Leita í fréttum mbl.is

Píratar eru ekki stjórnmálaflokkur

á Alþingi heldur Pírataflokkur til viðbótar við 7 stjórnmálaflokka á Alþingi.

Í febrúar síðastliðnum fengu þingmenn kauphækkun. Þá hótaði Jón Þór Ólafsson Pírataþingmaður að kæra ákvörðun kjararáðs. Um efndir hefur enginn heyrt. En þessi þingmaður fékk þá 338.254 króna launahækkun á mánuði.

Þá sagði þingmaðurinn:

 »Ef þessir þrír aðilar bregðast allir þá mun ég kæra ákvörðun kjararáðs til dómstóla og hef nú þegar fengið til þess lögfræðing.«

 Þetta segir Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata, í ofangreindri grein. Núna er eiginlega kominn tími til að hann leysi frá skjóðunni enda meira en tíu mánuður frá því að hann skrifaði þessi orð. Á þeim tíma og til loka þessa mánaðar hefur hann fengið samtals 3 milljónir króna aukreitis í laun, þökk sé þessu kjararáði.

Starf þingmanns er enginn orðaleikur eða innantómt tal. Ábyrgð þingmanna er mikil og þeir eru dæmdir af orðum og gerðum.

Jón Þór Ólafsson var stóryrtur í greininni sem hann þá skrifaði og því má spyrja: Hvað gerði hann við launahækkunina? Hvaða lögfræðing hefur hann ráðið til að hnekkja ákvörðun kjararáðs? Hverja hefur hann kært og fyrir hvaða stjórnvaldi?"

Fólkið sem kom inn af vinstra kantinum í fyrirlitningartísku Píratahugsjónarinnar hefur gersamlega gengið frá tiltrú manna á þessari Píratahreyfingu.

Morgunblaðið rifjaði  upp á sínum ´tima upp í Staksteinum endemis feril þessa Jóns Þórs á Alþingi, þar sem hann hefur bókstaflega orðið að viðundri fyrir slæping og hjásetur að hætti Pírata. Stökk af þingi til að fara að malbika. Bjó sem þingmaður án nauðsynja í  stúdentaíbúð til að spara? Þingmaður fyrir flokk sem krefst gagnsæis?

Það er beinlínis forsenda þess að hér sé hægt að mynda starfshæfa stjórn að Pírötum sé haldið utan við. Og með nokkru má segja að sama gildi um Samfylkinguna ef miða má við þær yfirlýsingar sem frá  formanni hennar koma um forgangsmál.

Bullið í Sunnu Ævarsdóttur á Sprengisandi tók svo steininn úr með það að sá þingmaður er ekki viðræðuhæfur um stjórnmál. Glórulaust vanþroska persónuhatur þessa þingbarns útilokar hana gersamlega frá vitrænni umræðu um stjórnmál,

Píratar eru greinilega ekki stjórnmálaflokkur í venjulegum skilningi sem nokkur getur byggt á til framtíðar.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Það vantar ekki stóryrðin og gildisdómana í þessari grein.  Sorglegt að bloggari skilji ekki,að það er hann sem er orsök vandans en ekki þingbörnin eða þingflónin. Skrímsladeildin,sem Halldór er hluti af,er ofnæmisvaldurinn sem ásamt þrásetu óhæfs formanns sjálfstæðisflokksins getur af sér það hatur sem beinist nú öðru fremur að sjálfstæðisflokknum.  Losið ykkur við Bjarna og þaggið niður í skrímsladeildinni og þá mun þjóðfélagið rétta við.

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 12.11.2017 kl. 14:47

2 identicon

http://andriki.is/2017/10/16/satu-thrjuthusund-sinnum-hja-gagnryna-adra-thingmenn-fyrir-vinnubrogd/

og þetta fólk taldi 10% þjóðarinnar að væri hæft til að hafa í vinnu

Grímur (IP-tala skráð) 12.11.2017 kl. 15:35

3 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Lögfræðingurinn sem er ekki lögfræðingur, ekki á Íslandi í það minsta, getur verið stóryrt og svo þykist hún vera berjast fyrir  mannréttindum, en þykir sjálfsagt að hefta tjáningarfrelsi ef það stangast á við hennar hugmyndir.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 12.11.2017 kl. 15:50

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Þeir þingmenn sem hafa lítið efnislegt fram að færa tala jafnan mest um „vinnubrögðin á alþingi“ og að „traustið á alþingi sé lítið“. Fáir hafa náð meiri leikni í fela eigið erindisleysi með þessum hætti en Helgi Hrafn Gunnarsson sem sat á þingi fyrir Pírata á síðasta kjörtímabili. Hann gefur nú kost á sér til endurkjörs og er strax farinn að senda þinginu glósur og umvandanir um vinnubrögðin. Og í nýju kosningaefni Pírata kemur fram að þegar þeir hafi náð völdum „í framtíðinni okkar“ þurfi enginn að skammast sín lengur fyrir íslensk stjórnmál.

hhg_skammastsinEn hvernig voru þá vinnubrögð hins háttvirta þingmanns sem er svo duglegur að gagnrýna aðra þingmenn fyrir slök vinnubrögð? Ætli þau hafi ekki verið til fyrirmyndar og til þess fallin að auka traust á þinginu?

Þegar atkvæðaskrá hans fyrir hið stytta kjörtímabil (2013-2016) er skoðuð kemur í ljós að í 1.112 atkvæðagreiðslum treysti hann sér ekki til að taka afstöðu til mála.

Auðvitað kemur það fyrir að þingmenn eru ósáttir við eitt atriði í lagafrumvarpi og vilja ekki styðja það og heldur ekki greiða atkvæði gegn frumvarpinu í heild. En hjáseta í mörg hundruð eða yfir þúsund málum er af allt öðrum toga.

Hinar 1.112 hjásetur Helga Hrafns þýða að nokkrum sinnum á hverjum þingfundardegi vissi hann einfaldlega ekki hvort hann væri með eða á móti málum sem voru til umfjöllunar í þinginu. Hann hafði bara ekki hugmynd um hvað var í gangi.

Fjölmiðlar spurðu Píratann auðvitað ekki hverju þetta sætti því hann var jú svo duglegur að gagnrýna aðra þingmenn fyrir vinnubrögðin.

Eina skiptið sem hann þurfti að svara fyrir hjásetu var á Facebook haustið 2016 þegar Píratar sátu hjá þegar frumvörp er vörðuðu nýja búvörusamninga komu til atkvæða. Helgi Hrafn svaraði gagnrýnni með þessum orðum:

Ef við værum með mótaðar hugmyndir um kerfi til að taka við þessu, þá hefðum við sjálfsagt greitt atkvæði gegn þessu.

Stjórnmálaflokkur sem starfað hefur um árabil á þingi hefur ekki stefnu í landbúnaðarmálum.

En Helgi Hrafn var ekki einn Pírata um hjásetuna. Jón Þór Ólafsson sat 1.285 sinnum hjá og Birgitta Jónsdóttir treysti sér ekki til að taka afstöðu 1.074 sinnum á síðasta kjörtímabili. Samtals er þetta 3.471 hjáseta.

Hverjir þurfa nú helst að skammast sín fyrir vinnubrögðin?

Halldór Jónsson, 12.11.2017 kl. 17:43

5 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Píratar eru afsprengi selfí kynslóðarinnar. Snst bara um persónufornöfnin þeirra.

Jón Steinar Ragnarsson, 12.11.2017 kl. 19:17

6 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Þ.e. Persónufornöfn í fyrstu persónu. 

Jón Steinar Ragnarsson, 12.11.2017 kl. 19:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 3417956

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband