Leita í fréttum mbl.is

Fljúgandi Furðuhlutir ?

Ég var að lesa þá tfirlýsingu frá Hönnu Birnu að það væri enn stefna Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, að leggja Reykjavíkurflugvöll af og byggja íbúðir í Vatnsmýrinni.

Þetta kemur í kjölfarið á skoðanakönnun Fréttablaðsins þar sem fram kemur að mikill meirihluti fólks vill Reykjavíkurflugvöll kyrran á sínum stað. Úrtakið var um 700 manns. Hér á bloggsíðunni hafa yfir níu af hverjum tíu í 422 manna úrtaki lýst yfir sömu skoðun.

Stundum hefur stjórnmálamönnum verið legið á hálsi fyrir að elta skoðanir almennings og hafa ekki kjark til að bjóða almenningsálitinu byrginn. Það verður seint sagt um hana Hönnu Birnu að hana skorti áræði, hvað þá að hún sé uppnæm fyrir goluþyt.  Röggsemi hennar gagnvart skrílnum í Ráðhúsinu á dögunum vakti aðdáun mína. Ég verð illa svikinn af mínu hugboði ef hún á ekki eftir að setjast á borgarstjórastól.  Einmitt þessvegna langar mig til þess að hún endurskoði þessa flugvallarafstöðu sína en láti hana ekki verða sér að fótakefli í framtíðarstjórnmálum.

Marga stjórnmálamenn hef ég horft á taka flugið uppávið  til þess að eins að brotlenda með braki eins og við erum búin að horfa uppá í Framsóknarflokknum.  Þessir stjórnmálamenn  reyndust þá aðeins vera fremur fljúgandi furðuhlutir en framtíðarleiðtogar. 

Ekki getur slíkt fluglag verið einbeittur ásetningur bogarstjórnarflokks  Sjálfstæðismanna í Reykjavík ? 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Sæll Halldór.

Eru þetta ekki óþarfa áhyggjur hjá þér því með sama áframhaldi verður bara til staðar eitthvert brotabrot af borgarstjórnarflokki Sjálfstæðismanna í Reykjavík eftir næstu kosningar ef það verður á stefnuskrá flokksins að bola flugvellinum burt. Það kæmi mér ekki á óvart ef þú gætir beitt þín margslungna Pí á fylgi flokksins eins og það er í dag og reiknað þannig út hvað kemur í hans hlut eftir næstu kosningar. Það má mikið breytast ef svo verður ekki....

Svo er það umhugsunarefni varðandi fulltrúa annarra flokka að það viðrist ekki nóg fyrir þá að reyna sjúkraflug á eigin skinni af landsbyggðinni til Reykjavíkur til að skynja nauðsyn flugvallarins fyrir landsbyggðina.

Haltu ótrauður áfram baráttunni fyrir flugvelli í Vatnsmýrinni. Hinn þögli meirihluti hlýtur að hafa sigur að lokum, ella er allt tal um lýðræði markleysa.

 Kveðja,

Ómar Bjarki Smárason, 29.1.2008 kl. 14:58

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk fyrir þetta Ómar Bjarki.

SKoðanakönnun Fréttablaðsins var nú aldeilis merkileg stefnubreyting almennings í flugvallarmálinu. sex af hverjum tíu styðja hann.

En borgarstjórnarflokkur íhaldsins er auðvitað á móti honum eins og hann leggur sig og þessvegna getur þú ályktað að þeir sækist ekki eftir endurkjöri heldur trúi á Örn arkitekt og talnaturnana hans, þar sem milljarðar spretta uppúr mýrinni á hverri klukkustund.

Ólafur F. er okkar maður, eini heilbrigði maðurinn í borgarstjórninni, virðist mér að minnsta kosti.

Halldór Jónsson, 29.1.2008 kl. 23:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 57
  • Frá upphafi: 3418160

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 53
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband