Leita í fréttum mbl.is

En þrælast Þorvaldur

á þvælunni um að þjóðin þrái stjórnarskrá hans heitar en nokkuð annað.

Merkilegt hvað Baugsveldið gamla endist til að borga þessum manni fyrir að hræra þess endalausu steypu um hið gersamlega ónýta, óritrýnda plagg og hrákasmíði sem hann talar um að þjóðin þrái svona heitt. 

Rangupplýsingar prófessorsins þar sem hann blandar alltaf saman þeim fjölda kjósenda og þeim sem tóku þátt i ólögmætri atkvæðagreiðslu mikils minnihluta kjósenda landsins eru líklega settar fram í þeirri skoðun dr. Göbbelsar að endurtaki maður lygina nógu oft þá verði hún að sannleika.

Mikil er því trú prófessors doktors Þorvaldar eins og trú doktor Göbbelsar var. Sá síðarnefndi  hafði það þó fram yfir doktor Þorvald að hann var sagður afburða skemmtilegur fyrirlesari í útvarp. 

Prófessor doktor Þorvaldur viðurkennir þó, að skynsamari hluti þjóðarinnar sé 19 % á móti þessum stjórnarskrárdrögum ásamt meirihluta embættismanna landsins. Það er þá ekki víst að öll nótt sé úti með það að Þorvaldi takist ætlunarverk sitt með að troða þessari endemisbleksteypu upp á grandalausa þjóðina, sem hefur líklega þegar alla þá stjórnarskrá sem hún þarf nokkru sinni á að halda Hún hefur enda dugað ágætlega frá 1944 þegar hún var samþykkt af yfirgnæfandi meirihluta landsmanna sem var miklu stærri en sá sem Þorvaldur mun nokkru sinni sjá flykkjast um sérhverja kratíska dellu sem honum kann í hug að koma.

Samt þrælast Þorvaldur enn á stjórnarskrárbullinu sínu og staðreyndafölsunum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Þorvaldur vill inn í styrkjaparadís akademíunnar í ESB. Þessvegna liggur honum svo á með að tæta stjórnarskrána í sig. Hún stendur ein í vegi fyrir þessum vota draum.

Jón Steinar Ragnarsson, 12.10.2017 kl. 13:00

2 identicon

Ég velti því fyrir mér þegar ég sé þessi skrif.  Hvers vegna mærir Halldór Jónsson, í nánast trúarlegu ofstæki, forsætisráðherra sem 77% þjóðarinnar hafnaði í kosningunum í fyrra.  

Steinar Frímannsson (IP-tala skráð) 12.10.2017 kl. 13:04

3 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Steinar, sko minn mann. Þú ert með þeim sleipari í reikikúnstum sem ég hef séð lengi. Prósentureikninginn höndlar þú eins og að drekka vatn. No problemó. :D

Þú finnur þetta líklega út vegna þess að sjálfstæðisflokkurinn fékk 23% atkvæða í kosningunum, sem var reyndar besta fylgi kosninganna. Vel af sér vikið.

Reiknaðu nú fyrir mig hve margir höfnuðu hinum flokkunum. Hve margir höfnuðu þeim flokki sem þú kaust?

Jón Steinar Ragnarsson, 12.10.2017 kl. 14:06

4 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ef þú ert að bera saman alþingiskosningar með ellefu flokkum og nei,já kosningu um eitt afmarkað málefni, þá ert annars aldeilis úti á túni í reiknilistinni.

Ef sjálfstæðisflokkurinn hefði verið einn í framboði og hefði hlotið 23% atkvæða, þá hefði með góðri samvisku verið hægt að segja að 77% hafi hafnað honum. 

Jón Steinar Ragnarsson, 12.10.2017 kl. 14:35

5 identicon

77% þjóðarinnar hafnaði Bjarna og Sjálfstæðisflokknum í kosningunum í fyrra eins og fram hefur komið. Miðað við hvar atkvæðin lentu má segja að 77% kjósenda hefðu viljað hverja sem er aðra en Bjarna og Sjálfstæðisflokkinn. Og miðað við skoðanakannanir fer sá hópur stækkandi. Þetta eru óvéfengjanlegar staðreyndir, vottaðar og bókaðar öllum til gagns og gamans. Hvort menn sjái þessa 77% höfnun sem sigur eða tap er svo matsatriði hvers og eins.

Gústi (IP-tala skráð) 12.10.2017 kl. 16:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 55
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband