Leita í fréttum mbl.is

Logi Már er bara úlfur

undir sauðargæru sem gerir út á tilfinningar minna gefins fólks í pólitísku eiginhagsmunaskyni. Og þingmenn okkar aðrir eru kiðlingar sem láta hann teyma sig í foraðið vegna þess að þeir eru svo hræddir við að góða fólkið taki frá þeim atkvæði. Hræddir menn geta aldrei hugsað rökrétt hvað þá eru þeir til stórræða.

Nú samþykkir Alþingi að tala um flóttabörn sem eigi að njóta sérstakra réttinda. Þessu börn eru bara farangur spekúlanta sem eru foreldrar barnanna sem eru hingað komin til að hafa af okkur fé og fyrirhöfn. Við báðum þau ekki að koma með börnin og þess vegna eru börnin ekki okkur viðkomandi þegar þau komu. Núna er sagt að þau hafi skotið hér rótum sem kann auðvitað að vera rétt og skipta máli.

Okkar sök á þessari stöðu sem þjóðar felst í ræfildómi þingmanna sem láta íslenska embættismenn, sem eru til margar verka tregir nema að gera verkföll og heimta hærra kaup, vinna ekki vinnuna sína og hafa ekki komið  þessu fólki úr landi strax án tafa samkvæmt alþjóða reglum. Búið til þetta vandamál sem þingið er að aulast með í kvöld.

Gerðir þessa skrípaþings sem yfir stendur i kvöld  munu hafa afleiðingar og mikil vandamál í för með sér. Logi Már er í hlutverki Faríseans og fer það vel en þjóðin er í hlutverki tollheimtumannsins sem verður að skaffa peningana fyrir atkvæði Samfylkingarkratana sem grenja yfir því hvað þeir séu rosalega góðir. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Hann sem er besti vinur barnanna? Kannski ekki hans Snorra Óskarssonar.
Lundin er erfið og hann verður að fá henni útrás,bara óhugnaður á sjá þetta í beinni.     

Helga Kristjánsdóttir, 27.9.2017 kl. 03:18

2 identicon

Góða fólkið er ekkert gott fólk ... og það sem Íslendingar eiga sök á, er að sjá ekki málið í hnotskurn.

Þið vitið öll, að Ísland getur stutt fleiri "flóttamenn" heima hjá sér, en á Íslandi ... þetta þarf engann "stærðfræðisérfræðing" til að reikna út ... ekki satt?

En, Halldór Jónsson, af hverju eru Íslenskir ráðamenn að ná sér í "peninga" úr flóttamannasjóði Evrópu og SÞ? Og af hverju, er svona mikilvægt fyrir Íslenska ráðamenn að fá sér "hól" og "forréttindi" manna eins og Sóros? (ég segi eins-og, vegna þess að það eru fleir slíkir en bara Sórós).

Þetta er áhyggjuefnið ... ekki hvort þeir séu að hjálpa "börnum", nema að því leit að þeir eru að spila á "elsku börnin" streng almennings.  Á sama hátt og þeir voru að spila á "banraníðing" streng-inn áður.

Íslenskir ráðamenn, og þeir sem þeir standa raunverulega fyrir ... Halldór Jónsson ... eru hér með að uppljóstra um, að Ísland eigi í stórum fjárhagsörðugleikum.  Og þeir eru að "svíkja" börn ykkar, og barnabörn ... fyrir peninga.

En, ég verð að segja að ykkur er engin vorkun ... þið drukkuð öll af veigum "bankanna" og voruð á algeru fylleríi ... genguð einnig um og vildu hengja barþjóninn "bankamennina" fyrir að brennivínið þraut.

Öll þessi mál, ganga út á að fá "stjórn" á Íslandi ... og þýskum, bandarískum, enskum, dönskum ... ráðamönnum fjölgar á Íslandi eins og gorkúlum. Og flóttafólkið er "vogarafl" þeirra, til að í framtíðinni geta ráðið yfir landinu á forsendum þess að Íslendingar geta aldrei náð samstöðu.

Þetta er það sem "flóttamanna" straumurinn um alla Evrópu gengur út á ... ekki "aðstoð" við börnin.  Slíkt "auvirðulegt" bragð, hefdi átt að vera hverjum manni ljóst. En þegar fólk í Evrópu og innan einstakra landa Evrópu, er orðið það "fjölmennt" að engin "samstaða" næst innan landamæranna ... hvernig ætlar fólk þá að "breita" hlutum og stöðum?

Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 27.9.2017 kl. 05:26

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já Halldór, þetta er einmitt málið í hnotskurn, þingmenn ÞORA ekki að hafa sjálfstæða hugsun í þessum málum og ef þeir hafa hana ÞORA ÞEIR EKKI að tjá hana. Góð greining hjá þér.

Jóhann Elíasson, 27.9.2017 kl. 07:37

4 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Það er spurning hvað störf þessir innflytjendur, sem Logi þykist vera fullrúi fyrir, eigi að vinna.

Sjálfur stóð Logi að því að reka mann úr vinnu vegna skoðana um samkynhneigð. Allir vita að innan múslimatrúar er samkynhneigð forboðin.

Því hlýtur Logi að berjast af afli fyrir því að það fólk sem hann býður velkomið til landsins, fái hvergi vinnu, vegna skoðana um samkynhneigð!!

Gunnar Heiðarsson, 27.9.2017 kl. 08:33

5 Smámynd: Jón Þórhallsson

Ættum við að segja okkur strax úr Schengen til að eiga auðveldara með að sporna gegn óæskilegu fóki?

Allt of mikill tími hjá alþingi fer í að leysa vandamálin þegar í óefni er komið. Hver er lærdómurinn af þessu öllu?

Hefði verið betra ef að við hefðum verið utan schengen þannig að þetta fólk hefði ekki komist til landsins nema að þess væri sérstaklega óskað með vegabréfsáritun?

Jón Þórhallsson, 27.9.2017 kl. 09:02

6 identicon

Þetta var hámark lágkúrunnar í gær

barnaníðingar....ekki bara hvaða kallar sem er heldur góðan styrktaraðila Sjálfstæðisflokksins og föður forsætisráðherra“ sagði Oddný.

Borgari (IP-tala skráð) 27.9.2017 kl. 15:05

7 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Hún var ekkert sérstaklega afdráttarlaus þessi kona um téðar aðsteðjandi hættur. Þær voru allar "kannski". Kannski myndi fósturfaðir hennar drepa hana, kannski myndi hinn kokkálaði eiginmaður gera það lika etc.

Eitthvað hafa norðmenn fundið athugavert við þetta. Mér er spurn hvort ekki er einhver upplýsingasamvinna milli norsku og íslensku útlendingastofnananna.

Kannski fósturpabbi og spúsi séu bara ágætis gæjar og kannski mun hún sækja um leyfi til að þeir komi hingað síðar. Kannski það.

Jón Steinar Ragnarsson, 28.9.2017 kl. 03:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 2
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 3417957

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband