar stofnanir að Íslendingar væru hamingjusamasta þjóð í heimi.

Ef það er grannt er skoðað í flórinn ætti  þetta allt að koma í ljós.

Eðvarð Lárus Árnason (IP-tala skráð) 15.9.2017 kl. 10:25

3 identicon

Það er ráðstjórn Sovétfréttastofu Rúv og Stöð2, sem ráða hér ferðinni eins og fyrri daginn. Þeir vilja láta okkur háttvirta kjósendur vita, að þeir vilji ekki hafa þá flokka, sem við viljum helst sjá í ríkisstjórn, og senda okkur og lýðræðinu þar með langt nef. Þeir minna mig á gamlan skólastjóra Hagaskóla, sem hafði alltaf að orðtæki: "Hér er það ég, sem ræð." Þeir vilja ekki, að við ráðum neinu um það. Það er svo sem engin furða, þótt fólk veigri sér við að stunda pólitík, þegar það fylgist með framgöngu Sovétfréttastofu Rúv og Stöð2, sem eru reiðubúnir til að taka það fólk af lífi, sem þeir eru í andstöðu við og koma hér á einræði. Þetta getur ekki gengið svona lengur. Það er orðið ömurlegt að horfa upp á þessar eilífu aðfarir fréttastofufólks Rúv og Stöðvar2. Mál er að linni. En hvað er til ráða? Það er nú stóra spurningin, sem er vandsvarað, en við háttvirtir kjósendur verðum að fara að rísa upp gegn þessum andskota. Annað kemur vart til greina. Þetta getur ekki gengið svona lengur, og hættulegt í rauninni, að fjölmiðlarnir ráði svona miklu. Ég segi ekki annað.

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 15.9.2017 kl. 10:35

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Bjarni, nú er um að gera að nafni þinn Ben varðveiti ró sína.

Ekki hef ég trú á þér Eddi minn sem fjósameistara.

Ég vona að Bjarni sýni það núna hver það er sem ræður og láti þetta lið ekki mokka sig.

Halldór Jónsson, 15.9.2017 kl. 11:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 3418189

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 44
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband