Leita í fréttum mbl.is

Blaðaútgáfa byggð á hugsjónum en ekki peningum !

Ég hef lengi haft áhuga fyrir því, að Sjálfstæðismenn gæfu út blað á
landsvísu. Þetta er líka eini flokkurinn sem hefur einhverja grundvallarheimspeki til að fara eftir. Hún var skrifuð niður í tveimur málsgreinum þegar flokkurinn var stofnaður og hefur ekki verið breytt síðan. Sjálfstæðisstefnan hefur staðið tímans tönn þó að einhverjir hafi reynt að snúa útúr henni í gegnum tíðina með málskrúði og laga hana þannig að eigin þörfum.

Ég hef hugsað mér það,  að þetta blað væri skrifað af Sjálfstæðismönnum eingöngu  og hugsanlega dreift líka af hinum öflugu flokksfélögum  sem til eru á hverjum stað
Ef félagarnir tæku  þátt í þessu þá eykur þetta félagsvitundina og þannig yrði flokkurinn stærri.

Þetta blað myndi fjalla um stjórnmál og áherzlur sjálfstæðismanna auk þess að vera létt og lifandi. Það yrði ekki galopið fyrir skrifum frá utanflokksmönnum frekar en tilefni gæfust til. Fyrst og fremst baráttutæki fyrir þann stjórnmálaflokk, sem meginmáli skiptir fyrir landið og landsmenn hafa líka fylkt sér um. Blaðinu  yrði dreift um allt land og kæmi út öðru hverju þegar tilefni gæfist til. Ég held að þannig kæmumst við nær fólkinu sem sæi að við erum ekki þær grýlursem andstæðingarnir segja að við séum. Og Jói í Bónus, Jón Ásgeir, Styrmir og Björgólfur Thor gætu ekki ráðið neinu um það hvað í blaðið væri skrifað.  Ég held að við gætum fengið einhverjar auglýsingar  til þess að láta þetta standa undir sér, þó að við hefðum auðvitað ekki aðgang að Baugsveldinu eins og Fréttablaðið. Upplagið yrði þó ámóta jafnstórt og Féttablaðið.

Munurinn væri sá að fólk gæti treyst því að þetta blað gengi ekki erinda neins annars en þeirra almannasamtaka sem Sjálfstæðisflokkurinn er. Hvað þá að það  væri ofurselt ranghugmyndum eða sjálfsáliti einstakra manna. Það er eiginlega enginn endir á því hvað úr þessu gæti orðið.
Ef við byrjuðum fljótlega þá hygg ég að vígstaða SJálfstæðisflokksins  gæti orðið allt önnur
þegar kemur að næstu kosningum. Fólkið myndi sjá að flokkurinn á ekki bara erindi við fólk til að betla atkvæði um kosningar heldur vill hann ræða við fólkið og leita það uppi til þess.

Ég hef talað fyrir daufum eyrum með þetta nokkuð lengi. Enginn af forystumönnum flokksins hefur gefið hætishót fyrir svona hugmyndir. Hér í Kópavogi trúa menn  því margir, að útgáfa Voga hafi skilað einhverjum árangri í Kópavogi. Eða kannske bara forðað verri útreið en raun ber vitni. En kannske var  þetta fólk bara á einhverju ímynduðu egóflippi. Það er auðvitað erfitt að fullyrða neitt eftirá í pólitík en okkur fannst þetta.

Vogar hafa verið gefnir út í bráðum 60 ár. Þeir eru auðvitað Kópavogsblað Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórninni og skrifa því mest um mál sem ná ekki útfyrir bæinn. En miðað við viðtökurnar sem ég hef nú fylgst með í ein 20 ár, þá hef ég ekki ástæðu til að ætla annað en  þetta mætti útvíkka í landsmálin.

Ég kem ekki auga á annað stjórnmálaafl í landinu en Sjálfstæðisflokkinn,  sem getur tekið upp viðspyrnu þeirrar gróðavæðingar sem mótar mestalla prentumræðu í landinu.  Allt drukknar í poppmennskunni og því sem peningavaldið ákveður að fólkið fái að sjá, .... jólaguðspjallið erí boði ......, .....það er ...... sem færir ykkur ......

Af hverju gefumst við svona upp fyrir þessu nýríka liði öllu ? 'eg veit ekki hversu margir myndu  lesa Moggann fyrir peninga ef væri ekki fyrir minningargreinarnar, sem eru kannske síðustu leifar mannlegheita í fjölmiðlum á Íslandi. Hitt er allt selt.

Ég er auðvitað gamaldags og úreltur fyrir löngu.  Þó er ég sæmilega tölvulæs og get fylgst með því sem fyrir augu ber.  En mér finnst Íslendingar um þessar mundir láta mata sig á skoðunum og segja sér fyrir verkum af fólki sem er hvorki fært til þess né heppilegt eins og leigupennar útgáfufélaganna eru. Mér finnt við þurfa nýjar raddir þó  kverúlantarnir megi fyrir mér vera áfram á Útvarpi Sögu.    Kannske les unga fólkið ekki neitt nema fréttir af músíkk og tilboðum í Bónus og aðrir kæra sig kollótta, þannig að prentmiðlar utan auglýsinga eigi ekkert erindi.  Samt kjósa yfir 80 % þannig að liljur vallarins vaxa á akrinum einhversstaðar.

Ég vildi þessvegna bara koma þessu frá mér ef einhver skyldi slysast til að lesa þetta. Ég er hættur að skrifa í Moggann þar sem ég hætti að fá þar inni og hef því ekki annan vettvang en þennan.  

Þetta er kannske dautt mál og þar með er það búið.   Mér finnst samt Íslendinga nútildags vanta hugsjónir og meðvitund um þá ábyrgð, sem fylgir því að vera Íslendingur.  Eiga þetta land og söguna án þess að vera í spreng með að breyta því í eitthvað fjölmenningarfyrirbrigði og gefa það til framandi fólks, þó það sé önnur saga.  

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 55
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband