Leita í fréttum mbl.is

Ver því ætíð var um þig

Brothætt ástand íslenskara efnahagsmála verður manni ljóst af því að lesa skarplegan leiðara Fréttablaðisins eftir Hörð Ægisson í dag. Hörður segir:

"Fordæmalaus vöxtur í ferðaþjónustu á undanförnum árum hefur umbylt íslensku efnahagslífi. Fátt bendir til annars en að þær breytingar sem hafa orðið á hagkerfinu með þessari nýju gjaldeyrisskapandi atvinnugrein verði varanlegar. Erlenda staðan hefur þannig tekið stakkaskiptum, sparnaðarstigið aldrei mælst hærra og vegna viðvarandi viðskiptaafgangs er Ísland orðið að fjármagnsútflytjanda.

Jafnvægisgengi krónunnar hefur því hækkað verulega og vextir af þeim sökum verið lægri en ella án þess að raska efnahagslegum stöðugleika. Allt hefur þetta stuðlað að stórbættum kaupmætti almennings. Staðan í efnahagsmálum væri því allt önnur og verri ef ekki hefði komið til uppgangur ferðaþjónustunnar.

Í nýrri greiningu hagfræðideildar Landsbankans er bent á að um 40 til 50 prósent af heildarhagvexti frá 2010 megi skýra beint og óbeint með auknum umsvifum í ferðaþjónustu. Þá skapar greinin orðið rúmlega 40 prósent af öllum útflutningstekjum þjóðarbúsins sem er um helmingi meira en sjávarútvegur og áliðnaður samanlagt. Á síðustu tveimur árum hefði verið umtalsverður halli á viðskiptum við útlönd, sem hefði þýtt gengisveikingu og meiri verð- bólgu, ef ekki hefði verið fyrir vaxandi útflutningsverð- mæti ferðaþjónustunnar.

+Við slíkar aðstæður hefði eitt stærsta verkefni stjórnvalda – afnám fjármagnshafta – reynst mun erfiðara viðfangs. Það kemur því ekki á óvart að nánast ekkert ríki á jafn mikið undir ferðaþjónustu og Ísland.

Óþarfi er að fjölyrða um mikilvægi þess að ráðist verði í stórfelldar fjárfestingar í hinum ýmsu innviðum landsins á komandi árum, en þar skiptir ekki hvað síst máli uppbygging Keflavíkurflugvallar. Sú staðreynd að rekstrarfélag flugvallarins er að fullu í eigu ríkisins hefur haldið aftur af nauðsynlegri stækkun. Ríkið hlýtur að skoða aðkomu einkafjárfesta í því skyni að flýta þar fyrir nauðsynlegri uppbyggingu.

Uppgangur ferðaþjónustunnar, eins og undirstrikað er í greiningu Landsbankans, ræðst að stórum hluta af framboði á flugferðum til og frá landinu. Þar munar langsamlega mest um Icelandair og WOW air, sem eru samanlagt með yfir 80 prósenta markaðshlutdeild, og því ljóst að Ísland á mikið undir því að ekki verði truflanir á starfsemi íslensku flugfélaganna. Færa má fyrir því rök, rétt eins og átti við um bankana í aðdraganda fjármálahrunsins, að flugfélögin séu orðin kerfislega mikilvæg fyrir efnahagslegan stöðugleika.

Það eru að verða vatnaskil í íslenskri ferðaþjónustu. Sá gríðarlegi vöxtur sem greinin hefur upplifað er að baki. Tugprósenta gengishækkun og miklar samningsbundnar launahækkanir hafa dregið úr samkeppnishæfni greinarinnar og valdið því að það er farið að hægja á fjölgun ferðamanna. Til lengri tíma er þetta jákvæð þróun. Gengisstyrking krónunnar hefur gegnt lykilhlutverki í að halda aftur af ósjálfbærum vexti ferðaþjónustunnar og um leið stuðlað að meira jafnvægi í þjóðarbúskapnum.

Fyrirtæki í ferðaþjónustu, sem mörg hver hafa spennt bogann of hátt og horfa upp á versnandi afkomu, þurfa að fást við breyttar aðstæður með því að leita leiða til hagræðingar. Augljósasta leiðin er veruleg samþjöppun enda má öllum vera ljóst að fyrirtækjum í greininni hefur fjölgað of mikið. Vísbendingar eru um að sú þróun sé hafin. Það er aðeins upphafið að því sem koma skal."

Það er dæmigert fyrir íslenska heimsku að umræðan um uppbyggingu flugþjónustu skuli beinast að bulli um að byggja nýjan flugvöll í Hvassahrauni í stað ágæts flugvallar í Reykjavík. Á meðan bíða nauðsynlegar úrbætur á Keflavíkurflugvelli. Þar að auki áformum um hraðlest til Keflavíkurflugvallar í stað uppbyggingar þar.

En miklu alvarlegra er sú staðreynd hversu brothætt ástandið í ferðamálum er. Maður þorir ekki að hugsa þá hugsun til enda hvað eitt hryðjuverk í sambandi við ferðamennsku á Íslandi gæti haft í för með sér. Ef ferðamenn fældust frá landinu væri það efnahagslegur jarðskjálfti upp á mörg Richterstig. Spurning er hvort okkar öryggismál séu eitthvað í líkingu við það sem þau þyrftu að vera?

Upptaka vegabréfaskyldu og áritana til landsins er mikið öryggisatriði sem þarf að hrinda i framkvæmd sem allra fyrst. Eins og er þá er landið galopið fyrir ISIS liðum í gegnum hælisleitendahliðið. Sprengiefna eru tiltölulega auðvalt að afla og ýmislegt annað er hriplekt auk almenns ræfildóms yfirvalda.

Ekkert þjóðvarðlið er hérlendis sem hægt er að grípa til.Lögregluliðið okkar virðist vera undirlagt af allskyns innbyrðis deilum um tittlingaskít. Spurning er hvort menn eigi ekki að velta því fyrir sér í alvöru hversvegna konum er yfirleitt ekki falin herstjórn hvorki nú né á fyrri tíð. Konur eru öðruvísi en karlmenn hvað sem þær annars segja og þeirra hæfileikar umfram þá henta kannski ekki allstaðar.  

Hægt í logni hreyfir sig

sú hin kalda

undiralda.

Ver því ætíð var um þig.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Halldór.

Þú vitnar í lokin í Sveinbjörn Egilsson,
rektor Lærðaskólans í Reykjavík, - og fallegt
er þetta kvæði hans sem flest önnur.

Hygg að sá sami Sveinbjörn hefði þegið, þá
skríllinn skók hús hans með stanslausri grjóthríð
og mölbraut allar rúður í framhaldi af Pereatinu 1852 að í hópi vaktara hefðu verið nokkrar gustmiklar konur, -
a.m.k. kom fyrir lítið að sveitn var skipuð körlum einum
í það sinnið.

Eindregið fylgjandi þátttöku kvenna í öllum störfum,
ekki hvað sízt í lögreglunni enda gefa þær körlum
ekkert eftir nema síður væri.

Húsari. (IP-tala skráð) 29.9.2017 kl. 13:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 7
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 63
  • Frá upphafi: 3418166

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 59
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband