Leita í fréttum mbl.is

Byggingakostnaðurinn

Menn fárast yfir verðlaginu á íbúðum hér á höfuðborgarsvæðinu. Margir viðrast halda að þetta sé verðtryggingunni og Davíð að kenna. Meinsemdin liggur dýpra en nær en samt margir halda. 

Það er samstillt átak sveitarstjórnarmanna í lóðaskorti  og byggingakalla, sem hefur keyrt íbúðaverðið upp fyrir pífaldan byggingakostnað. Ekki verðtryggingin né vextirnir. Skoðið lóðaskortsstefnu R-lístans í Reykjavík allan valdatímann. Hún olli sprengingu í lóðarverði á höfuðborgarsvæðinu. Og sprengingu í íbúðaverði. Og verðbólgu, brjálaðri þenzlu osfrv. osfrv. Alþingismönnum virðist fyrirmunað að skilja samhengið milli þessa og rekstrarvanda  spítalanna og vansæld opinberra starfsmanna. En þetta er beintengt.

Menn eru í alvöru að kaupa íbúðarfermetrann á 400.000 kall og meira. Í Florida kostar svona 160 m2 vandað einbýlishús í góðu hverfi með tveggjabíla bílskúr 12- 15  milljónir. Þó að dollarinn færi í hundraðkall þá kostar það samt undir tuttugu.

Ef það væri glóra í heilbrigðiskerfinu þá ættu næstu íbúðir fyrir aldraða að rísa á Florida. Pí sinnum fleiri íbúðir fyrir peninginn. Pí sinnum meira að éta fyrir peninginn. Þrjúpí sinnum meira að drekka fyrir peninginn. Lægri launakostnaður starfsfólks sem talar heldur ekki íslenzku frekar en starfsfólkið á Droplaugarstöðum. Alltaf heitt og notalegt. Enginn fatakostnaður. Eða sjónvarpsáskrift.

Hvað kostar þetta allt hérna ?´

Pí sinnum meira !

Pí lögmálið mitt er nefnilega í fullu gildi.    


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Sæll Halldór

Hvernig var úthlutunarpólitík Sjálfstæðisflokksins á lóðum áður fyrr? Þegar Gunnar og síðar Geir voru borgarstjórar Reykvíkinga fékk Sjálfstæðisflokkurinn oft ákúrur fyrir að það væru helst andstæðingar Sjálfstæðisflokksins sem fengu úthlutuðum lóðum. Veistu hvers vegna? Þeir félagar Gunnar og Geir töldu að afla þyrfti Sjálfstæðisflokknun aukið fylgi meðal þeirra sem væru á báðum áttum með stuðning við Sjálfstæðisflokkinn. Ekki þyrfti að umbuna þeim sem voru hvort sem er heittrúaðir því þeir voru öruggir. Lóðirnar voru notaðar sem dúsa fyrir volga væntanlega kjósendur Sjálfstæðisflokksins.

Svona er nú pólitíkin! Hefur orðið einhver breyting á þessu?

Mosi - alias 

Guðjón Sigþór Jensson, 19.12.2007 kl. 21:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 3418215

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband