Leita í fréttum mbl.is

Er ég ekki búinn að hlusta á nóga vitleysu um Reykjavíkurflugvöll ?

Er maður ekki bráðum búinn að fá nóg af bulli stjórnmálaskúmanna um Reykjavíkurflugvöll ? Hvernig þeir þvæla fram og aftur um hvað þeir vilji án þess að vilja það og hvað þeir vilji ekki þó þeir vilji það.Viljinn er Villa frá Degi til Dags og Bingó ! 

Allt er þetta meiningarlaust hjal, byggt á hálfsannleik eða þá beinum blekkingum. Það er kominn tími til að hætta þessari þvælu og snúa umræðunni við. Hætta að eyða milljónum í innihaldslausar sérfræðingaskýrslur ,sem allar virðast koma með pantaðar niðurstöður fyrir þann sem borgar.  Það er hægt að heilda  þær allar með einni setningu: Ef  Reykjavíkurflugvöllur á að fara undir byggð, þá er enginn staður á öllu höfuðborgarsvæðinu sem er raunveruleg glóra í  fyrir flugvöll. Punktur. Allt annað er óraunhæft. 

Við sem höfum varið Reykjavíkurflugvöll af lífi og sál  til þessa, viljum þá ræða núna að loka honum sem allra fyrst,  ef það er einlægur vilji Arnar arkjitekts , borgarfulltrúa, þingmanna þjóðarinnar og fólksins í landinu.   

Það er engum til gagns að kvelja svona  lífið úr Reykjavíkurflugvelli eins og verið er að gera. Vinnustaður þúsunda Reykvíkinga skiptir  vallarféndur greinilega engu máli .  Það er verið að þrengja að vellinum á allar hliðar með sífelldum skipulagsbreytingum. Það eru hinsvegar  bannaðar  allar byggingar vegna flugsins við hann eða á honum,  það  er takmörkuð  notkun hans með lokunum og frelsisskerðingum af öllu tagi. Allt vegna talhlýðinna  stjórnmálamanna, sem ekki vita  hvora löppina þeir eiga að rétta fram sjái þeir þurfandi hund í bandi mögulegs atkvæðis.  

Við þessar aðstæður er ólifandi. Gef mér frelsið eða dauðann sagði Patrick Henry.

Það er því þýðingarmikið, að taka ákvörðunina strax um að loka vellinum eða ekki.  Annars gætum við farið að byggja Hátæknisjúkrahúsið á vitlausum stað. Það verður að vera nálægt flugvelli, það sér hver maður. Og svo þarf að flytja þá stjórnarkontóra, sem dreifbýlið notar mest suðureftir með fluginu. Það er auðsætt,  að menn fara ekki að dandalast inn til Reykjavíkur eftir að vera lentir á Suðurnesjum með sín erindi.

Bráðum verða hér 50 íslenzkar einkaþotur stórlaxanna.  Þær þurfa hús. Þær geta ekki staðið úti. Á Reykjavíkurflugvelli er ekki hægt að fá leyfi til að byggja svo mikið sem  hæsnahús, af því að flugvöllurinn á hugsanlega að fara einhverntímann.  Þangað til eigum við að halda að okkur  höndum og stunda samræðustjórnmál.   Gera ekkert, því fylgir engin ábyrgð.  Allt er því helfrosið í kring um Reykjavíkurflugvöll.  Hvorki líf né dauði. Haltu mér slepptu mér, ekki svona heldur hinsegin, bla,bla bla. Ég er búinn að fá uppí háls.

Ef það er vilji Reykvíkinga og þjóðarinnar, að flugvöllurinn fari, þá er bara að drífa í því. Þetta hálfkák og stöðugur  hálfsannleikur og undanbrögð stjórnmálamanna, haltu mér slepptu mér stefnan, eru þjóðhagslega skaðlegar.  Það er  því best að drífa í þessu , loka strax eða þá vera um kyrrt til framtíðar og byggja þá völlinn upp til nútímans, ef það er þá ekki of seint.  

Ef Reykvíkingar upp til hópa væru  svo grunnhyggnir( sem ég trúi  alls ekki innst inni  þó einhverjir þeirra séu háværir á torgum)   að skilja ekki þá sögulegu  og alþjóðlegu staðreynd.  að það eru samgöngur sem stjórna borgarmyndunum og gengi þeirra, þá þeir um það. Landsbyggðin þarf ekki á Reykjavík sem slíkri að halda vegna þess að þar situr Alþingi part úr ári. Flytji stjórnarkontórarnir og sjúkrahúsin á Suðurnes, þá getum við alveg verið án þessa alls.  Og það verður þá sanngirniskrafa þjóðarinnar,  að svo verði gert,  verði Reykjavíkurflugvelli  lokað.

Þjóðin í heild  þarf í raun aðeins víðsýna og þjóðlega umbótastefnu, byggða á  eintaklingsfrelsi og atvinnufrelsi, með hagsmuni allra stétta fyrir augum.  Skrúðmælgi eða Pótemkíntjöld  breyta ekki þeirri staðreynd, að landið er til þess að lifa í því. Og fólkið er landið og landið er fólkið. Mér finnst að það verði langsótt talið,  að fara að koma með bráðveika sjúklinga utan af landi til Suðurnesja til þess að fara að keyra þeim til Reykjavíkur á spítala  þar.. Þessvegna er best er að ákveða framtíð Reykjavíkurflugvallar sem fyrst áður en væntanlegur Hátæknispítali  verður byggður á vitlausum stað.

Verið þið Kvosarspekúlantarnir því bara áfram hér. Lífið og starfsemin fylgir fluginu suðureftir. Annar kostur er ekki í stöðunni því að er ekkert brúklegt flugvallarstæði á höfuðborgarsvæðinu. Nema þurrka upp Skerjafjörð eins og Björn Kristinsson sýndi fram á að mögulegt sé.

Þarna suðurfrá  eru bæði Keflavíkurflugvöllur og hugsanlega endurreistur Patterson flugvöllur. En sá síðarnefndi getur orðið einkavöllur almannaflugs, einkaþotna, kennsluflugs osfrv. Nægt landrými fyrir byggingar allt um kring, kílómetra brautir  og óhindrað aðflug úr flestum áttum osfrv.  Það er upplifun að fara á staðinn og sjá fyrir sér möguleikana sem blasa við þar.    

Verið þið vallarféndur því bara kyrrir hérna í Kvosinu í betri byggðinni þar. Fastir í traffíkinni á Hringbrautinni, í eimyrjunni af bílunum og ærðir af drykkjulátunum við Tjörnina. Ekkert varpland fyrir fuglana af Tjörninni né kyrrðina sem nú er að finna við flugvöllinn, verður þar að finna.   Þvílík framtíð fyrir barnafjölskyldurnar á þessum stað !  Merkileg formúla er það  annars að best sé að allir búi í sem stærstri blokk á sem minnstu svæði. Ég hélt að þeir hefðu fullreynt þetta í gamla Sovét.  

Háskólinn í Keflavík verður landsins alls. Samgöngurnar, flugið og framtíðin verða þá bara farin frá Reykjavík og koma ekki aftur. Svei mér að ég haldi ekki að endurnar og gæsirnar af Tjörninni  muni líka flytja suðureftir með hinum flygildunum við þessar aðstæður. 

Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Við erum langt til  búin að missa af Reykjavíkurflugvelli, því það er  búið að eyðileggja hann þegar að miklu leyti með Salami aðferðinni hans Stalíns sáluga. Og verkinu  verður án efa haldið áfram á næstu árum með nýjum meirihluta í borgarstjórn. 

Þessvegna er líklega best að fara bara sem fyrst.  Stundum er dauðinn huggulegri en hálflíf.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heill og sæll, Halldór !

Þakka þér; greinargóða og skilvísa færzlu.

Ætli helvítis kratarnir, verði ekki duglegastir, að draga lappirnar í brýnum málum; svo sem Sundabraut, og öðrum viðlíka ?

Þetta eru; svona 1/2 Íslendingar, að upplagi, og varla það, Halldór minn.

Með beztu kveðjum, úr Árnesþingi / Óskar Helgi Helgason 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 20.10.2007 kl. 02:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 55
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband