Leita í fréttum mbl.is

BæBlogg

 Ég er nú búinn að standa í þessu bloggi í nokkurn tíma. Það var aðferð þeirra Moggamann til þess að þagga niður í mér að stofna þessu síðu handa mér. Með því að ýta kverúlöntum út á svona eyðilendur geta þeir sjálfir haldið áfram að keyra fram sínar skoðanir mótþróaminna. Það er nefnilega mest sama og fremur fámennur hópur fólkis, sem er að skrifa út og suður á þessu bloggi og fær þannig útrás fyrir geðvonsku sína og gerir ekki annað á meðan. Miðað við þær heimsóknir sem ég hef fengið á þessa síðu, þá  er þetta alveg steindauð leið til að ná til fólks.  Það er nú gaman að mörgu á blogginu en þar verður ekki drifin nein barátta, -"Kein Kampf"  og allir stjórnmálamenn, sem þar eru duglegastir eru annaðhvort áhrifalausir eða pólitískt deyjandi eða dauðir.    Ef maður vill ekki láta sjálfskipaða menningarvita  og pólitíska hryðjuverkamenn  gelda sig svona kyrfilega og einoka þjóðmálaumræðuna, þá verður maður að reyna eitthvað annað.  Bloggverjar ættu að velta því  menningarsamsæri fyrir sér, sem þeir eru þolendur að. Þeir verða að reyna að veita viðnám því svona bloggskrif ein og sér duga ekkert gegn menningarfasistunum, sem vaða upp í þjóðfélaginu.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Satt segirðu um þetta síðastnefnda atriði, Halldór, og fleira í þessum pistli þínum. Kemur kvörnunum af stað í manni. Þakka þér fyrir það (verð ég að láta mér nægja að segja í þetta sinn). - Með kveðju,

Jón Valur Jensson, 16.8.2007 kl. 02:04

2 identicon

Heill og sæll, Halldór !

Ósköp var Jón Valur hógvær þarna, hélt; að hann myndi hvetja þig, miklu fremur en hitt. A.m.k. vil ég eindregið eiga þess kost, að líta inn á síðu þína, miklu lengur, en orðið er, sem og ég hefi gert, að nokkru.

Ánægjulegt væri, sæir þú þess nokkurn kost, að halda áfram skrifum þínum; hnitmiðuðum og beinskeyttum, ekki veitir af skarpskyggninni; gegn niðursoðnum og stöðluðum ritlingum, margvíslega, hér á spjallsíðum Mbl., hvar allt of margir fara; af einhvers konar ótta, sem og þrekleysi og kjarks; sérílagi gagnvart stjórnvöldum, meðfram ýmsum ''beztu vizku'' hópum, á landi hér.

Með beztu kveðjum, úr Árnesþingi / Óskar Helgi Helgason   

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 18.8.2007 kl. 18:19

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Þakka ykkur báðum fyrir hlý orð í minn garð, ég tek mikið mark á ykkar orðum og ef til vill dettur eitthvað í mann þó síðar verði.

Halldór Jónsson, 29.8.2007 kl. 08:01

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Þetta er athyglisvert Halldór og flötur á þessu bloggeríi sem ég hafði alls ekki velt upp. Kannski er verið að gelda lýðinn með þessu

Gunnar Th. Gunnarsson, 1.9.2007 kl. 05:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 3418212

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 53
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband