Leita í fréttum mbl.is

Lesið Féttablaðið á fimmtudag 20.11.08 !!

Að lesa Fréttablaðið í dag er stórkostlegt dæmi um hvernig svonefnd "sjálfstæð ristjórnarstefna"   slíks kaupahéðinsmiðils getur birst manni óvænt í sínu rétta og raunverulega ljósi.

Þar þrumar rithöfundurinn Hallgrímur Helgason  um nauðsyn þess að setja löglega kjörið Alþingi og ríkisstjórn af og kjósa nýja leiðtoga eftir hans hugmyndum en ekki stjórnarskrá landsins. Og prófessor Þorvaldur Gylfason veður enn elginn um Evrópubandalagið og nauðsyn þess að forsetinn reki stjórnina burt og setji á þjóðstjórn. Svo er smágrein um hvernig sá vondi Davíð var að setja útá hinn góða forseta Ólaf Ragnar. Leiðarinn eftir ritstjórann Þorstein Pálsson auðvitað allur um að gera Davíð tortryggilegan og Seðlabankann, þó á prúðmannlegum nótum sé. Hlutabréf í Saks hafi skaða Baug, sjálfsagt vegna verka Davíðs getur maður ímyndað sér.  

Allt blaðið er fyrir mér eisleitur áróður í eina átt.  Grafa skipulega undan trú manna á stjórnvöldum og tala þannig um umboð þeirra að lítið þarf til að hinir æstustu hlaupi útá göturnar og hrópi á byltingu. Og ganga í ESB líka  auðvitað.  Jón Ásgeir er væntanlega ánægður með það þegar svo einbeitt kantata er leikin í Baugstíðindum.  

Og stuðningmenn ríkisstjórnarinnar í Samfylkingunni á Alþingi, jafnvel 2 ráðherrar í ríkisstjórninni, aka undir flautuleik meistara síns samdægurs og halda áfram að grafa undan forsætisráðherra sínum og ríkistjórninni sem þeir þykjast styðja. Maður gæti helst lesið Goðmund á Glæsivöllum til þess að reyna að skilja þann flokk og formann hans.  

 Það er í  raun áhyggjuefni fyrir þjóðina, að nánast öll prentuð fjölmiðlun í landinu skuli vera komin undir stjórn  stærsta skuldakóngsins. Og áhrifin til upplausnar eru miklu meiri en menn gera sér grein fyrir. Göbbels sagði líka, að ef maður endurtæki sömu lygina nógu oft, þá yrði hún að sannleika.

Mér finnst skrifin í  Fréttablaðinu  nú orðið minna um margt á blaðið hans  Hitlers sem hét Völkischer Beobachter. Þar var boðuð hin klára niðurrifsstefna og öskrað á réttlæti og hefnd og ekkert annað.  Stefna þess blaðs varð ofaná og lýðræðið undir. Það er nefnilega hægt að brýna skoðanir fólksins með því að spila alltaf sömu plötuna og nógu oft og hátt til þess að aðrar raddir heyrist ekki. Og verða svo á undan því að fólkið fái tóm til að hugsa að hætti Lincolns. Það er bara búið að loka allt í einu.   

Tökum völdin !   Við einir kunnum með þau að fara !   Það er fyrir mér sá boðskapur sem uppúr stendur eftir fyrstnefndu skríbentana í þessu Fréttablaði dagsins í dag.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Ásgeir Gunnarsson

Halldór 

Ég mæli meö myndinni Hard rock and water en þar er Ísland borið saman við Nýfundnaland sem missti sjálfstæði eftir kreppu en þar 30%,atvinnuleysi í landi sem er mjög ríkt af auðlindum

Hérna er fróðlegt viðtal við Höfundinn að myndinni

Gunnar Ásgeir Gunnarsson, 21.11.2008 kl. 00:55

2 Smámynd: Helgi Jóhann Hauksson

Halldór, þú verður að ræða þetta við ritstjóra Fréttablaðsins Þorstein Pálsson fv formann ykkar Sjálfstæðismanna, nú eða framkvæmdastjóra útgáfufélagsins hann Ara Edvald.

Annars veistu hvað Halldór? ég fæ nú jafnan greinar birtar eftir mig í Mogganum án þess að Mogginn sé þar með stimplaður fyrir vikið mínum skoðunum.

Helgi Jóhann Hauksson, 21.11.2008 kl. 01:30

3 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Sæll frændi.

Mér þótti það stórfurðulegt að tveir ráðherrar Samfylkingarinnar hafi gefist upp og ætli að gerast liðhlaupar nú þegar ríður á að vanda sig við framhaldið. Hver eru örlög liðhlauða sem nást? Það vita allir. Ætli þessum liðhlaupum verði ekki refsað í kosningum sem þeir eru að fara fram á ?

Ágúst H Bjarnason, 21.11.2008 kl. 10:54

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Mjög góð grein hjá þér Halldór.

Gunnar Th. Gunnarsson, 22.11.2008 kl. 01:28

5 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Góður og þarfur pistill.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 22.11.2008 kl. 01:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 61
  • Frá upphafi: 3418155

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 55
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband