Leita í fréttum mbl.is

Takk fyrir Þórhildur Sunna

að gefa okkur innsýn í þinn yndislega hreina hugarheim. Ég les í Mogga þetta:

"Þór­hild­ur Sunna Ævars­dótt­ir, odd­viti Pírata, seg­ir að flokk­ur­inn muni að sjálf­sögðu sækj­ast eft­ir því að mynda rík­is­stjórn í kjöl­far alþing­is­kosn­inga. Pírat­ar hlutu 9,2% at­kvæða, sex þing­menn en flokk­ur­inn tapaði fjór­um þing­mönn­um frá kosn­ing­un­um fyr­ir ári.

„Að sjálf­sögðu sækj­umst við eft­ir því. Við mun­um gera allt sem við get­um til að koma á stjórn­ar­leg­um stöðug­leika á land­inu en til þess er ætl­ast af okk­ur,“ seg­ir Þór­hild­ur Sunna í sam­tali við mbl.is.

Við erum að ná inn í þriðja sinn sem er ánægju­legt og sýn­ir að við erum kom­in til að vera,“ seg­ir Þór­hild­ur Sunna en hún neit­ar því ekki að Pírat­ar séu ör­lítið svekkt­ir með að fá færri þing­menn kjörna en í fyrra:

„Að sjálf­sögðu en á móti kem­ur að stefnu­mál okk­ar hafa kom­ist inn í stefn­ur flestra annarra flokka. Nú eru all­ir farn­ir að tala um upp­lýs­inga­fræði, gagn­sæi, nýja stjórn­ar­skrá og annað slíkt. Við kom­um inn í stjórn­mál til að koma viss­um skila­boðum til skila og ná ákveðnum ár­angri og það er að bæta stjórn­sýsl­una og koma henni inn í 21. öld­ina. Einnig að bæta upp­lýs­inga- og tján­ing­ar­frelsi á Íslandi. Við höf­um enn verk að vinna og eig­um fullt er­indi áfram.

Erfitt að vinna með þeim sem fara illa með vald

Hún seg­ir að erfitt sé að segja til um það á þess­ari stundu hvort Pírat­ar geti ekki hugsað sér að mynda rík­is­stjórn með ákveðnum flokk­un. „Maður hef­ur það á til­finn­ing­unni að Pírat­ar myndu ekki eiga sam­leið með þeim flokk­um sem hafa gert sína eig­in hags­muni að aðal­mál­um sinna stjórn­mála. Það er erfitt fyr­ir okk­ur að vinna með flokk­um sem, að okk­ar mati, fara ekki vel með vald. Við ætt­um þar af leiðandi erfiðara að fara í stjórn með þeim en öðrum.

Aðspurð tel­ur Þór­hild­ur Sunna að ástæður þess að kosið var núna, akkúrat ári eft­ir síðustu alþing­is­kosn­ing­ar, hafi týnst í umræðunni. 

„Við kus­um út af því að kon­ur höfðu hátt. Við kus­um út af því að Sjálf­stæðis­flokk­ur­inn hylmdi yfir með föður for­sæt­is­ráðherra sem skrifaði upp á upp­reist æru fyr­ir barn­aníðing. Það fékk ekki mikla umræðu í kosn­inga­bar­átt­unni og hvernig Sjálf­stæðis­flokk­ur­inn tók á því máli er meðal ann­ars ástæðan fyr­ir því að þeir hafa stimplað sig út úr því að telj­ast stjórn­tæk­ir."

Að sjálfsögðu viljum við spilltir ekki troða svo heilögu fólki um tær. Líði þér sem allra best í óspilltum hreinleika þínum þar sem fegurðin og friðurinn frá öllum pólitiskum skarkala heimsins ríkir einn þó að það kosti það að Ísland fær ekki að njóta krafta þinna.

Fólk verður að hlýða kalli samvisku sinnar og siðferðisprinsípa.Takk fyrir þína staðfestu og hreinleika sálarinnar. Haltu þig sem fjærst allri spillingu og vondu fólki Þórhildur Sunna Ævarsdóttir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Vinstriflokkarnir hafa keyrt á Hruninu í 10 ár og Píratar á “spillingunni.” Nú er tímabært að fólk fari að snúa sér að veruleikanum eins og hann er og tala um pólitík.

Ragnhildur Kolka, 30.10.2017 kl. 20:04

2 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Píratar :)

Heimir Lárusson Fjeldsted, 30.10.2017 kl. 21:54

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Kolka, ég hlustaði á SmáraMcCarthy í kvöld með Gunnari Braga og frú Friðriksson. 

Eftir þetta tel ég einboðið að leita annarra leiða en að kalla hann til stjórnarstarfa af augljósum aðstæðum.

Halldór Jónsson, 30.10.2017 kl. 21:55

4 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Er fjarri goðu gamni eins og er en mun nyta mer Sarpinn þega eg kem heim. En aldrei hefur mer litist a Smara McCarthy.

Ragnhildur Kolka, 31.10.2017 kl. 11:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband