Leita í fréttum mbl.is

Hvað segir Kolbrún ?

Kolbrún Bergþórs skrifar þessar línur í Mogga í dag :

"Það virðist óumflýjanlegt að vinstristjórn taki við eftir

kosningar. Síðan munu nokkrir mánuðir líða og þá verður

þjóðinni ljóst að afturhaldsöflin í Vinstri

grænum sem eygja engar aðrar lausnir en

skattahækkanir á öllum sviðum hafa náð undirtökum.

Þá mun þjóðin verða hugsi og loks

skelfingu lostin og ekkert botna í því hvernig

hún gat kosið þessi ósköp yfir sig.

Vinstri græn eru kokhraust þessa dagana

og það má sjá á þeim að þar á bæ geta menn

ekki beðið eftir að fá umboð hjá þjóðinni til að

koma hugmyndum sínum um skattahækkanir

í framkvæmd. Samfylkingin mun dansa með.

Eina vonin er sú að niðurstöður kosninga

verði þannig að þessir tveir flokkar fái ekki tilskilinn

meirihluta og neyðist til að taka

Framsókn með sér í ríkisstjórn.

Oft er sagt að þriggja flokka ríkisstjórn

sé ekki af hinu góða en þess konar stjórn er

miklu betri kostur en afturhalds-samsull

Samfylkingar og Vinstri grænna. Í þriggja flokka stjórn

mun það verða hlutskipti Framsóknar að halda ríkisstjórninni

í jarðsambandi og koma í veg fyrir að hún festist

í afturhaldsförunum.

Vinstri græn vonast eftir stórsigri í komandi kosningum.

Aðra hryllir við þeirri tilhugsun. Það er ábyrgðarhluti

fyrir þjóðina að kjósa yfir sig vinstristjórn með tilheyrandi

skattahækkunum. Og það er skelfilegt að

samfylkingarfólk sem skilgreinir sig til hægri eða á miðju

stjórnmála geti ekki treyst dómgreind Samfylkingar í

samkrulli hennar við Vinstri græna.

kolbrun@mbl.is"

 

Þetta er framtíðin eins og Kolbrún sér hana. Útí fenið ætlar þjóðin að ana með opin augun knúin áfram af einhverju óskilgreindu hatri á Sjálfstæðisflokknum sem slíkum .

Eru kjósendur svona vitlausir að þeir hlusti ekki á boðskap Skallagríms um hækkun skatta ? Hvað eiga peningarnir að koma til að borga þá ? Frá útrásarvíkingunum eða þér ?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Baldur Hermannsson

Vinstri stjórn er eiginlega óumflýjanleg - og raunar sjálfsögð. Framsóknarflokkurinn hefur enn eina ferðina gert sig að viðundri og íhaldið engist í magakrampanum. Ég vona bara að VG og Samfylking fái nægan meirihluta til að stjórna án aðildar Framsóknar, því þá fyrst færi nú allt til fjandans hér á Fróni.

Baldur Hermannsson, 29.3.2009 kl. 11:52

2 Smámynd: Helga

Ef þau ósköp þurfa að dynja á okkur.... þá vona ég að Framsókn fari þó með..... 

Vinstra lið þarf að læra að hugsa rökrétt.... Hvernig getur Lilja Mósesd. verið með lausn fyrir fjölskymdur sem miðar að því að fella niður 4 millj. kr á allar fjölskyldur í landinu?  En ekkert prósentutengt?  Skuldir hækkuðu jú prósentutengt, jafnt

hjá fólki sem hafði verið stimplað greiðsluhæft í bak og fyrir í gegn um þetta matið og hitt fyrir sínu 30 millj. kr. láni eins og hinum sem skuldaði bara 4 milljónir.  Eigum við þá að gefa þeim sem skuldar 4 milljónir sitt og sökkva hinum?

Svo er spurning, sá sem skuldar bara 4 milljónir á væntanlega einhverja bankainnistæðu, ætti hann þá ekki að skila öllum 20% vöxtunum sem hann hefur halað inn á sína inneign og eigum við ekki að láta allar fjölskyldur í landinu fá 4 millj. kr vaxtauppbót?  Óháð tekjum og eignum?

Bara þetta sýnir mér að vinstra lið getur ekki farið með fjármuni!

Helga , 29.3.2009 kl. 12:02

3 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Með hliðsjón af því að hér er það eðalkrati sem heldur á penna þá ættu þessi skrfif að rata í heimsmetabók Guiness.

Ekki er trú Kolbrúnar á eigin flokk mikil og í slagtogi við VG sér hún helstefnu birtast. Það gera reyndar fleiri, en flestir þeirra hafa haft vit á að treysta öðrum fyrir atkvæði sínu.

Ragnhildur Kolka, 29.3.2009 kl. 13:12

4 Smámynd: Helgi Már Barðason

Kolbrún veit hvað hún syngur.

Helgi Már Barðason, 29.3.2009 kl. 15:07

5 Smámynd: Baldur Hermannsson

Kolbrún er kólgukona og það er Kolka líka.

Baldur Hermannsson, 29.3.2009 kl. 15:40

6 Smámynd: Liberal

Vinstristjórn að loknum kosningum er ávísun á fullkomið gjaldþrot þjóðarinnar.

Hér verður millistéttinni drekkt í skattahækkunum, fyrirtæki verða kæfð í skattahækkunum og einkaframtakið mun verða gert útlægt í kerfisbundinni ríkisvæðingu þjóðfélagsins.

Þjóðin mun átta sig á þessu, því þetta er eðli vinstrimanna. Eina spurningin er hvort þjóðin fatti þetta fyrir eða eftir kosningar. Þ.e.a.s. áður en það verður of seint eða eftir að það er orðið of seint.

Liberal, 29.3.2009 kl. 19:22

7 Smámynd: Oddur Ólafsson

Nei við skulum ekki hækka skatta.

Förum bara öll og fáum okkur Range Rover.

Þá verður allt svo æðislegt.

Fjárlagagatið sem Flokkurinn býður okkur upp á stoppar sennilega bara upp í sig sjálft.

Oddur Ólafsson, 29.3.2009 kl. 23:47

8 Smámynd: Halldór Jónsson

Það gleður mig Oddur að þú ætlar að stoppa í það með því að hækka staðgreiðsluskattinn þinn í 47 % og borga 2 % eignaskatt til Skallagríms til þess að hefna þín á Sjálfstæðisflokknum sem hlýtur að bera alla ábyrgð á Sigurði Einarssyni, Ólafi Ólafssyni, Finni Ingólfssyni,  Jóni Ásgeiri og Exista bræðrum. 

Góða ferð á Range Rover, vonandi færi ekki Hang Over eftir þá ferð.

Halldór Jónsson, 30.3.2009 kl. 00:01

9 Smámynd: Oddur Ólafsson

Hvaða lausnir býður Flokkurinn upp á?

Flokkurinn sem setti Árna Matt í Fjármálaráðuneytið.

Hvað ætlar hann að gera?  Lækka sktatta, gera Ísland að alþjóðlegri fjármálamiðstöð?....

Oddur Ólafsson, 30.3.2009 kl. 00:05

10 Smámynd: Halldór Jónsson

hlustaðu á formanninn á Z

Halldór Jónsson, 30.3.2009 kl. 11:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 55
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband