Leita í fréttum mbl.is

Eru Selfyssingar sáttir

við þau áforma að byggja nýja Ölfusárbrú fyrir 5 milljarða langt fyrir ofan bæ?

Man enginn hver var ástæðan fyrir því að Selfoss byggðist? Það er af því að þar var reist brú yfir Ölfusá. Bærinn byggðist vegna umferðarinnar til þessa náttúrlega hnútapunkts.

Nú er búið að finna það út að gamla brúin, sem lengi hér nýja brúin eftir fall þeirrar fyrstu, sé farin að ryðga. það þurfi nýja brú. Samt á hún að standa áfram um aldur og ævi sem hún auðvitað getur þrátt fyrir einhverja núverandi auglýsta ryðbletti.

Þá fær einhver verkfræðistofa, það verkefni að teikna nýja 300 metra sprellibrú með 60 metra háum turni og strengjum langt fyrir ofan bæ. Eru Selfyssingar alveg ónæmir fyrir þessum áformum? 

Ein góð hugmynd var komin að byggja þarna stíflu og 50 Mw raforkuver sem væri líka brú. Það var  bara slegið út af borðinu án frekari umræðu.Af hverju?

Það er áreiðanlega hægt að byggja brú við báðum megin við hliðina á núverandi brú með fimm sinnum minni kostnaði og koma allri umferð frá henni í gegn um bæinn ef menn vilja. En ef menn vilja það ekki og bæjarbúar vilja bara saga niður greinina sem þeir sitja á sjálfir, þá er víst fátt sem getur hindrað það.

Það er auðvitað gaman fyrir verkfræðinga að fá að teikna 300 metra sprellibrú í stað 84 metra brúar brúar sem hægt er að kaupa eftir priskúrant eins og gömlu hengibrýrnar okkar. Brúargerð erlendis er löngu orðin stöðluð og þarf ekki séríslenskar aðstæður til að framleiða þær.

En er ekki úr vegi að Selfyssingar hugsi aðeins hvaðan þeir komu og séu sáttir við forsendur bæjarins?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Því miður eru þetta sömu gagnrök gegn brú og voru uppi þegar byggja átti þá brú sem nú liggur um Hellu í stað þeirrar gömlu sem þorpið byggðist við. 

Sú brú var talin "langt fyrir utan" Hellu. Nú hefur byggðin færst sig að henni án þess að þar hafi orðið til neitt svipaður umferðarhnútur og myndast í gegnum Selfossbæ á meðan aðeins er farið um það brúarstæði. 

Núverandi brú við Hellu er á besta stað og nýja Ölfusárbrúin verður það líka og stórkostleg samgöngubót að því að fara meðfram núverandi byggð um þjóðveg eitt í stað þess að troðast í umferðarteppu í krókaleiðinni sem núverandi brú býður upp á. 

Ómar Ragnarsson, 24.9.2017 kl. 21:09

2 Smámynd: Halldór Jónsson

En af hverju ekkki stíflu Ómar og virkjun? Er það ekki meira vit en þessa stælbrú?

Halldór Jónsson, 24.9.2017 kl. 21:40

3 Smámynd: Halldór Jónsson

 Og það er alveg óþarfi að hafa umferðarteppur , leggja veg bakkanum er ein leið

Halldór Jónsson, 24.9.2017 kl. 21:41

4 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Það er ókostur við að færa þjóðveg frá byggð. Dæmi eru nokkur um stofnbrautir svokallaðar sem æagðar eru utan byggðarkjarna.

Öll umferð hverfur úr byggðinni og þar með megnið af ferðamönnum og ferðatengdri þjónustu. Selfyssingar, sem nú eru einmitt að stíla upp á framtíð bæjarinns byggða á ferðamennsku í alfaraleið, mættu máki hugsa fyrir einhverri málamiðlun þarna.

Ef þjöðvegur verður lagður í línu utan byggðarkjarnans, mun Selfoss breytast í svefnbæ. Það að byggðin muni færa sig nær veginu er hún vex, eru undarleg rök. Fyrst og fremst tæki öað áratugi og í öpru lagi þá væri byggðin komin í aömu stöðu og nú. Ef þjóðvegurinn kemur ekki til selfoss kemur selfoss til þjóðvegarins.

Jón Steinar Ragnarsson, 24.9.2017 kl. 21:43

5 Smámynd: Sigurður Antonsson

Nýja brúin er lík brú yfir Firth of Forth / Edinborg í Skotlandi sem opnuð var nýlega eftir áratuga smíð. Er eflaust tákn um ný verkfræðiafrek. Mikið hefur gengið á við brúarsmíðina enda mikið mannvirki með 4 akreinar í hvora átt, áttatíuþúsund bíla á dag. Gamla brúin frá 1890 er einnig tákn um mikla verkfræðikunnáttu og á skrá UNESCO.

Snjöll hugmynd að virkja Ölfusá í leiðinni. Láta virkjunina bera uppi brúarkostnaðinn? Af hverju hafa ekki farið fram umræður um aðra kosti?

Landeyjahöfn er dæmi um verkfræðileg mistök. Verkfræðingarnir hjá Vegagerðinni höfðu ekki fyrir því að ræða við íslenska kunnáttumenn sem starfað höfðu með Þjóðverjum. Vía um heim við svipaðar aðstæður. Staðsetning austan við Markarfljót nú betri kostur og höfnin fyllist af sandi oft á ári.

Að nefna betri kosti á því miður ekki alltaf upp á pallborðið. Hvað ræða við Landsvirkjun um brúargerð? Vegagerðin er þó þekkt fyrir aðhald og góðan rekstur. Hversvegna spyrð þú Selfyssinga Halldór? Eru það ekki skattgreiðendur sem borga eða er hér verið að apa eftir Skotum?

Sigurður Antonsson, 24.9.2017 kl. 21:58

6 Smámynd: Halldór Jónsson

Sigurður, mér finnst Jón Steinar svara því af hverju ég spyr Selfyssinga"Öll umferð hverfur úr byggðinni og þar með megnið af ferðamönnum og ferðatengdri þjónustu. Selfyssingar, sem nú eru einmitt að stíla upp á framtíð bæjarinns byggða á ferðamennsku í alfaraleið, mættu máki hugsa fyrir einhverri málamiðlun þarna."

Er það ekki sjónarmið sem þarf að huga að?

Það er heldur ekki sama hvað svona brú kostar. Brýr eru yfirleitt dýrari eftir því sem þær eru lengri. Eða er ekki svo?

Halldór Jónsson, 24.9.2017 kl. 23:18

7 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Það fóru fram athuganir á virkjun þarna fyrir nokkrum árum en niðurstaðan varð neikvæð. Hefði sennilega orðið ennþá neikvæðari ef ein forsendan hefði verið breiður vegur eftir stíflunni með tilheyrandi öryggiskröfum. 

Á meðan á virkjun stæði yrði að beina ánni um hjáleið framhjá og líklegt er að lítil fallhæð gerði afköstin of lítil til þess að þetta myndi borga sig. 

Ómar Ragnarsson, 25.9.2017 kl. 00:55

8 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Er ekki eitthvað til, sem heitir gegnumstreymisvirkjun? Virkjun sem virkar án fallhæðar? Laxastigi sennilega nauðsynlegur, ef ekki á að fara illa, fyrir lífríkinu ofan stíflu.

 Þetta með staðsetningu brúarinnar er löngu ákveðið. Undarlegt að þetta akuli koma mönnum á óvart. Hvers vegna halda menn að Bónus, Hagkaup og fleiri fyrirtæki hafi byggt nýjar verslnir á nákvæmlega þeim stað, þar sem nýr þjóðvegur kemur til með liggja, að brúarsmíð lokinni?

 Allar hugmyndir um nýjan miðbæ á Selfossi eru andvana fæddar og algert glapræði að eyða svo mikið sem krónu meir í það verkefni.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 25.9.2017 kl. 01:35

9 identicon

Ég er vinstri maður og þar af leiðandi ákaflega framsýnn,finnst þessi tillaga mjög flott. Auðvitað byggist Selfoss ekki á því að þjóðvegurinn liggi í gegnum bæinn, Selfoss hefur frá alda öðli byggst upp sem bær með ákveðið þjónustuhlutverk fyrir alla Árnessýslu, þjónustubær fyrir bændur og búalið, þannig byggðist Selfoss upp sem bær.

Það lýsir ákaflega mikilli þröngsýni að halda því fram, að Selfossbær leggist niður, bara af því að þjóðvegurinn sé færður um nokkur hundruð metra, en kannski ekki von þar sem þessi pistill er skrifaður af gamaldags þröngsýnum íhalds kalli.

Helgi Jónsson (IP-tala skráð) 25.9.2017 kl. 09:09

10 Smámynd: Halldór Jónsson

Helgi: Það eru nokkuð ný tíðindi að vinstri menn séu ekki þröngsýnir, bara Sjálfstæðismenn. Annað hefur mér nú sýnst gegnum tíðina eins og sauðtryggð ykkar við Karl Marx og Sovéttið. Ég hef ekki sagt að Selfoss leggist af, aðeins að þetta er kostnaðarleg vitlweysa sem hægt er að leysa ódýrar. Og auvitað þarf Selfoss á gegnum traffík a halda. Ef hún er valkostur þá finnst mér valið blasa við. Og virkjunarklosturinn hefur heldur ekki verið rannsakaður í þaula að ég veit best.Stífla með rennslis túrbínum í núverandi brúarstæði og til hliðar við það, hefur það verið kannað?

Helgi minn, þú ættir að hætta að skoða heiminn bara í svart hvítu eins og Lenín og svoleiðis forngripir og reyna að hugsa sjálfstætt án gamaldags kennisetninga.

Halldór Jónsson, 25.9.2017 kl. 11:55

11 Smámynd: Halldór Jónsson

Ómar, það er hægt að byggja stífluna undir núverandi aðkomuvegi að brúnni og gera hana klára og hleypa svo ánni þar í gegn, gamla brúin þá óþörf því áin færi úr núverandi farvegi í gegnum rennslistúrbínur vestanmegin.. Sýnist ekkert stórmál í samanburði við sprellibrúna. 

Halldór Jónsson, 25.9.2017 kl. 11:58

12 Smámynd: Halldór Jónsson

Ómar: Að vísu er Ölfusá þarna, sem er vatnmesta á landsins,  með aðeins afl uppá einhver 4 Mw þar sem rennslið er aðeins 400 m3/sec eða 400.000kg/m/ sec eða 5444 hestöfl eða 3920 kwh.Það er kannski hægt að gera eitthvað til að auka þetta með hækkun vatnsborðs og jarðgöngum. En þettan er bara bónus ofan á brúarframkvæmdirnar einhverjar 2 milljónir á sólarhring sem eru líka peningar og borga brúna nokkuð klárlega.

Halldór Jónsson, 25.9.2017 kl. 17:06

13 Smámynd: Halldór Jónsson

10 metra fallhæð margfaldar afsköstin altt að tífalr þannig að að það er eftir einhverju að slægjast 

Halldór Jónsson, 25.9.2017 kl. 17:11

14 Smámynd: Halldór Jónsson

Íslosun færi um gamla farveginn

Halldór Jónsson, 25.9.2017 kl. 17:12

15 Smámynd: Halldór Jónsson

Er þetta alveg arfavitlaust?

Halldór Jónsson, 25.9.2017 kl. 17:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 3418167

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband