Leita í fréttum mbl.is

Hver kyndir stríðsæsingar?

annar en bandaríski Demókrataflokkurinn og illfyglið Hilllary Clinton, dráparinn mikli frá Libýu.

Ég held að hennar fingraför sé víða að finna í kring um þá  Stoltenberg og Biden. 

Það voru vond skipti´að kveðja Trump og fá þetta hyski til aukinna áhrifa. Þó að Pútín sé kannski ekki neinn engill þá eru þessir drenngir ekki til  að bæta friðarhorfurnar í Úkraínu. Sama lygataktíkin og notuð var á kollega Hússein á sinni tíð.

Svei þeim öllum fyrir stríðasæsingarnar

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Grímur Kjartansson

Jafnvel frændur okkar danir eru staðnir að lygum um Úkraínu
Þannig hafa danskir ráherrar nú í nokkra mánuði sagst vera aðstoða Úkraínu við að verjast netárásum
Yfirmenn netvarna í Úkraníu kannast bara ekkert við þessa aðstoð

Efter massive hackerangreb: Forvirring om dansk cyber-hjælp til Ukraine  | Indland | DR

Grímur Kjartansson, 20.2.2022 kl. 09:03

2 Smámynd: Jónatan Karlsson

Góðan daginn Halldór.

Allt satt og rétt sem þú segir um illfyglin Hillary, Biden og Stoltenberg.

Getum við ekki örugglega látið okkur hlakka til næstu kosninga í Bandaríkjunum?

Jónatan Karlsson, 20.2.2022 kl. 09:21

3 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Tek undir það. Stríðstrommurnar eru barðar af fullu afli í BNA þessa dagana. Yfirvarpid er að fullveldi ríkis sé landamæri þess. Á sama tíma hafa BNA afnumið sín landamæri. Er eitthvað vit í þessu?

Ragnhildur Kolka, 20.2.2022 kl. 17:39

4 identicon

Sæll Halldór,
Hvernig getur Úkraínski herinn drepið og rekið rússneskumælandi aðskilnaðasinna þarna úr Austurhluta Úkraínu öðru vísi en að Rússneski herinn færi sig úr stað? Auðvita þarf Úkraínski herinn að fá öll þessi vopn og græjur frá vesturlöndum, svo og fá allan þeirra stuðning, nú og stuðning frá Guðna líka, ekki satt? Það var líka mjög mikilvægt hjá vesturlöndum, að kalla allt OECD- liðið eða allt eftirlit í burtu, svo og sjá til þess að vestrænir leiðtogar færu nú EKKI að styðja einhverjar friðarumleitanir milli aðskilnaðarsinna og stjórnvalda í Úkraínu, því að aðalatrið var EKKI að stuðla að friði, heldur koma á stríði, svo og svona hótandi frekari viðskiptaþvingunum gegn Rússum. Nú og auk þess var það mjög mikilvægt hjá vestrænum ríkjum, að mála Putin karlinn sem Hitler og hvað eina, ekki satt?
KV.    

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 20.2.2022 kl. 20:24

5 identicon

Sæll sem jafnan; Halldór !

Vel; og drengilega mælt, af þinni hálfu.

Svo; skyldi ekki gleymazt, fölskvalaus stríðsþorsti ýmissa Blýantanagara Evrópusambandsins, ekki síður.

Með beztu kveðjum; sem endranær, af Suðurlandi /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 20.2.2022 kl. 21:44

6 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Og Íslenskir fjölmiðlar dreifa áróðrinum frá pentagon athugasemdalaust. Meira að segja Amerískir fjölmiðlar á frjálslyndari kantinum eru farnir að kvá. Ekki mbl.

Jón Steinar Ragnarsson, 21.2.2022 kl. 09:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband