Leita í fréttum mbl.is

Davíð og 80 daga stjórnin.

Hér hefur verið mynduð 80 daga ríkisstjórn um,  þá helstu  viðbót við aðgerðaáætlun fyrri ríkisstjórnar, að reka Davíð Oddsson úr Seðlabankanum og fórna hinum bankastjórunum  með.  Þrátt fyrir gildandi lög um sjálfstæði Seðlabanka og 7 ára ráðningatíma bankastjóranna.

 Davíð hleypur auðvitað ekki upp til handa og fóta við bréf forsætisráðherra,  sem gerist óþolinmóðari með degi hverjum yfir því að gildandi lög verði  brotin að hennar geðþótta.   Hörður Torfason að blæs  í lúðurinn á Austurvelli  svo Davíð heyri nú hvað Hörður vill.  Og stefnir svo Stormsveitum  Steingríms til að  gera hávaða við Seðlabankann. 

Trúir fólk því  fólk virkilega að brottför Davíðs úr Seðlabankanum sé brýnasta verkefnið sem við blasir og öllu skiptir í kreppunni ?   Svona sambærilega þýðingamikið fyrir byltinguna og aftaka  Maríu Antoinette og Lúðvíks 16. var  á sínum tíma í Frakklandi ?   Ef aðeins Davíð hverfur af vettvangi þá  hljóti að vera  hægt að bæta ástandið svo um munar ? 

Hvaða kanínur í hatti munu finnast í Seðlabankanum þegar nýr  bankastjóri sest í stólinn ? Hvaða brögðum verður beitt til að reka 3 félausa ríkisbanka til örvunar fyrir atvinnulífið ? Það er eins gott að eitthvað verði  komið í lag þegar á að kjósa um þjóðmálin í endaðan apríl.

Hvernig ætlum við Íslendingar að komast af ? Hvernig getum við borgað Icesave og öll jöklabréfin ? Hefur enginn áhuga á því ? Er persóna Davíðs svona mikilvægari en allt annað ? Sér fólk ekki skóginn fyrir trjánum ?

Mér finnst þetta hreint ekkert sniðugt allt saman. Og hef ekki trú á að þessir atburðir marki nein tímamót.  Lýðræðið er ekki sama og skrílræði í mínum huga með allri virðingu fyrir pottum og pönnum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Menn nota bersýnilega tímann vel. Þessi stjórn mun komast á blöð sögunnar sem versti farsinn í þeirri kreppu sem dundi á þjóðinni 2008.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 9.2.2009 kl. 22:23

2 Smámynd: P.Valdimar Guðjónsson

Ríkisstjórn á hverjum tima getur auðvitað talað fyrir og breytt lögum með leyfi Alþingis.  Þar á meðal lögum um Seðlabanka

En þessi aðferðafræði á þessum hinsegin dögum er út í hött.  Þetta er nákvæmlega eins og þú lýsir Halldór.   Lýðurinn biður um aftöku strax,   en veit ekki alveg hvers vegna strax.

Hættan er auðvitað sú að þessi lög verði hrákasmíð í æðibunugangnum.     En ný vönduð lagasetning um Seðlabanka eru alveg næg skilaboð út í heim um ný tök á erfiðum málum.

Fólk er skiljanlega reitt.  En það er líka reitt vegna þess að enginn í pólitíkinni er enn farinn að marka nýja sýn.   Hvorki við bráðavanda, né í uppbyggingu næst ára.  Heldur skal fórna helst í gær þeim sem helst varaði við.   

Til að hreinsa andrúmið hér og nú þarf uppá borðið hvað æðstu menn og konur nákvæmlega vissu og stungu undir stól.

P.Valdimar Guðjónsson, 10.2.2009 kl. 11:28

3 Smámynd: Jóhanna Thorsteinson

Minn kæri vinur Halldór, ég er þér algerlega sammála. Nema, ég held að tími Davíðs sé að renna upp. Hann talar nefnilega ómengaða íslensku, enda listamaður af Guðs náð.

Fólkið skilur það sem Davíð segir.... en það bara jarmar þegar Hörður Torfa (sumir segja þúfa) fer með klisjurnar úr herbúðum Vinstri Grænna

Jóhanna Thorsteinson, 10.2.2009 kl. 14:00

4 Smámynd: Magnús Karl Magnússon

Seðlabankinn á ekkert verðmætara en traustið. Núverandi Seðlabankastjórn hefur tapað trausti hér heima og það sem er sennilega enn mikilvægara hefur hún algerlega tapað trausti erlendis. Það á að blasa við öllum að nú verður hið fyrsta að endurvinna traust með nýrri yfirstjórn. Svo einfalt er það. Það leysir ekki öll okkur vandamál að losna við yfirstjórn Seðlabankans en það er forsenda mikilvægra samninga sem framundan eru við AGS og lánveitendur okkar.  

Fyrir mér er þetta ósköp einfalt. Um leið og ríkisstjórn hefur sagt; það ríkir EKKI traust milli ríkisstjórnar og Seðlabanka, þá er yfirstjórn Seðlabanka ekki sætt lengur. Það hefur ekkert með lög um opinbera starfsmenn að gera og allt slíkt tal er að mínu mati hlálegt.

Magnús Karl Magnússon, 10.2.2009 kl. 18:00

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk fyrir þetta öllsömul. Já traustið ? Það ríkir sosum ekki mikið traust milli mín og ríkisstjórnarinnar sem situr hér núna til einhverra daga sem leppstjórn Framsóknar eftir að hin gamla var hrakin burt með skrílslátum.  Hver treystir hverjum ?

Mér finnst þetta allt með Davíð og óróaliðið þeirra  Harðar Torfa og Sturlu lúðurþeytara við Seðlabankann vera farsi utan um ekki neitt. Kreppan dýpkar bara á meðan Davíð stríðir Jóhönnu.  Hugsanlega heyrum við betur í honum Davíð fljótlega ?

 Hinsvegar þarf að gera eitthvað sem fyrst. Mér  líst vel á hann Mark Josefsson og það sem hann segir um endurreisn ríkisbankanna.   Vona að það verði hlustað á hann. Kannski tekur hann við Seðlabankanum og þannig muni eitthvað traust fara að byggjast upp ? 

 En ég tel hættu á að það verði hrákasmíði á þessu öllu saman þar sem æðibunugangurinn er með þessum hætti.

Halldór Jónsson, 11.2.2009 kl. 21:31

6 identicon

Allar aðgerðir sem þessi ríkisstjórn er búin að boða, var búið að ákveða í þeirri fyrri.

Það er ekkert nýtt hjá þessari aulahjörð sem nú ríkir. Nema nú Á Davíð að fara ,,Thats It"

Þegar Ömmi kommi og Steini joð geta ekki öskrað sig hása í pontu á alþingi yfir aðgerðaleysi stjórnvalda, og eru hinum megin við borðið núna kemur getuleysi þeirra sem stjórnmálamanna í ljós og þess hlýtur að verða minnst á kjördag.

Hvað skyldu þeir félagar vera búnir að vera lengi á þingi ?? 20 ár?!?!?!

Og er það þetta allt og sumt sem kemur úr kjötkötlum þeirra Ömma og steina eftir öll þeirra ár á þingi.

Pétur Halldórsson (IP-tala skráð) 12.2.2009 kl. 17:44

7 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk fyrir Pétur

Ögmundur er  formaður í BSRB og nú  heilbrigðisráðherra fyrir marga umbjóðendur sína í félaginu.    Hann kom fyrst á þing 1995. Hann var góður fréttamaður í sjónvarpi á sinni tíð og er vel máli farinn.

Steingrímur var fyrst kosinn á þing 1983  og var landbúnaðar-og samgöngumálaáðherra í vinstri stjórn 1988.  Ég vildi að ég ætti krónu fyrir hvert orð sem hann hefur sagt í ræðustóli síðan þá sá ágæti maður.Einn besti ræðumaður þingsins  ( NB. leikrænt og tjáningarlega !) að mínu viti    

Það er ekki seinna vænna en að þessir tveir fái að njóta sín sem ráðherrar, hversu lengi sem það nú verður.

Halldór Jónsson, 12.2.2009 kl. 22:16

8 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Ákvarðanir Davíðs hafa orðið mjög afdrifaríkar fyrir okkur Íslendinga, nú síðast þegar hann stendur fyrir hæstu stýrivöxtum í allri Evrópu. Með þessum óhóflega háu stýrivöxtum jók hann vandann af Icesafe reikningunum og jöklabréfunum.

Það er því mjög skiljanlegt að núverandi ríkisstjórn vilji koma Davíð frá völdum. Hann er með þessum háu stýrivöxtum að ganga mjög að fjárhag fyrirtækja og einstaklinga. Eigið fé fyrirtækja er víðast hvar horfið.

Þegar Ólafslögin voru lögsett 1979 var það viðurkennd aðferðafræði að þegar verðbólga fór niður þá væri ástæða að hækka vexti. Hins vegar þegar dýrtíðinnjókst, þá lækkuðu raunvextir. Nú er svo komið að hvort magnar hvort annað, dýrtíðin og háu vextirnir.

Það er því nauðsynlegt að aftengja tímasprengjuna Davíð í Seðlabankanum.

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 13.2.2009 kl. 13:36

9 identicon

Menn verða að skilja að stýrivextirnir eru ekki í höndum Davíðs, allavega ekki lengur,,, heldur AGS. brotthvarf Davíðs mun ekki lækka vextina

 Þeir hjá AGS eru búnir að setja vaxtastefnuna sem var eitt af skilyrðum fyrir aðstoðinni, sem var neydd uppá okkur, með kúgunarvaldi ESB þjóðanna. "Vinaþjóða okkar" sem skilyrði fyrir öðrum lántökum.

Er hinsvegar sammála því að Dabbi eigi að fara, og vera farinn,  bara vegna þess að ég er mótfallin ráðningum á uppgjafa pólitíkusum hverjum sem það eru í hvaða starf sem er í ríkisgeiranum.Því þeir hafa flestir sýnt að þeirra hugsjón er alltaf sú sama , Þeir sjálfir.

Hins vegar gagnrýni ég aðgerðir Jóhönnu, sem ætlað er að brjóta landslög um seðlabankann, bara vegna þess að hún hatar Dabba.

Ég hef hana grunaða að reyna að blekkja fólk vísvitandi og beina athygli þess frá því sem hún ræður ekki við, þ.e.s Vinna bug á efnahagsvandanum.!

Davíð er algert aukaatriði í því verkefni að bjarga efnhag heimilina og fyrirtækjanna sem róa lífróður um þessar mundir. En Samfó og vinstri fælnir (ákvarðannafælnir) eru ráðalausari en fyrri ríkisstjórn. Enda samanstendur samfó af mörgum flokksbrotum og jafnmörgum skoðunum sem koma engu í verk vegna ólíkra hagsmuna þeirra sjálfra innan samfó. Þar eru "umræðustjórnmál" að vinnu.

Pétur Halldórsson (IP-tala skráð) 13.2.2009 kl. 23:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband