Leita í fréttum mbl.is

Skuldadagar

Já Gnúpur var ríkur í haust, átti milljarðatugi. Hann innleysti ekki meðan gengið var hátt. Sá ekki þróunina fyrir. Var bara ekki forspár eins og Snorri Goði var í gamla daga.
 
Nú eru nauðasamningar í gangi hjá bréfafyrirtækinu Gnúpi og  víst líka FLGroup. Og raunar mörgum fleiri. Salan á  andlagi lánanna, hlutabréfin sjálf, eru  núna farin að hafa áhrif á hlutabréfaverðið niður á við.   Hvað skyldu menn á þurrabúum eins og bréfafyrirtækjum setja traust sitt á að muni hækka  til að borga samningana í dag? Eru kannske  ekki bréfaguttarnir í baunkunum líka núna að semja sjálfa sig frá vondum lánveitingum sínum með því að ýta málunum á undan sér ? Betra að afskrifa vitleysurnar hægar, verja eigið skinn og kaupréttarsamninga ? Einhvernvegin býður mér í grun, að hérlendis sé öðruvísi tekið á svona málum en er til dæmis á Wall Street.Það vanti eitthvað á gagnsæið hérna.
 
Það er sjálfsagt skárra fyrir þann sem á mjólkurkú í fjósi eins og td. FLGroup heldur en bréfafyritækið, að horfa til framtíðar.  Með tímanum getur bóndinn mjólkað sig frá vandanum fremur en sá sem á bara tóma krukku. Þetta er líka skýringin á því hversvegna Bandaríkjamönnum er skítsama um það hvernig Dabbi skráir dollarann hér heima. Hjá þeim er hann bara 100 cent eins og verið hefur og efnahagslífið gengur prýðilega á dollaranum.  Við Íslendingar fáum ekkert fleiri cent fyrir pundið í blokkinni þó bréfin hafi hækkað hér heima.

Ef menn geta setið  þétt á sínum hlutabréfum í lifandi fyrirtækjum þá hækkar verðið smátt og smátt.  Coca Cola er trúlega alveg sama hverju greiningadeildir okkar banka hérna meta bréf í því fyrirtæki. En hluthafanum litla er ekki skemmt, ef hann hefur fengið lán til að kaupa lækkandi bréf.
Það er hinsvegar ekki skemmtilegt né skynsamlegt að fá lán hjá dópsalanum.

Maður hélt að þessir stóru kallar okkar og frægu viðskiptajöfrar  kynnu að spila. Ef þeir kunnu þetta ekki betur en þetta  þá er það viðvörun til okkar litlu kallanna.  Reyndur maður og ríkur í Ameríku sagði við mig að kúnstin væri að kunna að selja á réttum tíma,-ekki endilega að kaupa. Það væri hættulítið til lengri tíma að eiga hlutabréf í traustum fyrirtækjum eins og Landsbankanum, GAZProm eða Coca Cola. EN það er hættulegt að eiga þau ekki sjálfur heldur skulda þau.

Menn hoppuðu unnvörpum útum glugga á Wall Street 1929 þó að allt væri svo komið í lag skömmu seinna. Sá sem á milljónkall er óendanlega sælli en sá sem skuldar handrukkaranum milljónkall. Aðeins pólitíkusarnir stela peningum  fólks, venjulega  undir einhverju óeigingjörnu yfirskyni, eins og  þeir stálu kvótanum  í fiskinum og gróðurmoldinni frá þjóðinni sem átti þetta.  Og svo skrifa þeir  bækur til að skýra það út fyrir mér og þér, hversvegna hlutirnir gerðust eins og þeir gerðu eða gerðust ekki eins og þú heldur að þeir hafi gerst, af því að þeir vildu að þeir hefðu gerst öðruvísi.  Einhverjir virðast nenna  að að eyða tíma og peningum í að lesa svona skrif án þess að ég sjái tilganginn í því.
 
Og nú síðast  vill Mogginn  alltíeinu koma á í flestum auðlindatengdum atvinnugreinum landsmanna í kvótakerfi. Eitthvað auðlindagjald, víst sama hversu hlálegt, er nægileg réttlæting fyrir kvótakerfum í íslenzka auðlindabísnessnum  á þeim bæ.

Myndi Mogginn geta hugsað sér að setja kvótakerfi á hreina og tæra andrúmsloftið á Íslandi ?. Hannes Hólmsteinn, Davíð og Halldór myndu væntanlega telja það  betra til viðhalds auðlindinni, að hún yrði í einkaeign. Menn eiga að ganga svo miklu betur um eigin eignir en annara segja þeir.  Við sem núna höfum andardráttarreynslu myndum fá kvóta til að selja óbornum Íslendingum rétt til afnota af auðlindinni. Hugsið ykkur,-út-inn, allan sólarhringinn myndi klingja í kassanum hjá okkur.  Svo gætum við selt réttinn sem börnin erfa eða veðsett hann í baunkunum ? Og innan skamms myndi Baugur og Byko eiga 12 % hver ! Svo förum við í útrás með Geyser Green og verslum með kvótann á alþjóðamörkuðum.

Ætli rökin fyrir þessu nýja andardráttarkerfi liggi  ekki nokkuð tilbúin í skúffunum hjá þeim Hannesi og LÍÚ ?. Bara skipta um nöfn á stöku stað og copy-paste ! 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband