Leita í fréttum mbl.is

Patterson er póllinn

Það rann upp fyrir mér hér um kvöldið, að Reykjavíkurflugvöllur á sína helstu óvini í röðum stjórnmálamanna. Þeir verða því ekki vændir um að hlaupa eftir skoðunum almennings heldur hafa sína sjálfstæðu stefnu. Þeim er slétt sama hvað almenningur hugsar eins og þau 60 % höfuborgarbúa, sem vilja Reykjavíkurflugvöll á sínum stað samkvæmt könnun Fréttablaðsins. Hvað þá þau meira en 90 % aðspurðra hér á þessari vesölu bloggsíðu.

 

Ég hlustaði á Hönnu  Birnu lýsa tillögu um nýtt skipulag í Vatnsmýri af  innblásnum  ákafa, sem ég hef ekki séð hjá henni áður. Gárungarnir hafa stundum  áður nefnt hana "harðbrjósta Hönnu " sjálfsagt eftir slagaranum gamla, til þess að lýsa ótilfinningaþrungnum stjórnmálastíl hennar, þar sem hún haggast hvergi, hörð og óvægin.  Enginn þarf að fara í grafgötur með það, hvar hún stendur í flugvallarmálinu eftir þessa yfirferð.

 

Áður var vitað um afstöðu Gísla Marteins, sem gárungarnir kalla stundum "Lilla Klifurmús" , líklega þar sem honum finnst hann sterklega koma til greina að verða borgarstjóri á undan Hönnu í 2. sætinu,  fari svo að Vilhjálmur Þ., sem kallar sjálfan sig "gamla góða Villa " , en gárungarnir Villa viðutan af einhverjum ástæðum, hætti við að verða Vilhjálmur annar  á borgarstjórnarstóli.  Svo merkilegt sem það er, þá hefur gamli góði Villi það í hendi sér að enginn annar setjist í stólinn, nema að sjálfstæðisflokkurinn klofni og fjórði meirihlutinn verði myndaður eftir árið. Til þess þarf hinsvegar meðal annars samhenta sexmenningaklíku og endurnýjun stjórnmálalegra lífDaga á vinstri vængnum .  Mér er ekki kunnugt um neina aðra í borgarstjórnarflokki sjálfstæðismanna, sem vilja Reykjavíkurflugvöll á sinum stað, svo dult sem sumir menn þar á  bæ hafa farið með raunverulega afstöðu sína.

 

Enginn  borgarstjórnarfulltrúi  hefur mér vitanlega lýst sig afdráttarlausan flugvallarsinna nema Ólafur F. núverandi borgarstjóri. Þannig þarf margt  að breytast og mikið eigi framtíðin að skera úr einhverju sem varðar þennan flugvöll.    

 

Það var nokkuð  greinilegt af máli Hönnu Birnu , að sjálfstæðisflokkurinn í borgarstjórn, bíður færis á að loka vellinum og byggja í Vatnsmýrinni. Hvað svo sem aðrir segja, þá er þetta stefnufastur flokkur , sem menn geta þá kosið útá það málefni ef ekki önnur.

 

Þessi hálfdauði Reykjavíkurflugvallar  er líka farinn að há framþróun flugsins hér á Íslandi verulega . Ekki má gera neitt á vellinum fyrir flugið, hvorki byggja þjónustubyggingar né annað,  af því að menn eru alltaf að þrátta um sömu málin, Löngusker, Hólmsheiði osfrv. Flugfólkið þarf að fara að taka af skarið og gera eitthvað í nálinu. Fara að gera sínar ráðstafanir og hætta að bíða eftir þessum stjórnmálamönnum, sem aldrei klára þetta mál hvort eð er.

 

Ég hef áður bent á það, að lítið mál er að gera Patterson flugvöll að miðstöð hluta innanlandsflugs, einkaflugs og viðskiptaflugs. Þangað liggur beinn og breiður vegur og eru allir íbúar höfuðborgarsvæðisins,  sem búa austan við læk og kvos fljótari að fara eftir  þangað en niður í svonefndan miðbæ Reykjavíkur. Hvað þá að fara útá einhverjar flugvallarleifar í Skerjafirði , sem á að bjóða uppá sem málamiðlun þegar byggt verður á N-S brautinni. Þetta verður aldrei nein  nothæf lausn, sem blasir við flestum nema  auðvitað stjórnmálamönnunum í borgarstjórn Reykjavíkur. Þeir hafa sýnt sig að vera  bara ekki færir um að leysa þetta mál og því verða aðrir að gera það fyrir þá.

Hvorki Löngusker né Hólmsheiði eru annað en dýrar málalengingar í óraunhæfri umræðu. Þetta er bull frá upphafi til enda og verður aldrei að veruleika. Páll Bergþórsson hefur bent á að Hólmsheiði er alltaf lokuð vegna lágskýja meðan enn er yfir lágmarki í Reykjavík. Það eitt er næg ástæða til að hætta að tala um flugvöll þar.

Á Patterson eru líklega eitthvað lítið verri flugskilyrði en í Reykjavík. En þar er greitt aðflug úr öllum áttum og sléttlendi í kring. Nógu langar flugbrautir fyrir flestar  vélar.   Það er hægt að aka flugvélum þaðan uppá Keflavíkurflugvöll meira að segja   Þar er nóg pláss fyrir allt það sem flugið þarfnast, ef menn vilja þá hafa eitthvað flug í kringum sig, sem er önnur spurning.  

 

Reykjanesbær þarf auðvitað að svara því, hvort hann er reiðubúinn til þess að verða þannig sú höfuðborg  Íslands í viðskiptum og samgöngu , sem óhjákvæmilega fylgir þessu umstangi öllu. Því að fólkið fer þangað sem umsvifin eru. Gömul bárujárnsnostalgía  og kvosarrómantík dugar ekki til að stöðva þá þróun. Það er ekki seinna vænna en að byrja þá umræðu fyrir alvöru.

 

 Því tel ég að komið sé að því,  að allir sem flugi tengjast fari að hugsa sjálfir fyrir sig og hætti að hlusta á þetta karp lengur. Geri eitthvað í málinu en hætti að sóa tímanum í vitleysu,  þjóðinni allri til tjóns. Auðvitað hefði verið hægt að leyfa þjóðinni að afgreiða málið um Reykjavíkurflugvöll með atkvæðagreiðslu við forsetakosningarnar nú í sumar til að höggva á þennan hnút.  En það þorir Vatnsmýrarfólkið auðvitað ekki, þar sem lokunin yrði kolfelld.

 

Það er líka  eiginlega of seint núna, að bjarga Reykjavíkurflugvelli. Yfirfirvöld Reykjavíkur eru langt komin með að eyðileggja völlinn  með stöðugum byggingum á athafnasvæðinu.  Að mínum dómi er vandamálið því að verða óleysanlegt þar sem erfitt er að stöðva byggingar Háskólans í Reykjavík, sem einar sér gera völlinn ómögulegan til framtíðar. Þegar umferðarvandamálið með Hringbrautina og Landspítalann bætist svo við, þá er þetta  fullkomnuð. Tíminn er því kominn að mínu mati, þó menn auðvitað vilji telja sér trú um annað.

 

Reykjavíkurflugvelli verður varla bjargað héðan af þegar stjórnmálamennirnir eru flestir í baklás. Hefja þarf því undirbúning að raunhæfum ráðstöfunum.  Ég held að Patterson flugvöllur sé  póllinn .  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Þór Hafsteinsson

Mér líst vel á að efna til atkvæðagreiðslu um flugvöllinn við forsetakosningar í sumar. Þá þarf að fyrst að finna forsetaframbjóðanda sem vill fara í Ólaf svo það verði nú kosningar. En að taka flugvallarmálið fyrir í leiðinni er afbragðs hugmynd. Lega Reykjavíkurflugvallar í Vatnsmýri er ekkert einkamál Reykvíkinga heldur varðar þetta þjóðina alla.

Magnús Þór Hafsteinsson, 20.2.2008 kl. 08:21

2 Smámynd: Valur Stefánsson

Ég er sammála þér Halldór með atkvæðagreiðsluna, auðvitað á öll þjóðin  að kjósa um þetta.  Einnig er ég sammála þér um að búið sé að eyðileggja Vatnsmýrina vegna bygginga nálægt brautum.  En eins og ég hef sagt þér áður þá finnst mér þessi Patterson lausn alveg út í móa, ég myndi aldrei fara að keyra suður eftir til að fara í loftið, miklu frekar vildi ég vera með aðstöðu á Selfossi og þá þyrfti maður ekki að fljúga yfir höfuðborgina sem væri þá ekki lengur höfuðborg því engann flugvöll hefði hún.

Valur Stefánsson, 20.2.2008 kl. 13:15

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk fyrir þetta Magnús, það myndi muna um það ef þú tækir upp baráttu fyrir þjóðaratvæði. Jú það kemur framboð á móti Ólafi held ég áreiðanlega þannig að þetta verður hugsanlega raunhæfur kostur og framkvæmanlegt

Og vinur Valur,

Mér finnst allt annað veðurfarslega og vegalengdarlega að renna á Patterson heldur en á Selfoss. Þetta er hálftími frá miðju höfuðborgarsvæðisins hér í Kópavogi.  Ég held að við verðum að fara að hugsa þetta kalt og yfirvegað því að ég held að Reykjavíkurflugvöllur verði eyðilagður fyrir okkur innan 5-10 ára, slíkt er offors og völd eyðingaraflannaí borgarstjórn. Ólafur stendur einn við gaflhlaðið eins og Skarphéðinn í brennunni. Þarna á Patterson eru möguleikarnir nánast ótæmandi ef yfirvöldum myndi hugnast þetta.Þarna er hægt að byggja flying-community eða hvaðeina. Selfossstjórnmálamenn  eru þegar byrjaður atlögu að vellinum þar og sannaðutil að hann á ekki langa framtíð fyrir sér enda flæðir bærinn í áttina að Selfossflugvelli.

Halldór Jónsson, 20.2.2008 kl. 14:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 3418215

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband