Leita í fréttum mbl.is

Sjúkt hugarfar

birtist hjá Drífu Snædal þegar hún gengur úr röðum VG eftir 18 ára veru.

Hvaðan kemur svona haturshugarfar í garð með-Íslendinga? Gegn einstaklingum af sömu þjóð?

Drífa segir:

"...Við munum ekki breyta Sjálfstæðisflokknum.

Innviðir hans eru spilltir og fullir kvenfyrirlitningar og að halda að við breytum honum er meðvirkni í hæsta máta.

Sjálfstæðismenn munum fagna stjórnarsáttmála, fara inn í sín ráðuneyti og haga sér nákvæmlega eins og þessi valdastofnun hefur alltaf hagað sér. Við og við vellur gröfturinn upp í formi frændhygli, innherjaviðskipta, skattaskjóla, auðvaldsdekurs, útlendingarandúðar eða skjaldborgar um ofbeldismenn.

Þá verður VG í þeirri stöðu að verja samstarfsflokkinn og mörkin munu sífellt færast til í samstarfinu líkt og í ofbeldissambandi.

Þetta verður eins og að éta skít í heilt kjörtímabil, ef stjórnin endist svo lengi. Með ákvörðuninni um stjórnarviðræður setti flokkinn niður, trúverðugleikinn laskaðist verulega og vinstrið á Íslandi mun eiga erfitt uppdráttar næstu árin og áratugina.

Ef við lítum til langs tíma er það miklu farsælla fyrir okkar málstað að vera í stjórnarandstöðu heldur en ríkisstjórn, jafnvel þó það þýði verstu ríkisstjórn allra tíma til skamms tíma.

Ég er döpur og reið en eftir mikla umhugsun þá er mér ómögulegt að taka þátt í þessari vegferð með flokknum sem ég hef verið félagi í í átján ár.

Ég óska öllum vinum mínum og fyrrum samstarfsfélögum alls hins besta og vona að ég eigi einhvern tíman afturkvæmt.

Ég get ekki kyngt því að við berum ábyrgð á því að koma Sjálfstæðisflokknum til valda eða séum til í að opna þann möguleika.

Bara alls ekki. Nokkur góð ráð til félaga minna: Ekki einangra ákvarðanir í litlum hópum, veljið ráðgjafa víða að, forðist „bönker“ stemningu í hreyfingunni, ekki leggja allt á herðar Katrínar, það er ekki sanngjarnt gagnvart henni né öðrum.

Og alls ekki stilla þessu upp sem „með eða á móti Katrínu“ eða persónugera á annan hátt, það er ódýrt trikk og verður ekki til að græða sárin."

HerreGud. Hvað er að þessari manneskju?

Þetta hugarfar er sjúkt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Svona er haft eftir ákveðnum bloggar á mbl.is fyrir skömmu Í frétt þar sem vitanð er hans orð þar sem hann segir sig úr flokknum:

"Hafa þau Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri í Kópavogi, Ásgerður Halldórsdóttir á Seltjarnarnesi og Gunnar Einarsson í Garðabæ tekið sæti í endurkjörsnefnd Dags B. Eggertssonar og vinstri meirihlutans í Reykjavík?

Sjálfstæðisflokkurinn þarf greinilega ekki á mínu atkvæði að halda að vori þar sem upprunnir virðast nýir tímar. Ég á ekki samleið með Degi B. Eggertssyni og hans stefnumálum.

Lifi þetta góða Sjálfstæðisfólk marga góða Daga og takk fyrir mig.“"

Sjá hér

Ætla bæjarstjórar Sjálfstæðisflokksins að tryggja Degi B. og hans fólki áframhaldandi völd?</a

Magnús Helgi Björgvinsson, 16.11.2017 kl. 21:29

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Þeir grútfúlu brottfluttu VG og Sjallar gætu myndað með sér bandalag,málefnin þurfa ekki að vera merkilegri. --

Helga Kristjánsdóttir, 17.11.2017 kl. 05:43

3 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Eg er einn af þeim sem fagnar þessaru nýju stjórn VG, sjálfstæðismanna og framsóknar. En ef talað er á hinn bóginn um sjúkt hugarfar og hatur einhverra vinstri manna í garð sjálfstæðisflokksins þá sýnist mér á þessum skrifum hér að ofan að þetta sé nú nokkuð gagnkvæmt.

Jósef Smári Ásmundsson, 17.11.2017 kl. 08:18

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Sem fyrri daginn er þér ofvaxið að skilja mælt mál Magnús minn Helgi hvað þá að draga réttar stjórnmálalegar ályktanir af því sem sagt er. Ég hef ekki yfirgefið Sjálfstæðisflokkinn eða Sjálfstæðisstefnuna þó að ég styðji ekki einstaka frambjóðendur flokksins ef þeir ætla að taka upp mál sem ég get ekki stutt.Eins er um Borgarlínuna og einkabílahatrið. Enda hafa þeir dregið verulega í land með þessi mál við nánari athugun enda skynsamt fólk í Sjálfstæðisflokknnum.

Halldór Jónsson, 17.11.2017 kl. 08:48

5 Smámynd: Guðmundur Jónsson

Ég hélt lengi að alli vinstrimanna sem töluðu svona um náungan væru bara fullir af hatri og heift vegna ósigurs komanna á síðustu öld. Nú seinni ár þegar maður sér ungt fólk sem ætti ekki að vera þjakað af því, tala í yfirlýsing á borð við þessa hjá Drífu þá fer maður að efast um að það geti verið rétt.

Ég held að hluti þeirra sem eru að ganga úr VG núna trúi bara mjög innilega að Bjarni Ben og fjölskylda séu barnaníðingar, það skorti bar fullnægandi sannanir. Þau trú því að Bjarni liggi með milljarða í skattaskjólum og steli öllu sem hönd á festir það skorti bara sannanir. Vandi VG er aðallega fólginn í því að stór hluti flokksmanna og kjósenda trúði og trúa enn lyginn. Flokkurinn minkar því eðlilega um þann hlut því heiðarlegt fólk vinnur ekki með glæpamönnum.

Guðmundur Jónsson, 17.11.2017 kl. 09:06

6 identicon

Það sannast hér að mínu mati að sumir halda og haga sér þannig að flokkurinn þeirra sé sértrúarsöfnuður en ekki flokkur fólks sem er í stjórnmálum fyrir fólkið í landinu og sameiginlega þjóðarhagsmuni, af hverju tekur þetta öskurlið sig ekki saman og stofnar sinn eigin ofstækis og öskurflokk það sem meginmarkmiðið er að standa á kantinum og öskra, gagnrýna og rífa allt niður, þá þarf ekki að bera neina ábyrgð á neinu aðeins að spandera smá orku í skrílslætin!

Kristján Jón Sveinbjörnsson (IP-tala skráð) 17.11.2017 kl. 16:50

7 identicon

"Góða fólkið" er stútfullt af hatri og heift.  Þessi kerlingarálft er gott dæmi um það.

Bjarni (IP-tala skráð) 18.11.2017 kl. 09:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 3418167

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband