Leita í fréttum mbl.is

Kommúnistar sýna klærnar !

Lilja Mósesdóttir , hagfræðingur VG, boðar upptöku 2 % eingnaskatta. Þetta er sannarlega gott inleeg í kosningabaráttuna fyrir eldri borgara. Þeir eru helstu eignamenn landsins.

Fyrir var búið að tvöfalda skerðingu lífeyrisgreiðslna vegna fjármagnstekna af sparisjóðsbókum, sem helst eru líka í eigu eldriborgara. 

Indriði Þorláksson og Stefán Ólafsson hafa boðað aukna skattlagningu á almenning. Og að sú skattlagning verði varanleg.

Þá eru línurnar skýrar. Landsfundur Sjálfstæðismanna samþykkti rétt í þessu að  fara varlega í allar skattahækkanir. Sjálfstæðisflokkurinn trúir ekki á það að skattahækkanir á einstaklinga og fyrirtæki séu þær leiðir sem fara eigi til að skapa þau tuttuguþúsund störf sem nú vantar á vinnumarkaðinn á Íslandi. 

Valið er því einfalt í næstu kosningum.  Sjálfstæðisflokkurinn stendur einn á móti skattahækkunaráformum vinstriflokkanna allra. Sjálfstæðisflokkurinn trúir á framtak einstaklinganna til þess að vinna þjóðina útúr kreppunni fremur en að stjórnmálamenn eigi að deila og drottna úr ört fjölgandi ríkisfyrirtækjum. SJálfstæðisflokkurinn trúir í innanlandsmálum  á þjóðlega og víðsýna umbótastefnu á grundvelli einstaklingsfrelsi og atvinnufrelsis með hagsmuni allra stétta fyrir augum. Þetta hefur ekkert breyst frá stofnun flokksins 1929. Þá hefur þjóðinnni vegnað best þegar áhrif slokksins hafa verið sem mest.

Kaupmáttur á Íslandi jókst um 60 % á síðustu 16 árum í stjórnartíð Sjálfstæðisflokksins. Þrátt fyrir hin stóru áföll eru enn eftir 40% af þeirri aukningu. Skattahækkunaráform kommúnistaflokkanna munu þurrka út þann ávinning allan. Því mega launþegar treysta.

Kommúnistarnir sýna nú skattaklærnar, sem þeir vilja krækja í almenning. Verði þeim að góðu sem trúa á þann fagurgala þeirra, að þetta sé allt  undir ráðgert yfirskyni jöfnuðar og félagshyggju sem andsvar við nýfrjálshyggju Sjálfstæðisflokksins. Innantómt slagorð sem þeir hafa aldrei geta útskýrt hvað merki.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þór Jóhannesson

þegar þið hægrimenn eruð svona kjánalegir í málfluttningi að kalla vinstri menn kommúnista þá liggur beinast við að spyrja hvað þið séðu þá? Fasistar?

Sé það valið fyrir þjóðina held ég að kommúnistar séu ávalt skárri valkostur en fasistar og það líklega tvisvar á kjördag.

Endilega haltu áfram að sýna hvernig þið lítið á hlutina þarna frá hægir, þ.e.a.s. þið og svo "kommúnistadrullusokkarnir" eins og Guðmundur Klemensson orðaði það fyrir ykkur á nýjársdag!

Þór Jóhannesson, 27.3.2009 kl. 19:58

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Þú ert greinilega þeirrar skoðunar að þú sért ávallt skárri  en ég.

Hvaða greindarpiltur  er þessi Guðmundur Klemensson ?

Halldór Jónsson, 27.3.2009 kl. 20:11

3 identicon

Komið þið sælir; Halldór og Þór, ágætu spjallvinir mínir, að fornu og nýju !

Heiðursmenn; báðir tveir ! Kommúnistar; líka sem Kapítalistar, eiga hvorir tveggju, jafn miklar sakir á, hversu komið er málum, hér á landi.

Hygg; að ég þurfi ekkert, að útskýra það nánar, fyrir ykkur.

Misminni mig ekki; Halldór, mun Guðmundur Klemenzson vera yngri bróðir Ólafs Seðlabanka hagfræðings.

Þykist vita; að Þór taki ekki illa upp, þókt svo ég yrði fyrri til, að upplýsa það, Halldór minn.

Með beztu kveðjum; úr Árnesþingi /

Óskar Helgi Helgason 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 27.3.2009 kl. 20:51

4 Smámynd: Andri Geir Arinbjarnarson

Gott innlegg hjá þér Halldór.  Eldri kynslóðin sem lagði gruninn fyrir okkar velferðarkerfi á betra skilið frá vinstri stjórn.  Ekki gleyma að nú er búið að loka 40 endurhæfingarplássum á Landakoti.  Tókstu eftir að bæði Lilja og Steingrímur sögðu að leggja ætti á eignarskatt eins og í nágrannalöndum okkar (fleirtala).  Aðeins eitt Norðurlandanna hefur eignarskatt, Noregur. (eintala).  Þeir hafa ekki þurft að leggja hann af vegna olíugróðans.  Svíar lögðu eignarskatt af 2007. VG þarf að læra að Noregur er ekki lausnin.  Munum 1262!

Andri Geir Arinbjarnarson, 27.3.2009 kl. 23:26

5 Smámynd: Andri Geir Arinbjarnarson

Já það er alltaf mamma og pabbi sem eiga að borga fyrir axasköf afkvæma sinna.  Aldrei ætlar þessi kynslóð að vaxa úr grasi og taka ábyrgð á eigin mistökum.   Sorglegt en satt.

Andri Geir Arinbjarnarson, 28.3.2009 kl. 18:31

6 Smámynd: Halldór Jónsson

Heyr heyr Andri.

Jú H.Pétur, auðvitað kjósum við 2 % eignaskatt yfir okkur með VG. Og svo auðvitað skattahækkun úr 38 í 47 %, Nema hvað til þess að tryggja áframhaldandi stjórnarsamstarf.

Halldór Jónsson, 29.3.2009 kl. 09:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 3417959

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband